Fleiri fréttir

Ekkert selt á bak við luktar dyr

Búið er að tryggja að eignir ríkisbankanna verði ekki seldar bak við luktar dyr, heldur auglýstar svo mögulegir kaupendur sitji við sama borð. Allir helstu stjórnendur bankageirans á Íslandi voru boðaðir á fund viðskipta- og fjármálaráðherra í dag þar sem þetta var rætt.

Aðgerðir Breta gegn Landsbanka ræddar í dag

Aðgerðir breskra stjórnvalda gegn Landsbankanum í Bretlandi voru ræddar á stjórnarnefndarfundi Evrópuráðsþingsins í dag. Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins óskaði eftir því að beiting Breta á hryðjuverkalögum gegn Íslendingum yrði rædd á þinginu.

Niðurskurðurinn mun heyrast í útvarpinu og sjást í sjónvarpinu

„Það er augljóst mál að þegar við skerum niður um 700 milljónir mun það heyrast í útvarpinu og það mun sjást í sjónvarpinu," segir Páll Magnússon útvarpsstjóri um niðurskurðartillögur sem voru kynntar í dag. Hann segir þó að reynt verði að búa til eins góða dagskrá og mögulegt er fyrir þann pening sem fyrirtækið hafi úr að spila.

Dregur úr hópuppsögnum

„Þetta lítur alltsaman betur út núna en fyrir síðustu mánaðarmót,“ sagði Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar í viðtali í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann sagði að tilkynningar um hópuppsagnir hafi verið færri og náð til færri aðila en um síðustu mánaðarmót.

Vilji til að halda byggingu tónlistarhússins áfram

Það má ekki gerast að tónlistarhúsið verði gapandi sár í miðborginni, segir menntamálaráðherra. Borgarstjóri og menntamálaráðherra munu hittast í næstu viku til að fara yfir hvernig ríki og borg geti haldið áfram með verkefnið.

Gjaldeyrislög fá misjafnar undirtektir

Ríkisstjórnin hefur sett íslenskt atvinnulíf nokkra áratugi aftur í tímann með setningu nýrra laga um gjaldeyrismál að mati framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu. Skásti kosturinn í stöðunni segir aðalhagfræðingur Seðlabankans.

Jólafrí þingmanna styttra í ár

Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, telur afar líklegt að gerðar verði breytingar á starfsáætlun þingsins vegna yfirstandandi efnahagsþrenginga sem hafi óhjákvæmilega áhrif á þingstörf og fjölda þingfunda. Núverandi starfsáætlun gerir ráð fyrir að þingi verði frestað 12. desember fram til 12. janúar.

Áhersla lögð á að greiða laun

Slæm staða Árvakurs, Útgáfufélags Morgunblaðsins, var rædd á starfsmannafundi nú seinni partinn. Þar kom meðal annars fram að lausafjárerfiðleikar væru að gera félaginu erfitt fyrir. Áhersla væri þó lögð á að greiða laun starfsmanna.

Afhentu undirskriftir gegn niðurrifi húsa við Laugaveg

Júlíusi Vífli Ingvarssyni, formanni skipulagsráðs Reykjavíkur, var í morgun afhentur listi með undirskriftum þrjúhundruð og þrjátíu íbúa sem mótmæla niðurrifi húsanna við Laugaveg og fyrirhuguða byggingu Listaháskóla Íslands.

SUS: Pólitískt uppgjör óumflýjanlegt

Samband ungra sjálfstæðismanna dregur ekki dul yfir að miklir erfiðleikar eru framundan. Langan tíma mun taka að vinna aftur til baka það sem tapast hefur og það verður ekki gert þrautalaust. Fara þarf rækilega yfir það sem aflaga fór svo lærdóm megi draga af þessum efnahagslegu hörmungum. Pólitískt uppgjör er jafnframt óumflýjanlegt. Mörg mistök voru gerð. Stjórnvöld þurfa að líta í eigin barm, fyrirtæki þurfa að endurskoða rekstur sinn og almenningur þarf að aðlagast hratt nýjum raunveruleika.

Gefur lítið fyrir athugasemdir ungliða um mannabreytingar

Formaður Sjálfstæðisflokksins gefur lítið fyrir athugasemdir Heimdalls, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem krafðist þess í gær að stjórn Seðlabankans og yfirstjórn Fjármálaeftirlitsins yrði vikið frá og mannabreytingar yrðu gerðar ríkisstjórninni.

Mótmæla banni við vinstri beygju

Stjórn Íbúasamtaka Bústaðahverfis mótmælir harðlega fyrirhugaðri lokun vinstru beygju af Bústaðavegi inn á Reykjanesbraut en borgarráð samþykkti í gær að loka beygjunni til reynslu í sex mánuði. Breytingunni er ætlað að draga úr álagi við gatnamótin og verður á reynslutímanum kannað hvort biðraðir á annatímum styttist.

