Fleiri fréttir

Keyrðu á og reyndu að flýja

Árekstur varð á Kringlumýrarbraut við Listabraut nú rétt fyrir tíu. Par sem í bílnum var reyndi að komast undan á hlaupum, en þau eru grunuð um ölvunar- eða fíkniefnaakstur. Þau náðust og voru flutt á slysadeild en ekki er vitað hve alvarleg meiðsl þeirra eru. Þau verða að lokinni aðhlynningu flutt á lögreglustöð þar sem verður tekin af þeim skýrsla.

Hætta leit fram til morguns

Leit er lokið í dag að rjúpnaskyttunni sem saknað hefur verið frá því um hádegisbil í gær. Henni verður haldið áfram þegar birtir í fyrramálið. Tæplega tvö hundruð björgunarsveitarmenn hafa leitað mannsins í dag, og notið liðsinnis þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Segja nær helming starfsmanna horfa fram á atvinnuleysi

Nær helmingur starfsmanna á stofum innan vébanda Félags Arkítektastofanna sér fram á atvinnuleysi frá febrúar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ályktun Arkitektafélags Íslands og Félags Arkítektastofanna, sem félögin afhentu forsætisráðherra í gær.

Ekki vænlegt að hleypa fólki fyrr á eftirlaun

Það er slæm hugmynd að leyfa fólki að hætta fyrr að vinna, segir Pétur Blöndal alþingismaður. Hann segir breytinguna aðeins myndi hafa áhrif á kjör fólks til hins verra.

Aukið framboð af leiguhúsnæði

Húsaleigumarkaðurinn hefur tekið miklum breytingum að undanförnu. Í smáauglýsingadálkum dagblaðanna eru nú margar íbúðir boðnar til leigu en fyrir ekki svo löngu síðan var framboðið nánast ekkert.

Mokveiði af síld við Njarðvík

Nokkur skip eru nú að mok veiða síld rétt utan við höfnina í Njarðvík og fleiri skip eru á fulltri ferð á leiðinni þangað. Mörg áru eru síðan að síld hefur verið veiðanleg í enhverju mæli á þessum slóðum.

Rjúpnaskyttan ófundin

En hefur ekkert spurst til rjúpnaskyttu sem leitað hefur veirð nærri Skáldabúðum í Gnúpverjahreppi frá því í gær. Björgunarsveitarmenn fundu fyrr í dag spor sem þeir röktu, en án árangurs. Um 150 manns hafa leitað mannsins í dag og hefur þyrla landhelgisgæslunnar tekið þátt í leitinni.

Útgerðarfyrirtæki fá tilboð í gjaldeyri

Útgerðarfyrirtæki fá reglulega fyrirspurnir frá innflutningsfyrirtækjum um kaup á gjaldeyri að sögn framkvæmdastjóra LÍÚ. Hann segir tilboðin oft 20 til 30 prósent fyrir ofan gengi Seðlabanka Íslands.

Kveikt í rusli í Breiðholti

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að Jafnaseli í Breiðholti laust eftir klukkan tíu í gærkvöldi eftir að eldur var borinn að rusli sem safnað hafði verið saman í litla brennu. Greiðlega gekk að slökkva eldinn að sögn slökkviliðsins. Þá var tilkynnt um eld í nýbyggingu á Álftanesi skömmu fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi. Kveikt hafði verið í einangrunarplötum í kjallara hússins. Ekki var um mikinn eld að ræða og gekk slökkvistarf vel. Húsið, sem er fokhelt, skemmdist lítið.

Fjöldi innbrota í sumarbústaði

Tilkynnt var um sex innbrot í sumarbústaði í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í gær. Mikið hefur verið um innbrot á svæðinu frá því í sumar, og eru það helst flatskjáir og annar húsbúnaður sem freistar þjófa. Lögregla hvetur fólk til þess að fylgjast vel með sumarhúsum sínum og láta vita af grunsamlegum mannaferðum í sumarhúsahverfum.

Rjúpnaskyttunnar enn saknað

Ekkert hefur enn spurst til rjúpnaskyttu sem leitað var í Árnessýslu í gær og nótt. Ríflega hundrað björgunarsveitarmenn leituðu mannsins, en hlé var gert á leitinni í morgun til þess að skipta út mannskap. Leit verður haldið áfram í birtingu. Leitarmönnum verður þá fjölgað auk þess sem þyrla landhelgisgæslunnar tekur þátt í leitinni, en svæðið er afar erfitt yfirferðar. Mikill kuldi er á svæðinu en veður kyrrt. Maðurinn er vanur útivistarmaður og að sögn félaga hans vel búinn.

