Tófan haslar sér völl nærri byggðu bóli 19. júlí 2012 06:00 Það er nóg að gera hjá refaskyttunni sem hefur skotið vel á annað hundrað tófa það sem af er ári. mynd/Kári Gunnarsson
Tófan hefur fært sig nær byggð og ef fram heldur sem horfir verður hún farin að leita ætis innanbæjar innan skamms. Greni hafi fundist skammt frá bæjum. Í Skagafirði er óvenju mikið af henni í ár. Búið að skjóta yfir hundrað tófur. Bændum og refaskyttum ber saman um að tófan sé farin að færa sig nær byggð. Í vor fannst greni innan við kílómetra frá Stað í Hrútafirði. Birgir Hauksson, refaskytta í Skagafirði, segir að ef fram haldi sem horfir verði ekki langt í það að tófan verði farin að leita í ruslið í bæjum landsins. Árni Jón Eyþórsson, bóndi á Bálkastöðum við Hrútafjörð, segir að greni hafi fundist í stuttu göngufæri frá bænum. Hún virðist einnig verða sífellt ófælnari við sauði og menn. „Þegar ég var í sauðburðinum þá kom hérna ein og stoppaði bara innan um lambféð svona um sextíu metra frá bænum,“ segir Árni Jón. „Þær eru farnar að færa sig nær byggð,“ bætir hann við. „Við erum með prýðisskyttu, hann Ara Arason frá Hvammstanga, og hann hefur fundið tvö greni í tíu til fimmtán mínútna göngufæri frá bænum.“ Hann segir að hún sé minna á ferðinni eftir að hún fór að gjóta en í vor og snemmsumars hafi hann venjulega séð eina til tvær tófur á dag. Í Skagafirði er allt krökkt af tófu á ný eftir tveggja ára ládeyðu og er Birgir búinn að skjóta yfir hundrað tófur það sem af er ári. „Það er alveg merkilegt hvað það er mikið af þessu miðað við hvað við hömrum á þeim,“ segir hann. Svipaða sögu segir Ari Arason úr Hrútafirði og Miðfirði. Þar skaut hann 115 tófur í fyrra og í ár hefur hann skotið tæplega hundrað. „Það sér ekki högg á vatni sama hvað skotið er, þetta er eins og þegar Herkúles átti við Lernuorminn, fyrir hvert höfuð sem höggvið er af vaxa tvö ný,“ segir hann í gamansömum tóni. Í Borgarfirði stendur Snorri Jóhannesson í ströngu. „Menn hringja í mig þegar þetta er komið innan um féð, ég er búinn að skjóta tuttugu tófur í slíkum útköllum í ár,“ segir hann. Hann og Birgir eru sammála um að lágfóta sé farin að færa sig nær byggð og sé ófælnari. „Hér áður fyrr logaði sveitasíminn ef tófa sást úti í vegarkanti, nú sést þetta á vappi hvar sem er og enginn kippir sér upp við það lengur,“ segir Snorri. Birgir segir að refurinn hafi mikla aðlögunarhæfni og venjist því auðveldlega nýju áreiti á nýjum slóðum. „Það er mín skoðun,“ segir hann, „að þetta verði bara eins og við könnumst við það frá útlöndum þar sem skolli skellir sér í bæinn og sækir sér eitthvað til dæmis í ruslaföturnar.“jse@frettabladid.is
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Fleiri fréttir Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Sjá meira