15 sagt upp á fréttastofu RÚV

Heiðar Örn Sigurfinnsson trúnaðarmaður starfsmanna á fréttastofu Rúv segir starfsmenn sjokkeraða eftir atburði dagsins. 21 var sagt upp störfum og 23 verktakasamningum var sagt upp. Einnig er stefnt að launalækkunum um áramótin.

Hefur ekki tekið ákvörðun um málsókn gegn Daily Mail

Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi borgarstjóri, hefur ekki tekið ákvörðun hvort hann höfði mál gegn breska dagblaðinu Daily Mail vegna umfjöllunar um hann í október. ,,Mér er annt um mannorð mitt eins og fleirum," sagði Ólafur í samtali við Vísi. ,,Ég er enn að skoða málið."

Sjálfstæðisflokkurinn fundar um Evrópumál

Sjálfstæðisfokkurinn hefur ákveðið að hefja fundarherferð 12. desember um allt land þar sem ræða á valkosti og kynna kosti, galla og álitamál í hverjum málaflokki gagnvart hugsanlegri aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Von á niðurstöðu frá kjararáði eftir helgi

Guðrún Zoega formaður kjararáðs segir að ekki hafi náðst niðurstaða um lækkun launa æðstu embættismanna ríkisins. Kjararáð fundaði um málið í dag og segir Guðrún að stefnt verði að því að niðurstaðan verði kynnt eftir helgi.

Veit ekki af hverju Davíð upplýsti ekki Björgvin

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, veit ekki af hverju seðlabankastjóri lét ekki vita þegar fyrsti hluti láns Alþjóðagjaldeyrissjóðsins barst til Seðlabankans. Tæp vika leið frá því lánið barst til bankans þar til Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, var upplýstur um afgreiðsluna.

Forystumenn launþegasamtaka hafa ekki rætt launalækkun

Forystumenn helstu launþegasamtaka hafa ekkert rætt um að lækka við sig launin, að sögn hafa forystumenn launþegasamtakanna eitthvað rætt um að lækka launin hjá sér. „Ekki veit ég til þess að það hafi eitthvað verið rætt,"

Gjaldeyrislögin sett með vilja AGS

Geir Haarde forsætisráðherra telur að gagnrýni á gjaldeyrislögin sé of harkaleg. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, hefur sagt að lögin munu stórskaða íslenskt viðskiptalíf og krefst þess að þau verði tekin til baka.

Ósáttur við að lesa um uppsagnirnar í Fréttablaðinu

Ég er afskaplega ósáttur við það að ég og aðrir starfsmenn Ríkisútvarpsins höfum þurft að lesa um uppsagnir og niðurskurð í Fréttablaðinu,” segir Heiðar Örn Sigurfinnsson, trúnaðarmaður starfsmanna á Fréttastofu Ríkisútvarpsins.

Einn handtekinn eftir fíkniefnafund í Mosfellsbæ

Fíkniefni fundust við húsleit í Mosfellsbæ í gærkvöld en um var að ræða marijúana, samtals um 700 grömm. Húsráðandinn, karl á fertugsaldri, var handtekinn en hann hefur áður komið við sögu lögreglu vegna fíkniefnamála.

Gjaldskrá Strætó helst óbreytt

Stjórn Strætó bs. samþykkti í morgun rekstraráætlun fyrir næsta ár. Áætlunin felur meðal annars í sér ákvarðanir um aukin framlög til reksturs strætisvagna árið 2009 en jafnframt þjónustuaðlögun sem nauðsynlegt verður að grípa til vegna erfiðra rekstraraðstæðna.

Efast um að Hæstaréttardómari geti unnið með rannsóknarnefndinni

Sigurður Líndal, prófessor emeritus við lagadeild Háskóla Íslands, efast um að Hæstaréttardómari geti sinnt dómarastörfum á meðan að hann sitji í rannsóknarnefnd um bankahrunið. Fljótt á litið virðist starfið vera allt of umfangsmikið. Sigurður segir þó að Hæstaréttardómurum sé heimilt að vinna minniháttar störf samhliða dómarastörfum.

Vill verðtrygginguna burt

Verðtrygging langtímalána er óaðskiljanlegur fylgifiskur íslensku krónunnar, að sögn Árna Páls Árnasonar þingmanns Samfylkingarinnar. Hann vill verðtrygginguna burt.

Íslenska rigningin

Eftir langa þurrviðriskafla er hún alltaf kærkomin, gamla góða íslenska rigningin. Á hinn bóginn þekkjum við líka að hún getur verið þreytandi - stórrigningar og það jafnvel tíðar geta hreinlega gert væntingar okkar í sumarfríinu að engu.

