Fleiri fréttir

Sólarlagið heillar

Íslenska kvöldsólin skartar sínu fegursta nú þegar dagurinn tekur vart enda. Landsmenn og ferðamenn fara í miðnæturferðir og fylgjast með sól síga í sæ. Strandlengjan meðfram Sæbraut og Grótta eru vinsælir útsýnisstaðir.

Tófan haslar sér völl nærri byggðu bóli

Tófan hefur fært sig nær byggð og ef fram heldur sem horfir verður hún farin að leita ætis innanbæjar innan skamms. Greni hafi fundist skammt frá bæjum. Í Skagafirði er óvenju mikið af henni í ár. Búið að skjóta yfir hundrað tófur.

Samþætta þarf ríki evrunnar enn frekar

Forgangsmál er að rjúfa vítahring neikvæðrar þróunar banka, ríkja og vaxtarhorfa í löndum evrunnar. Þetta kemur fram í nýju áliti sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) birti í gær. Sjóðurinn kallar eftir enn nánara samstarfi og samþættingu á sviði efnahagsstjórnar í evrulöndunum 17, eigi þau að komast skaðlaust út úr núverandi efnahagsþrengingum.

Rannsóknin langt komin

Rannsókn lögreglu á máli ungu mannanna, sem fóru í leyfisleysi inn á öryggissvæði á Keflavíkurflugvelli og þaðan upp í flugvél, er langt komin og henni ætti að ljúka á næstunni.

Nýr prestur í Bolungarvík

Séra Ásta Ingibjörg Pétursdóttir hefur verið kjörin nýr prestur í Bolungarvíkurprestakalli. Hún tekur við embættinu af séra Agnesi M. Sigurðardóttur sem vígð var til biskups yfir Íslandi á dögunum.

Óbreyttir mokveiddu í boði borgarstjórnar

Nokkrir borgarstarfsmenn gerðu góða ferð inn að Elliðaám í síðustu viku og lönduðu 27 löxum á einum degi. Borgarfulltrúar og fyrrverandi borgarstjórar eru áfram úti í kuldanum eftir áratuga forgang að veiðidögum borgarinnar.

Forystukonu illa við vínsölu á Hrafnistu

Formanni Landssambands eldri borgara er illa við áformaða áfengissölu á Hrafnistu. Formaður Samtaka aldraðra segir að ekki megi hefta eldri borgara. Málið sé þó viðkvæmt því sumum öldruðum sé hætt við misnotkun á áfengi.

Hefðu fært gömlu húsin á Ingólfstorg

Tillagan sem lenti í öðru sæti í samkeppni um Ingólfstorg og Kvosina gerði ráð fyrir því að gömul hús við Ingólfstorg yrðu færð inn á torgið og nýbygging kæmi í þeirra stað. Myndu líka byggja við Kirkjustræti og endurbyggja Nasa.

Undirbúa stofnun íslensks sjóræningjaflokks

Birgitta Jónsdóttir, þingkona Hreyfingarinnar, undirbýr nú stofnun nýs stjórnmálaflokks ásamt hópi fólks. Flokkurinn er kallaður Píratapartýið en hann sækir fyrirmyndir sínar til svokallaðra sjóræningjaflokka sem hafa boðið fram í fjölda landa. Stefnir hópurinn á framboð í næstu alþingiskosningum.

Pungsprengjur, rokk og röfl

Tónlistamaðurinn Franz Gunnarsson gagnrýnir skrif Heiðu Þórðardóttur, ritstjóra, um tónlistarhátíðina Eistnaflug harðlega. Pistill Heiðu birtist á vefsvæðinu Spegill.is í gær. Þar fer hún hörðum orðum um hátíðina og segir ólifnað hafa ráðið þar ríkjum.

Konum á Austurlandi gert að fæða á Akureyri eða í Reykjavík

Fæðingardeildin á fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupsstað verður lokuð frá og með mánudegi. Óvíst er hvort að deildin muni opna fyrir mánaðarmót en þá verða vaktaskipti. Þungaðar konur á svæðinu eru ráðþrota og gagnrýna heilbrigðisyfirvöld fyrir að koma ekki til móts við sig.