Opið á skíðasvæðum norðanlands

Skíðasvæðið á Skarði við Siglufjörð verður opið frá klukkan ellefu til fimm í dag. Veður á svæðinu er gott og nægur snjór. Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli við Akureyri er opið frá tíu til fjögur, og á Tindastóli í Skagafirði frá tólf til fimm.

Kveikt á jólatrénu á Austurvelli í dag

Ljósin á Oslóartrénu á Austurvelli verða tendruð klukkan fjögur í dag. Tæp sextíu ár eru síðan Norðmenn færðu Íslendingum í fyrsta sinn grenitré að gjöf til að skreyta Reykjavík. Tréð sem prýðir Austurvöll þessi jól er tólf metra hátt og var höggvið í Maridalen sem er eitt af vinsælli útivistarsvæðum Oslóarbúa. Jólsveinarnir Giljagaur, Bjúgnakrækir og Stúfur ætla að mæta á svæðið og syngja nokkur jólalög.

Aukinn fjöldi bíla á uppboð

Einhver aukning hefur orðið á fjölda bíla sem boðnir eru upp vegna vanskila, að mati starfsmanns Vöku. Sýslumaðurinn í Reykjavík auglýsti í gær tæplega 950 bíla sem bjóða á upp næsta laugardag.

Alcoa verður að meta orkuöflun líka

Skipulagsstofnun hefur samþykkt tillögu Alcoa um matsáætlun vegna framkvæmda við álver á Bakka við Húsavík. Skilyrði voru sett um að orkuöflun yrði skilgreind.

Setið um plássin

„Það eru nú mjög margar umsóknir sjómanna, ætli fjöldi umsókna hafi ekki fjórfaldast bara á síðustu tveimur mánuðum,“ segir Hákon Viðarsson, yfirmaður starfsmannasviðs Síldarvinnslunnar í Fjarðabyggð.

Leitarmönnum fjölgað í rúmlega hundrað

Liðsauki frá höfuðborgarsvæðinu, Hellu og Hvolsvelli hefur verið kallaður út til að leita rjúpnaskyttu sem saknað hefur verið frá hádegi. Fjölmennt lið björgunarsveitarmanna hefur leitað mannsins frá því á fjórða tímanum með aðstoð sporhunda, og um tíma tók þyrla Landhelgisgæslunnar þátt í leitinni.

Ætla að höfða mál vegna peningamarkaðssjóða

Um 200 manns mættu á opinn fund fyrir helgi þar sem formaður bankaráðs Nýja Landsbankans og bankastjóri sátu fyrir svörum um peningabréf í Landsbankanum. Fólk var verulega ósátt við að fá einungis 68,8 prósent af inneign sinni tilbaka - að þriðjungur sparnaðar þess hafi horfið í hýt við yfirtöku fjámálaeftirlitsins á gamla Landsbankanum.

Lögregla stöðvaði strætisvagn

Lögregla stöðvaði fyrr í kvöld strætisvagn í Mosfellsbæ til þess að kanna ástand ökumanns, eftir að henni hafði borist tilkynning um einkennilegt ökulag. Ökumaðurinn reyndist við eftirgrennslan allsgáður, en ókunnugur í hverfinu. Hann hafði tekið óþarflega skarpa beygju á vitlausum stað og ekið utan í skilti.

Steingrími vel tekið á Evrópuþinginu

Steingrímur J. Sigfússon fékk mjög jákvæðar undirtektir við málstað Íslendinga þegar hann ræddi beitingu Breta á hryðjuverkalögunum, á Evrópuþinginu í gær.

Telja slysahættu aukast

Slysahætta eykst í Bústaðahverfi þegar ökumönnum verður bannað að beygja til vinstri af Bústaðarvegi inn á Reykjanesbraut. Þetta segir fyrrverandi borgarstjóri og íbúi í hverfinu.

Ætti að tryggja að ekki yrði gengið að skuldurum um hríð

Ríkisstjórnin ætti að taka af skarið og segja að í 6-9 mánuði yrði ekki gengið að skuldurum á meðan krónunni er gefið tækifæri til að styrkjast. Þetta sagði Yngvi Örn Kristinsson hagfræðingur hjá Landsbankanum í viðtali við Markaðinn með Birni Inga í morgun.

Bubbi spáir byltingu

„Gera menn sér grein fyrir því að í fyrsta skipti í sögu þjóðarinnar liggur uppreisn í loftinu,“ segir Bubbi Morthens í grein í Morgunblaðinu í dag. Hann gagnrýnir stjórnvöld harkalega í greininni og spáir blóðugum mótmælum verði menn ekki dregnir til ábyrgðar fyrir það ástand sem nú ríkir í þjóðfélaginu.

