Samþætta þarf ríki evrunnar enn frekar 19. júlí 2012 05:30 Sólblóm við evrutáknið sem stendur við Seðlabanka Evrópu í Frankfurt í Þýskalandi. Fréttablaðið/AP
Forgangsmál er að rjúfa vítahring neikvæðrar þróunar banka, ríkja og vaxtarhorfa í löndum evrunnar. Þetta kemur fram í nýju áliti sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) birti í gær. Sjóðurinn kallar eftir enn nánara samstarfi og samþættingu á sviði efnahagsstjórnar í evrulöndunum 17, eigi þau að komast skaðlaust út úr núverandi efnahagsþrengingum. Álit sjóðsins er hluti af reglubundinni skoðun á horfum og stefnu evrulandanna. Mahmood Pradhan, varaframkvæmdastjóri Evrópudeildar AGS, sagði á kynningarfundi í gær að evrusvæðið virkaði ekki sem skyldi. Hann benti á að á meðan löndum á borð við Þýskaland bjóðist langtímalánakjör sem séu rétt yfir einu prósenti, þar sem fjárfestar leiti öruggs vars fyrir peninga sína, þá eigi önnur evrulönd, svo sem Ítalía og Spánn, í vaxandi vandræðum með að selja skuldir sínar á viðráðanlegum kjörum. Langtímalánamarkaðir sé svo alveg lokaðir sumum öðrum evrulöndum, svo sem Grikklandi, Írlandi og Portúgal. Í skýrslu sendinefndar sjóðsins er aðgerða sagt þörf á þremur sviðum til að rjúfa efnahagsvítahring evrusvæðisins. Efla þurfi bankakerfissamruna með samevrópsku tryggingakerfi innstæðna og stuðningskerfi, sem njóti stuðnings landanna allra og búi við sameiginlegt eftirlit. Eins þurfi aukna samþættingu efnahagsstjórnar í löndunum, með öflugra samstarfi ríkja og deildri ábyrgð og áhættu. Í þriðja lagi þurfi kerfisumbætur, jafnt í löndum sem skila afgangi og hinum sem rekin eru með halla, til þess að ýta undir vöxt og taka á innra ójafnvægi á svæðinu. - óká
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Sjá meira