Sækja bæði um rannsóknarleyfi við Aldeyjarfoss

Tvö stærstu orkufyrirtæki landsins, Landsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur í samstarfi við Norðlendinga, bítast nú um rannsóknarleyfi vegna 90 megavatta virkjunar við Aldeyjarfoss í Skjálfandafljóti. Orkustofnun þarf að gera upp á milli þeirra þar sem aðeins einn aðili getur haft slíkt leyfi á hverjum tíma. Virkjun Skjálfandafljóts efst í Bárðardal er áratugagömul hugmynd, um tíma var hún kölluð Íshólsvatnsvirkjun en nú Hrafnabjargavirkjun.

Norðmenn og Dani með fyrsta vinning

Þrír höfðu heppnina með sér í Víkingalottóinu í kvöld. Dani og tveir Norðmenn skiptu fyrsta vinnings á milli sín, hver og einn fær tæpar 40 milljónir í sinn hlut.

Huga að gröfum hermanna sem féllu í heimsstyrjöldunum

Sérstök nefnd sem passar upp á að vel sé hugsað um grafir þeirra hermanna sem féllu í heimsstyrjöldunum kom til Íslands í dag til skoða hermannagrafreitinn í Fossvogskirkjugarði. Nefndarmenn heimsækja tugi landa á hverju ári.

Sexfalt fleiri skjálftar í Kötlu en venjulega

Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir að eitthvað mjög óvenjulegt sé að gerast í Kötlu. Fjöldi smáskjálfta á þessu ári nálgist sexhundruð en venjulega mælist langt innan við eitthundrað skjálftar á sama tíma. Hegðun Kötlu var raunar allt annað en venjuleg í fyrrasumar þegar hún skyndilega sendi frá sér svo magnað hlaup að brúna yfir Múlakvísl tók af.

Segja kosningarnar sannanlega ógildar

Sá hópur kjósenda, sem gert var að kjósa með aðstoð kjörstjórnarfulltrúa, tók ekki þátt í leynilegum kosningum, segir í kæru sem öryrkjar hafa sent Hæstarétti vegna forsetakosninganna. Í kærunni segir að kjósendur hafi ekki haft ástæðu til að bera trúnað til umræddra kjörstjórnarfulltrúa og hann hafi að auki verið fulltrúi stjórnvalda.

Fundu afritunarbúnað á hraðbanka í Reykjavík

Afritunarbúnaður fyrir greiðslukort fannst á hraðbanka í miðborg Reykjavíkur þann 7. júlí síðastliðinn og hefur fjármunabrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu verið með málið til rannsóknar. Rannsókn málsins leiddi til þess að á fimmtudag í síðustu viku var erlendur karlmaður um þrítugt handtekinn á Akureyri grunaður um að hafa komið búnaðinum fyrir á hraðbankanum. Ekki er talið að tekist hafi koma afrituðum greiðslukortaupplýsingum í umferð.

Fólk reiðubúið til að greiða tugi þúsunda fyrir dýrin sín

Töluvert er um það að fólk óski eftir því að dýralæknar á Dýraspítalanum í Víðidal geri kostnaðasamar aðgerðir á dýrum þeirra. Vísir sagði í dag frá litlum kettlingi sem fannst á göngubrú yfir Kringlumýrarbraut. Honum var ekið á Dýraspítalann þar sem kom í ljós að hann var fótbrotinn og aðgerð kostar 70-100 þúsund krónur. Ólöf Loftsdóttir, fagdýralækni gæludýrasjúkdóma, segir að dýrustu verkefnin séu aðgerðir vegna slysa, til dæmis fótbrot. Fólk vilji venjulegast láta gera allt sem hægt er að gera fyrir dýrin sín, en öðru máli geti gegnt um óskiladýr.

Heimdallur lýsir eftir Jóni Gnarr

Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hafa búið til viðburð á samskiptasíðunni Facebook þar sem lýst er eftir Jóni Gnarr, borgarstjóra í Reykjavík. Á síðunni segir að ekkert hafi spurts til borgarstjórans í þó nokkurn tíma og hefur félagið að hann sé "týndur og tröllum gefinn og boðar því til samkeppni þar sem vegleg fundarlaun eru í boði."

