Huga að gröfum hermanna sem féllu í heimsstyrjöldunum Höskuldur Kári Schram skrifar 18. júlí 2012 20:00
Sérstök nefnd sem passar upp á að vel sé hugsað um grafir þeirra hermanna sem féllu í heimsstyrjöldunum kom til Íslands í dag til skoða hermannagrafreitinn í Fossvogskirkjugarði. Nefndarmenn heimsækja tugi landa á hverju ári. Nefndin var stofnuð í Bretlandi árið 1917 þegar fyrri heimsstyrjöldin stóð sem hæst en markmið hennar er að halda utan um grafir hermanna frá Bretlandi og bresku samveldislöndunum. „Í 153 löndum eru grafir manna frá Samveldislöndunum, ekki bara Bretlandi, sem fórust í báðum heimsstyrjöldunum. Heildarfjöldi látinna sem við berum ábyrgð á er 1,7 milljónir manna," segir Sir Alistair Irwin, framkvæmdastjóri CWGC. Hátt í tvö hundruð hermenn frá Bretlandi og bresku samveldislöndunum eru grafnir á íslandi en stærsti grafreiturinn er í Fossvogskirkjugarði. Alistair segir að nefndarmenn finni fyrir miklu þakklæti frá ættingjum fallinna hermanna. „Það geta ekki allir heimsótt tiltekna gröf í tilteknum kirkjugarði því sumar þeirra eru á afar afskekktum stöðum," segir Sir Irwin. „En fólk vill vita að það sé hugsað um þær og það getur fundið ýmsar upplýsingar á vefsíðunni okkar. Og það er það sem fólk gerir. Það fer mikið inn á vefsíðuna okkar." Legsteinarnir eru misjafnir að lögun og ýmislegt má lesa út úr því. „Þessi lögun, þú sérð að hún er öðruvísi að því leyti að það er hoggið úr hérna, sýnir að þetta er ekki stríðsgröf. Þótt þessi maður, Wilson skipasmiður, hafi dáið í slippnum hérna 1943 var hann ekki í einkennisbúningi, hann hefur verið óbreyttur borgari sem vann í slippnum og sennilega hefur hann dáið af eðlilegum orsökum og þess vegna fær hann ekki stríðsgröf, en af því að hann var á stríðssvæði var hann grafinn hér og legsteinninn auðkenndur með því að taka úr brúninni hérna." Alister var sáttur við ástand legsteina og umhirðu í Fossvogskirkjugarði. „Þetta er ekki bara spurning um að horfa á mjög marga legsteina og segja að það sé vel litið eftir þeim," segir Sir Irwin. „Því hver einasti þessara manna var einstaklingur sem átti fjölskyldu og sem átti vonir og væntingar um framtíðina, vildi giftast eða hvaðeina. Þeir létust fyrir aldur fram með afleiðingum fyrir fjölskyldur þeirra sem syrgðu þá. Við sem komum að þessu reynum að muna að þetta snýst ekki um tölur heldur um margt fólk."
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Erlent Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira