Uppþornaðar ár við gul tún 18. júlí 2012 06:30 Þurrkatímabil á Íslandi frá árinu 1860 fengið frá bloggsíðunni hungurdiskar
Varla hefur væta komið úr lofti svo vikum og jafnvel mánuðum skiptir á stórum hluta landsins. Fjölmargir bændur horfa á túnin brenna. Ástandið í laxveiðiám í Borgarfirði og Dalasýslu þykir vera grafalvarlegt. „Ég sé að bændur eru farnir að horfa ofan í vatnsbólin sín, það hafði ég ekki séð áður,“ segir Árni Jón Eyþórsson, bóndi á Bálkastöðum við Hrútafjörð. Þetta lýsir vel áhyggjum bænda af vatnsskorti en þurrkur hefur þegar haft gríðarleg áhrif á svæðinu. Reyndar sleppa þeir bændur vel sem eiga tún í mýrlendi en eitt af túnum Árna Jóns er á melum. „Þar fæ ég um áttatíu rúllur í venjulegu árferði, nú fékk ég þrjátíu og þrjár. Það er kannski ekki nema von að bændur séu farnir að stíga regndansinn.“ Í síðustu viku sagði Fréttablaðið frá Gunnari Þórarinssyni, bónda á Þóroddsstöðum, einnig við Hrútafjörð, en hann hafði ásamt öðrum bændum fjárfest í vökvunarbúnaði. En þegar til kom var ekki einu sinni til nægt vatn í þann búnað. Júní var hinn þurrasti í Stykkishólmi frá upphafi mælinga og í júlí hefur úrkoman aðeins mælst 5,5 millimetrar. Þar skammt frá býr Lárus Franz Hallfreðsson í Ögri. Af einu túna sinna fékk hann sjö rúllur þar sem einar fjörutíu fást í venjulegu árferði. Hann hefur ekki fyrir því að renna fyrir silung í Ögursvatni sem hann segir vera orðið hálfgerðan poll í þurrkunum. Óðinn Sigþórsson, formaður Landssambands veiðifélaga, segir enda ástandið í flestum ám í Borgarfirði og Dalasýslu grafalvarlegt. „Nú spyrja menn ekki lengur hvort það sé lax í ánni heldur hvort það sé yfirleitt vatn í ánni,“ segir hann. „Hún er víða komin ofan í grjót,“ bætir hann við. Eins og laxveiðimenn vita eru sólskinsdagar óheppilegir til laxveiða en þar á ofan tekur laxinn ekki í súrefnislitlu vatninu eins það verður eftir svona þurrkatíð. jse@frettabladid.is / kristjan@frettabladid.is
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Sjá meira