Útskrifuð af gjörgæslu

Tólf ára gömul stúlka sem slasaðist alvarlega þegar hún varð undir dráttarvél, sem var með sláttuvél í eftirdragi, á sveitabæ skammt frá Sauðárkróki í byrjun mánaðarins, hefur verið útskrifuð af gjörgæsludeild. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæslu liggur stúlkan núna á almennri deild og er líðan hennar eftir atvikum. Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug með stúlkuna til Reykjavíkur þar sem undirgekkst aðgerð en hún var með áverka á fótum og höndum. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á Sauðárkróki er slysið í rannsókn.

Býst við rífandi stemningu á sjósundmóti

"Það verður rífandi stemning. Það er engin spurning," segir Benedikt Hjartason sjósundkappi. Íslandsmeistaramótið í sjósundi fer fram í Nauthólsvík klukkan fimm í dag. Yfir sextíu manns hafa nú þegar skráð sig. "Svo kemur fólk á síðustu stundu þegar það sér hvernig veðrið er," segir Benedikt og hlær.

Heitt vatn lak í kjallara fjölbýlishúss

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út upp úr klukkan ellefu í morgun eftir að tilkynnt var um vatnsleka í fjölbýlishúsi við Skipalón í Hafnarfirði. Að sögn varðstjóra brotnaði krani í kjallara hússins og flæddi heitt vatn um svo íbúar stóðu ráðalausir. Mikill hiti og gufa myndaðist í kjallarnum og þurftu slökkviliðsmenn að klæða sig í þykka hlífðargalla svo hægt væri að stöðva lekann. Ekki liggur fyrir hvort að mikið tjón hafi hlotist af lekanum.

Nubo byggir á 1,4% af landi Grímsstaða sem keypt verður

Huang Nubo mun ráðast í framkvæmdir á 1,4 prósentum af landinu Grímsstöðum á Fjöllum sem félagið GáF ehf. í eigu sjö sveitarfélaga mun kaupa og leigja honum síðan. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra óttast að uppbygging Nubos komi til með að kljúfa samfélag okkar í herðar niður, eins og hann kemst að orði. Samningar við Nubo um leigu á jörðinni eru á lokastigi. Hann ætlar að byggja hótel, eitt hundrað einbýlishús og golfvöll á svæðinu.

Kæran send Hæstarétti í dag

Öryrkjabandalag Íslands mun senda kæru til Hæstaréttar Íslands á næsta klukkutímanum. Það er Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður hefur meðal annars unnið að málinu með Öryrkjabandalaginu.

Bjóða upp á áfenga drykki á Hrafnistu

Bryddað verður upp á þeirri nýjung á Dvalarheimilinu Hrafnistu að selja heimilisfólki og gestum áfenga drykki í endurnýjuðum matsal sem gera á að kaffihúsi. Bylting í þjónustunni við fólkið, segir forstjórinn.

Vill spara hundruð milljóna með rafrænni þjónustu

Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, telur að Íslendingar ættu að vinna af fullri alvöru að taka upp rafrænar kosningar. Framkvæmd kosninga sé gamaldags og miðað við þá tækni sem er til staðar sé hægt að auka möguleika á þessu sviði og spara hundruð milljóna.

Sandsílastofninn á enn undir högg að sækja

Ástand sandsílastofnsins er enn slakt á suður- og vesturhluta landsins samkvæmt nýrri mælingu Hafrannsóknarstofnunar. Tíu daga sandsílaleiðangri á rannsóknarskipinu Dröfn RE 35 er nýlokið. Stærð sandsílastofnsins skiptir verulegu máli fyrir lífríkið því um er að ræða eina helstu fæðu allra sjófugla, ef súla og dílaskarfur er undanskilinn.

Vissu ekki að þau væru "týnd" - ætla að halda áfram för sinni

"Það var allt í góðu hjá þeim og ákváðu að halda áfram för sinni,“ segir Einar Eysteinsson, hjá slysavarnafélaginu Landsbjörg. Þýsku hjónin sem leitað hefur verið að síðan síðdegis í gær komu í leitirnar í morgun en það voru björgunarsveitarmenn sem fundu hjónin.

