Innlent

Heimdallur lýsir eftir Jóni Gnarr

Krakkar í stjórn og deildum félagsins.
Krakkar í stjórn og deildum félagsins. mynd/Heimdallur á Facebook
Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hafa búið til viðburð á samskiptasíðunni Facebook þar sem lýst er eftir Jóni Gnarr, borgarstjóra í Reykjavík. Á síðunni segir að ekkert hafi spurts til borgarstjórans í þó nokkurn tíma og hefur félagið að hann sé „týndur og tröllum gefinn og boðar því til samkeppni þar sem vegleg fundarlaun eru í boði."

„Reykjavík þarf nauðsynlega á borgarstjóra að halda og því er mjög mikilvægt að Jón Gnarr komi í leitinar sem fyrst ella þarf að finna nýjan borgarstjóra fyrir Reykjavík.

Jón Gnarr er meðalhávaxinn karlmaður með rautt hár og frekar há kollvik. Seinast sást til hans í viðtali á mbl.is þar sem hann kom fram í ljósbrúnum jakkafötum.

Sá sem finnur borgarstjórann er beðinn að taka af því mynd og setja á vegginn. Í verðlaun eru m.a. VHS spóla af ,,Ég var einu sinni nörd" og þriggja mánaða áskrift af Séð og Heyrt," segir á síðunni.

Hægt er að nálgast viðburðinn hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×