Dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn þrettán ára stúlkum Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 8. október 2013 13:29 Þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn börnum.
Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt ungan karlmann í þriggja ára fangelsi, án skilorðs, fyrir kynferðisbrot gegn börnum. Um er að ræða tvær nauðganir gegn þrettán ára stúlkum. Annars vegar ákærði ríkissaksóknari manninn fyrir kynferðisbrot gegn barni með því að hafa haft við hana samfarir í júní 2010. Hins vegar var hann ákærður fyrir að hafa með ólögmætri nauðung látið aðra stúlku hafa við sig munnmök og þannig nýtt sér yfirburðastöðu sína gagnvart stúlkunni sökum aldurs- og þroskamunar og það að hann hafði komið henni í aðstæður sem vöktu með henni ótta og bjargarleysi. Síðara brotið átti sér stað í nóvember 2012 þegar maðurinn var 18 ára gamall. Maðurinn játaði skýlaust brot sitt samkvæmt fyrri ákæruliðnum. Hann neitaði hins vegar alfarið sök vegna hins síðari. Sagðist hann hvorki hafa vitað um réttan aldur brotaþola umrætt sitt né beitt hana ólögmætri nauðung. Í niðurstöðu héraðsdóms segir: „Að mati dómsins voru aðstæður þær sem ákærði kom brotaþola í umræddan dag þess eðlis að valda þrettán ára barni ótta og bjargarleysi. Vegna þessa og yfirburðastöðu ákærða vegna aldurs- og þroskamunar sem og trúverðugrar lýsingar brotaþola á því hvernig ákærði lét hana hafa við sig munnmök, telur dómurinn hafið yfir skynsamlegan vafa að aðstæður í máli þessu falli undir annars konar ólögmæta nauðung í skilningi 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 3. gr. laga nr. 61/2007. Að mati dómsins er því fram komin lögfull sönnun þess að ákærði hafi beitt brotaþola ólögmætri nauðung þegar hann, gegn vilja brotaþola, lét brotaþola hafa við sig munnmök sem samkvæmt dómaframkvæmd hefur verið skilgreint sem önnur kynferðisleg mök.“ Maðurinn á, þrátt fyrir ungan aldur, að baki nokkurn sakaferil. Hann hefur tvívegis gengis undir sektargreiðslu vegna ölvunaraksturs og aksturs án réttinda. Þá hefur hann verið dæmdur fyrir fíkniefnalagabrot og gengist undir sektargreiðslu hjá lögreglustjóra fyrir samskonar brot. Einnig hefur hann verið dæmdur fyrir frelsissviptingu og brennu.
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Innlent Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Vann 131 milljón króna á kjördegi Innlent Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Innlent Icelandair enn og aftur í vandræðum Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Fleiri fréttir Miðflokkur tapar tveimur í Grindavík Lokatölur í Suðurnesjabæ: Meirihlutinn heldur velli Fyrstu tölur í Garðabæ: Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig manni E-listinn tveimur færri en meirihlutinn heldur í Vogum Lokatölur í Húnaþingi vestra: N-listinn skákaði Framsókn Meirihlutinn á Akureyri fallinn „Það er ekki eftirspurn eftir Guðmundi Árna lengur“ Fyrstu tölur í Hafnarfirði: Meirihlutinn heldur þvert á spár Halla hlaut flest atkvæði í Fljótsdalshreppi Gísli Gunnar efstur í Grýtubakkahreppi Listi sveitarstjórans með flesta fulltrúa Í áfalli yfir fyrstu tölum úr Kópavogi Fyrstu tölur úr Kópavogi: Sjálfstæðisflokkur einn í meirihluta Sjálfkjörin í Kjósarhreppi Lokatölur úr Ásahreppi: Ísleifur og Helga efst með 86 atkvæði Nágrannaslagur í Vesturbænum 94 prósenta kjörsókn í Árneshreppi Fengu boð í grillveislu en ekki að kjósa Lokatölur úr Skaftárhreppi: Meirihlutinn kolfallinn Aðalsteinn verður áfram sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhreppur fyrstur til að birta lokatölur Vann 131 milljón króna á kjördegi Mynda Hildur og Pétur meirihluta eftir allt saman? Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins fylgjast með kosningunum Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Sjá meira