Hannes Hólmsteinn: "Brottrekstur Snorra er hneyksli"

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, tekur upp hanskann fyrir Snorra Óskarsson í Betel, sem var á dögunum rekinn úr starfi sem grunnskólakennari við Brekkuskóla á Akureyri vegna skrifa á persónulega bloggsíðu um samkynhneigð.

Fíkniefnabrot þriðjungi fleiri í ár

Fíkniefnabrot voru um þriðjungi fleiri fyrstu sex mánuði ársins en á sama tímabil í fyrra. Samkvæmt afbrotatölfræði Ríkislögreglustjóra voru 996 brot skráð á tímabilinu janúar til júní nú í ár. Um 72% brotanna voru vegna vörslu eða meðferðar fíkniefna, 9,7% voru vegna framleiðslu fíkniefna, 2% vegna sölu eða dreifingar og 5,.5% vegna innflutnings efna. Um 10% mála voru "ýmis fíkniefnabrot" en þar falla t.d. undir tilvik þar sem fíkniefni finnast á víðavangi.

Russel Crowe fór út að hjóla í morgun

Stórleikarinn Russel Crowe er staddur á Íslandi þessa daganna til að leika í mynd um Örkina hans Nóa. Leikarinn er duglegur að láta aðdáendur sína vita hvað hann er að gera á Twitter-síðu sinni. Í morgun sagðist hann hafa hjólað 20 kílómetra í Reykjavík.

Tvö ungmenni handtekin eftir árás á lögreglumenn

Tvö ungmenni voru handtekin í kópavogi í nótt eftir að þau höfðu ráðist á lögreglumenn, sem sendir höfðu verið á vettvang vegna ölvunar og fleiru, eins og segir í skeyti löreglunnar, sem neitar að gefa frekari upplýsingar um málsatvik.

Þýsku hjónin fundin

Hjónin sem leitað hefur verið að eru fundin. Hjónin fundust nú rétt í þessu á gönguleiðinni milli Engjasels og Múlaskála, sem er á gönguleiðinni suður í Lón. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg eru hjónin við góða heilsu. Björgunarsveitamenn og þyrla Landhelgisgæslunnar leituðu hjónanna fram til miðnættis í gær og hófst formleg leit aftur með morgninum.

Vaðandi makrílgöngur víða um landið

Makrílgöngur voru vaðandi upp í landssteinum á Eskifirði í gærkvöldi en í gærdag bárust fréttir af makrílgöngu við Hólmavík og reyndar víðar við Húnaflóa.

Óvenjumikil berjaspretta í ár

Berjaspretta er óvenjumikil miðað við árstíma og hefur Skessuhorn eftir starfsmönnum þjóðgarðsins Snæfellsjökuls að krækiberin séu þegar búin að taka lit. Þau séu því orðin æt, þó þau séu ekki orðin sæt og safarík eins og þau verða full þroskuð.

Þegar uppselt á Bræðsluna

Uppselt er á tónlistarhátíðina Bræðsluna sem haldin er á Borgarfirði eystri dagana 26. til 29. júlí næstkomandi. Aðaltónleikar hátíðarinnar fara fram laugardaginn 28. júlí.

Uppþornaðar ár við gul tún

Varla hefur væta komið úr lofti svo vikum og jafnvel mánuðum skiptir á stórum hluta landsins. Fjölmargir bændur horfa á túnin brenna. Ástandið í laxveiðiám í Borgarfirði og Dalasýslu þykir vera grafalvarlegt.

Spornað við spóli úti á Granda

Settar hafa verið upp hraðahindranir í Ánanaustum, en íbúar í grenndinni hafa mikið kvartað undan hávaða frá ökumönnum sem keyra þar um. „Það hefur svo sem aldrei verið neinn ofboðslegur hraði þarna, heldur aðallega hávaði vegna spóls,“ segir Kristófer Sæmundsson, varðstjóri Umferðardeildar lögreglunnar.

Samningar við Huang Nubo langt komnir

Samningaviðræður félags Huangs Nubo við sex sveitarfélög á Norðausturlandi um kaup og leigu á Grímsstöðum á Fjöllum eru langt komnar. Huang segir að heildarfjárfesting hans hér á landi muni nema ríflega 25 milljörðum króna.

Sjá næstu 50 fréttir