Rjúpnaskyttu leitað

Björgunarsveitir í Árnessýslu leita nú rjúpnaskyttu sem saknað hefur verið frá því um hádegi. Maðurinn var að veiðum í Laxárdal ásamt þremur öðrum. Þeir fóru hver í sína áttina en höfðu sammælst um að hittast aftur við bíl sinn á hádegi. Þegar hann skilaði sér ekki hófu félagar hans leit að honum, en um þrjú leitið höfðu þeir samband við lögreglu sem kallaði út björgunarsveitir úr Árnessýslu. Um tíma leitaði þyrla landhelgisgæslunnar mannsins, en nú leita hans um fimmtíu björgunarsveitarmenn með sporhunda. Veður á svæðinu er stillt, en töluvert kalt.

Um fjögur þúsund á mótmælafundi

Um fjögur þúsund manns eru nú á mótmælafundi á Austurvelli þar sem krafist er afsagnar stjórnar Seðlabankans og kosninga til Alþingis. Ræðumenn dagsins eru Illugi Jökulsson rithöfundur, Stefán Jónsson leikari og Kristín Tómasdóttir frístundaráðgjafi. Nokkuð kalt er í höfuðborginni og spurning hvort það hafi áhrif á mætinguna í dag, en undanfarna tvo laugardaga hafa um sex til sjö þúsund manns mætt á fundina.

Áttundu mótmælin í dag

Áttunda laugardaginn í röð er boðað til mótmæla á Austurvelli í dag klukkan þrjú. Mótmælendum hefur fjölgað frá því skipulögð mótmæli hófust fyrir átta vikum en síðastliðinn laugardag er talið að á bilinu sex til sjö þúsund manns hafi komið saman á Austurvelli. Mótmælendurnir vilja að seðlabankastjórn víki og að boðað verði til þingkosninga. Aðstandendur mótmælanna segja fundinn í dag einnig hafa það markmið að sameina þjóðina og skapa með henni samstöðu og samkennd. Ræðumenn á Austurvelli í dag verða þrír líkt og áður. En það eru Kristín Tómasdottir frístundaráðgjafi, Stéfán Jónsson leikstjóri og Illugi Jökulsson rithöfundur sem flytja þær.

Gjaldeyrishöftin munu skaða íslenskt efnahagslíf

Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að aflétta ekki gjaldeyrishöftum þegar krónan verður sett á flot mun skaða íslenskt viðskiptalíf. Þetta er mat framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu. Hann telur að þær aðgerðir sem nú á að fara í séu síst til þess fallnar að endurvekja traust á íslensku fjármálakerfi.

Skíðasvæðin á norðurlandi opin í dag

Norðlendingar ættu að geta skellt sér á skíði í dag. Skíðasvæðið í Tindastóli er opið til klukkan fimm í dag. Mikið hefur snjóað síðustu daga og því gott skíðafæri. Gestir ættu þó að búa sig vel því að sjö gráðu frost er á svæðinu. Þá er skíðasvæði Siglfirðinga opið frá klukkan ellefu til fimm í dag og skíðasvæði Akureyringa í Hlíðarfjalli er opið frá tíu til fjögur.

Jólaljósin tendruð á Miðbakka

Ljósin á jólatrénu frá Hamborg sem er á Miðbakka Reykjavíkurhafnar verða tendruð í dag klukkan fimm. Sendiherra Þýskalands á Íslandi, Karl-Ulrich Müller, afhendir forsvarsmönnum Faxaflóahafna tréð og Júlíus Vífill Ingvarsson, stjórnarformaður Faxaflóahafna, ávarpar samkomuna og tekur á móti trénu fyrir hönd hafnarinnar.

Nóttin tíðindalítil hjá lögreglu

Fjórir voru teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í nótt. Tveir þeirra enduðu för sína á ljósastaur, annar á Sæbraut við Kirkjusand, og hinn í Austurstræti. Ökumenn sakaði ekki. Þá var tilkynnt um eina líkamsárás þegar manni var hrint í leigubílaröðinni í Austurstræti. Nóttin var að öðru leiti tíðindalítil í Reykjavík.

Þingið upp við vegg

Meðferð og afgreiðsla Alþingis á frumvarpinu um gjaldeyrishöft var aðeins formsins vegna og að nafninu til. Þingmönnum var gert ljóst að höftin væru hluti af samkomulagi stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og því eins gott að frumvarpið yrði að lögum.