Samhjálp opnar nytjamarkað

Rekstur Samhjálpar hefur þyngst mikið undanfarið. ,,Til viðbótar svo við þyngri rekstur hefur ásókn í úrræði okkar aukist til mikilla muna en sem dæmi má nefna að í lok september höfðum við ekki getað veitt innlögn 600 einstaklingum í Hlaðgerðarkot sem er sami fjöldi og allt árið 2007," segir í tilkynningu Samhjálpar.

Fíkniefna- og ölvunarakstur í nótt

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók þrjá ökumenn úr umferð í nótt, grunaða um akstur undir áhrifum fíkniefna, og tvo grunaða um ölvunarakstur.

Íslendingum ráðið frá að fara til Mumbai

Utanrikisráðuneytið ræður Íslendingum frá ferðalögum til Mumbai, eða Bombay, á Indlandi, í kjölfar árásanna á miðvikudag. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að það muni fylgjast grannt með framvindu mála.

Krefjast afsagnar stjórna SÍ og FME

Stjórn Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, krefst þess að stjórn Seðlabankans og yfirstjórn Fjármálaeftirlitsins segi tafarlaust af sér og axli þannig þá ábyrgð, sem þeim ber.

Ný gjaldeyrislög leggja hömlur á flutning fjár úr landi

Stjórnendur útflutningsfyrirtækja eiga yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi ef þeir skila ekki heim gjaldeyri, sem aflað er erlendis og hömlur verða lagðar á flutning fjármuna úr landi, samkvæmt frumvarpi, sem samþykkt var á Alþingi á fimmta tímanum í nótt og öðlast þegar gildi.

550 milljóna niðurskurður hjá RÚV

Skorið verður niður um 550 til 600 milljónir króna í rekstri Ríkisútvarpsins ohf. vegna aðstæðna í efnahagslífinu. Á milli tuttugu og þrjátíu starfsmönnum verður sagt upp störfum, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Vonar að eignir gangi upp í skuldirnar

„Sjóðurinn gerir ráð fyrir ýmsum breytum í sinni áætlun sem hann segir að sé ekki endilega víst að gangi eftir. Þeir taka þessa tölu sjálfsagt til að vera ekki um of bjartsýnir og gera kannski ráð fyrir hinu versta,“ segir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra.

Óvissa um umsamið lán OR vegna kreppu

Þróunarbanki Evrópu neitar að greiða lokagreiðslu umsamins láns til Orkuveitu Reykjavíkur (OR) þrátt fyrir að framkvæmdum sé lokið og úttekt hafi verið gerð á þeim. Lánið, sem tekið var vegna Hellisheiðarvirkjunar, greiðist eftir framvindu verksins. Vegna slæms efnahagsástands hér á landi vill bankinn ekki afhenda féð, rúmlega 6 milljarða króna.

Reyna að stela upp í fíkniefnaskuldir

Miklar annir hafa verið hjá auðgunarbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu við að rannsaka og upplýsa tíð innbrot og þjófnaði, að sögn Ómars Smára Ármannssonar yfirlögregluþjóns. Hann segir aukningu hafa orðið í innbrotum síðastliðna þrjá mánuði, einkum innbrotum í bíla, en tíðnin sveiflist upp og niður milli missera.

Staða tryggingafélaga ágæt

Staða tryggingar­félaganna er ágæt að mati Fjármálaeftirlitsins. Þetta kom fram í máli fulltrúa eftirlitsins þegar þeir mættu á fund viðskiptanefndar Alþingis í gær.

Tryggingarsjóðurinn efldur vegna Icesave

Leggja á Tryggingarsjóði innstæðueigenda til peninga svo sjóðurinn geti staðið skil á greiðslum til eigenda innlánsreikninga í íslensku bönkunum í útlöndum.

Svíarnir neita um afgreiðslu

Íslendingar, sem verða uppiskroppa með lyfin sín, geta farið með íslenska lyfseðla í apótek á Norðurlöndum og fengið lyfin sín en í Svíþjóð er það ekki hægt. Ástæðan er sú að þeir sem framvísa lyfseðli í apóteki í Svíþjóð verða að hafa sænska kennitölu til að geta fengið lyfin afgreidd.

Bankaleynd ekki skálkaskjól

„Hugtakið bankaleynd má ekki verða skálkaskjól,“ segir Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra.

Samgöngur til Eyja í algjöru uppnámi

Hætt hefur verið tímabundið við útboð á smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju og Flug­félag Vestmannaeyja er hætt að fljúga á milli lands og Eyja. Bæjarráð Vestmannaeyja lýsir yfir miklum vonbrigðum með stöðu mála.

Sjá næstu 50 fréttir