Fleiri fréttir

Hafna samræmdri launastefnu

"Samræmd launastefna er eitthvað sem við ætlum ekki að taka þátt í,“ segir Guðmundur Ragnarsson, formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna.

Matvælafyrirtæki fái broskarla

Þingmenn Bjartrar framtíðar hafa flutt tillögu um að fela landbúnaðarráðherra að undirbúa lagafrumvarp svo taka megi upp gæðamerkið "broskarlinn“ hjá matvælafyrirtækjum.

Bæjarfulltrúi VG í Mosfellsbæ í þrot

Karl Tómasson, bæjarfulltrúi Vinstri grænna, snýr aftur í embætti forseta bæjarstjórnar Mosfellsbæjar eftir að húsakaup fjölskyldunnar knúðu hann í gjaldþrot.

Vinnuslys í Kópavogi

Alvarlegt vinnuslys varð í Vesturbænum í Kópavogi nú á áttunda tímanum í morgun.

Fuglar flæktir í girni á Þingvöllum

Borið hefur á því að fuglar í þjóðgarðinum á Þingvöllum hafa lent í ógöngum með því að flækjast í girni. Á sunnudaginn hafði fjölskylda samband við landvörð og tjáði honum að hún hefði fundið fugl fastan í girni við Vatnskot.

Möguleiki á því að kirkjur fari í þrot

Í skýrslu til innanríkisráðherra á síðasta ári kom fram að gjaldþrot blasir við kirkjum vegna mikillar skuldsetningar. Formaður fjárhagsnefndar segir skuldavandann viðvarandi næstu ár. Helstu skuldir eru tilkomnar vegna uppbyggingar.

Takmörk á eignarhlut í bönkum

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segist þeirrar skoðunar að setja eigi takmörk á hversu stóran hlut hver einstakur eigandi má eiga í íslenskum bönkum.

Frostrósafélög í milljónaskuld

Fyrirtækið Frost Culture Company og dótturfélag þess Frostroses Entertainment, sem stendur að Frostrósartónleikaröðinni, skulda samanlagt rúmlega 300 milljónir króna samkvæmt ársreikningi. Ekki hefur verið gert upp við tvo kóra sem sungu á Frostrósartónleikunum í fyrra.

Ávextir hækka mikið í verði

Samkvæmt nýrri verðkönnun Alþýðusambands Íslands hafa ávextir og grænmeti hækkað um allt að 66 prósent frá sambærilegri könnun sem gerð var fyrir ári.

Færðar í félag fyrir gjaldþrot

Félagið Veigur ehf. var í gær sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfu þrotabús Jafets Ólafssonar um riftun á afsali fjögurra íbúða á Akureyri til félagsins.

Yfir 25 þúsund á Hvalasafnið á árinu

25 þúsundasti gestur ársins kom í Hvalasafnið á Húsavík í gær. Í fréttatilkynningu segir að aðsókn í safnið í sumar hafi verið vonum framar og gestum hafi fjölgað um tæp 25 prósent.

Fjölmörg börn í Eyjum ekki bólusett

Fjórða hvert fjögurra ára barn er ekki bólusett í Vestmannaeyjum. Ástæður vanbólusetningar verða rannsakaðar í kjölfar nýrrar skýrslu frá sóttvarnalækni.

Skilorð fyrir að mynda stelpu að pissa

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær tæplega fimmtugan ítalskan ferðamann í hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir að særa blygðunarsemi tólf ára stúlku á almenningssalerni í Laugardalslauginni í ágúst með því að taka myndskeið af henni á símann sinn þegar hún pissaði.

Þarf meðferð og fær martraðir

Önnur stúlknanna sem Daði Freyr Kristjánsson rændi í Árbæ í janúar hefur þurft að glíma við alvarlegar afleiðingar brotsins. Daði hlaut í gær þriggja ára fangelsi fyrir brotið.

Verslanir bjóði upp á staðgreiðsluverð

Verslanir geta auglýst staðgreiðsluverð og lagt álag á þá sem nota kreditkort verði frumvarp stjórnarþingmanna að lögum. Ætti að lækka vöruverð um eitt til tvö prósent segir flutningsmaður. Forstjóri Borgunar segir kostnað fylgja seðlunum.

Fékk málstol eftir líkamsárás

Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur 25 ára gömlum manni fyrir stórfellda líkamsárás á skemmtistað í Vestmannaeyjum í júlí í fyrrasumar.

Fátækir borga hærra vöruverð

„Ástandið í dag er skattur á fátækt fólk. Þeir sem hafa ekki efni á að fara til annarra landa til að versla sitja uppi með hærra vöruverð,“ segir í greinargerð með þingsályktunartillögu sem fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins flytja um mótun viðskiptastefnu Íslands.

Bandaríkjamenn flestir

73 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu um Leifsstöð í september.

Þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi karlmann á fertugsaldri í þriggja ára fangelsi fyrir að nema tvær sjö ára telpur á brott við biðskýli í Árbæ og brjóta gegn þeim kynferðislega.

Reykvíkingar snyrti gróður við lóðamörk

Dæmi eru um að trjágróður sem vex út á göngustíga hafi valdið því að ekki hafi verið hægt að ryðja snjó af stígum Reykjavíkurborgar. Gróðurinn getur valdið hættu og hafa snjóruðningstæki skemmst við að ryðja stíga í borginni.

Erfitt að reikna með afturvirkni

Erfitt er að setja afturvirk lyklalög sem gagnast þeim sem nú skulda meira en verðmæti eigna sinna sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra á Alþingi í dag.

Snjólaust á fimmtudag

Það snjóaði töluvert í morgun, eins og íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa orðið varir við og var snjólagið við veðurstofuna í morgun þrettán sentimetrar.

Grænlensk börn læra að synda á Íslandi

Undanfarnar tvær vikur hafa 31 grænlenskt barn dvalið hér á landi í boði Kalak sem er vinafélag Íslands og Grænlands.„Þetta er búið að vera mjög gaman eins og alltaf og þau fara héðan flugsynd og full af góðum minningum,“ segir Hrafn Jökulsson, Grænlandsvinur.

Ríkið brást ekki nógu vel við

Stjórnvöld brugðust ekki nægilega vel við fjórum af sex ábendingum Ríkisendurskoðunar frá árinu 2010 um stuðning við atvinnu- og byggðaþróun.

Dagur opinn fyrir Sundabraut í einkaframkvæmd

Dagur B. Eggertsson, formaður borgaráðs, er opinn fyrir þeirri hugmynd vegamálastjóra að setja Sundabraut og fleiri samgönguframkvæmdir innan Reykjavíkurborgar í einkaframkvæmd.

Siðmennt fær sóknargjöld sem söfnuður sé

Kirkjan er í miklum fjárhagskröggum en sóknir á suðvesturhorninu skulda yfir þrjá milljarða. Séra Vigfús Þór Árnason er sóknarprestur í stærstu sókninni og þeirri sem mest skuldar. Hann vonar að ríkið hætti að þrengja að kirkjunni.

Lána Kyndla til almennings

Amtsbókasafnið á Akureyri hefur hafið útlán á Kyndlum til almennings. Tilgangurinn er fyrst og fremst að gefa fólki tækifæri á að kynnast þessari tækni,“ segir Hólmkell Hreinsson amtsbókavörður.

Skoðað hvort Vestmannaeyjar fái nýja ferju

Herjólfur hefur ekki getað siglt milli Eyja og Landeyjahafnar um sjötíu daga á ári og hefur þurft að sigla til Þorlákshafnar með tilheyrandi olíukostnaði til viðbótar.

Sjá næstu 50 fréttir