Mikil ölvun og spark í höfuðið

Vísbendingar eru komnar fram um að sparkað hafi verið í höfuð manns sem lést nýverið í sumarbústað í Grímsnesi og að hann hafi látist mjög skömmu eftir að það var gert. Krufning hefur leitt í ljós að maðurinn lést af blæðingum í heila eftir að hafa hlotið þungt höfuðhögg. Fjórir fullorðnir voru í bústaðnum þegar atvikið átti sér stað. Veruleg ölvun var á staðnum.

Kristín, Stefán og Illugi halda ræður á fundi

Ræðumenn á mótmælafundi á Austurvelli kl. 15.00 í dag verða þau Kristín Tómasdóttir frístundaráðgjafi, Stefán Jónsson leikstjóri og Illugi Jökulsson rithöfundur. Hópur fólks hefur safnast saman á hverjum laugardegi síðan 11. október til að mótmæla kreppuástandinu sem myndast hefur á Íslandi og hefur fjöldi viðstaddra farið mjög vaxandi.

Ekki til fé fyrir floti krónunnar

„Þetta bendir til þess að menn telji sig ekki hafa nógu mikinn gjaldeyri til þess að fleyta krónunni alveg,“ segir Sigurjón Þ. Árnason, fyrverandi bankastjóri Landsbankans, um ný lög og reglur um gjaldeyrisviðskipti.

Taka tónlistarhúsið líklega yfir

Líkur eru á að Austurhöfn, félag í eigu ríkisins og Reykjavíkurborgar, taki yfir byggingu tónlistarhússins. Portus, sem ætlaði að byggja og reka húsið, er komið í þrot og mun ekki koma frekar að málinu.

Kortleggja forsendur samflots

Stórt samflot með opinberu félögunum og félögum á almennum vinnumarkaði er í bígerð fyrir endurskoðun kjarasamninga á næsta ári ef tekst að ljúka lausum kjarasamningum þannig að engir hópar verði skildir eftir án þeirra kjarabóta sem samið hefur verið um á árinu. Ríkisstjórnin og forystumenn á vinnumarkaði báru saman bækur sínar í Ráðherrabústaðnum í gær.

Þrjár flugvélar fá að fljúga

Íslendingarnir, sem voru strandaðir vegna mótmælanna í Taílandi, áttu að fara með flugvél Finnair og jafnvel Thai Air til Parísar og London í nótt. Sigurður Yngvason, bóndi í Kelduhverfi, átti von á því í gærkvöldi að sendiráðsstarfsmaður myndi hitta sig og fjölskyldu sína á flugvellinum þegar þau lentu í París í dag.

Reyndu að kúga út tugmilljónir

Ríkissaksóknari hefur ákært þrjá menn fyrir tilraun til að kúga tugmilljónir króna út úr manni. Þá er einn þremenninganna ákærður fyrir ofbeldisbrot að auki og annar fyrir fíkniefnabrot. Mennirnir eru á þrítugs- og fertugsaldri.

Opnað í dag með jólaskemmtun

Hið árlega Jólaþorp verður opnað í dag í Hafnarfirði sjötta árið í röð og verður það opið allar helgar fram til jóla. Í dag verður kveikt á jólatrénu á Thorsplani í hjarta Hafnarfjarðar klukkan þrjú en fyrstu skemmtiatriðin hefjast klukkan tvö þegar Anne og Selma frá félagsmiðstöðinni Vitanum syngja. Raggi Bjarna tekur lagið og Tjarnarsystur, svo fátt eitt sé nefnt.

Umferðin orðin eins og hún var árið 2002

„Síðan að kreppan mikla skall á höfum við séð umferðina falla,“ segir Björg Helgadóttir, landfræðingur á samgönguskrifstofu umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar. „Við erum með mælingar á Kringlumýrarbraut, Sæbraut og Ártúnsbrekku og á öllum þessum stöðum hefur umferðin dregist verulega saman. Umferðarþungi er nokkuð breytileg stærð, það eru miklar sveiflur í þessu en þegar það er litið heildstætt yfir þetta má segja að það sé komin svipuð umferð og var á árunum 2002 og 2003.“

Merkileg stefnubreyting hjá AGS

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) hefur breytt um stefnu hvað gjaldeyrishöft varðar, að mati Eddu Rósar Karlsdóttur, hagfræðings í Landsbankanum.

Brot á lögum um útlendinga

Framkvæmdastjóri Slippsins á Akureyri ehf. hefur verið dæmdur í sekt fyrir brot á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga.

Sjá næstu 50 fréttir