Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kompás í kvöld: Rannsókn á dularfullum dauðsföllum Valtýr Sigurðsson, sem tók við embætti Ríkissaksóknara um áramót, hefur snúið þeirri ákvörðun forvera síns að neita ættingjum tveggja látinna manna að sjá lögreglugögn um rannsókn á vofveiflegu fráfalli þeirra. 6.5.2008 11:44
Vilja að hverfisráð Miðborgar fjalli um Fríkirkjuvegarsamning Hollvinir Hallargarðsins hafa sent bréf til borgarstjórnar Reykjavíkur þar sem óskað er eftir því að hverfisráð Miðborgar fjalli um kaupsamning milli Novators og Reykjavíkurborgar um Fríkirkjuveg 11. 6.5.2008 11:12
ESB dregur Ítali fyrir rétt vegna ruslins í Napólí Evrópusambandið ætlar að stefna Ítalíu fyrir rétt vegna úrræðaleysis í sorphirðumálum í Napólí. Heilu fjöllinn af sorpi hafa safnast upp í borginni síðustu mánuði og nú hafa framkvæmdastjórarnir í Brussel ákveðið að kæra landið. 6.5.2008 11:06
Grýttu bjórflösku í átt að lögreglu Litlu mátti muna að bjórflaska hafnaði í höfði lögreglumanns í Vestmannaeyjum sem var að hafa afskipti af slagsmálum á veitingastað í Eyjum aðfaranótt 1. maí. 6.5.2008 10:35
Grunaðar um vændi á Egilsstöðum Tvær konur af erlendu bergi brotnar eru grunaðar um að stunda vændi á Egilsstöðum. Að sögn lögreglufulltrúa á Eskifirði er staðfestur grunur um að einhvers konar greiðslur hafi farið fram á milli þeirra og viðskiptavina þeirra. 6.5.2008 10:23
INTERPOL leitar barnaníðings Alþjóðalögreglan INTERPOL kallar eftir hjálp almennings við leit að manni sem hefur sést misnota börn á fjölmörgum myndum sem dreift hefur verið á Netinu. Myndirnar fundust í tölvu dæmds barnaníðings. 6.5.2008 10:19
Farþegum um Keflavíkurflugvöll fjölgaði um nærri fimm prósent Samtals komu 233 þúsund farþegar til landsins um Keflavíkurflugvöll á fyrstu fjórum mánuðum ársins samanborið við 222 þúsund farþega á sama tíma í fyrra. 6.5.2008 09:28
Nærri sex þúsund nýir bílar á fyrstu fjórum mánuðum Tæplega 5.900 bílar voru nýskráðir hér á landi fyrstu fjóra mánuði ársins og er það 1,3 prósenta aukning frá sama tímabili í fyrra. Þetta sýna nýir hagvísar Hagstofunnar. Síðastliðna 12 mánuði, til loka apríl, voru nýskráningar bíla tæplega 22.300 en það er 13,3 prósenta aukning frá fyrra tólf mánaða tímabili. 6.5.2008 09:20
Vöruskiptahalli rúmir 30 milljarðar þar sem af er ári Vöruskiptahalli í apríl reyndist 7,2 milljarðar króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands sem birtar eru í dag. 6.5.2008 09:13
Gunnar kærður fyrir að særa blygðunarsemi Í kæru stúlknanna tveggja á Selfossi er ekki kært fyrir kynferðislega misnotkun eða áreitni, heldur byggist kæran á 209. grein laga nr. 19/1940 þar sem vitnað er til særðrar blygðunarsemi að sögn Sigurðar Þ. Jónssonar, lögmanns séra Gunnars Björnssonar. 6.5.2008 08:30
Háskólakennari grunaður um alvarleg brot gegn börnum sínum Háskólakennari hefur verið í gæsluvarðhaldi frá 11. apríl vegna gruns um að hafa ítrekað nauðgað fjórum börnum sínum og vinkonu einnar dóttur sinnar. DV greinir frá þessu í dag. Þar kemur fram að elstu brotin hafi verið framin fyrir um fimmtán árum en þau yngstu í vetur. 6.5.2008 08:01
Eldur í sendiferðabíl Eldur kom upp í sendiferðabíl, þegar honum var ekið eftir Reykjanesbrautinni á móts við álverið í Straumsvík í gærkvöldi. Hann magnaðist hratt, en ökumaður og farþegi sluppu ómeiddir út úr bílnum. Eldur logaði glatt þagar slökkvilið kom á vettvang, en slökkvistarf gekk vel. 6.5.2008 07:54
Þyrlan lent við Landspítala Þyrla Landhelgisgæslunnar hélt laust fyrir klukkan fimm í morgun af stað til að sækja fársjúkan sjómann um borð í rússneskan togara, sem er djúpt suðvestur af landinu. Hún lenti við slysadeild Landspítalans klukkan tuttugu mínútur yfir átta. Maðurinn mun hafa verið með blæðandi magasár. 6.5.2008 07:10
Lögmaður krúnukúgarans segir málinu hvergi nærri lokið Giovanni di Stefano lögfræðingur hins íslensks ættaða krúnukúgara, Ian Strachan, efast um sanngirni sakfellingar skjólstæðings síns. Hann segir málinu á engan hátt lokið og einnig hafi hann fundið atriði sem gæti dregið athyglina frá niðurstöðu dómsins. Ian var á föstudaginn dæmdur í 5 ára fangelsi vegna fjárkúgunar. 5.5.2008 20:55
Himinn og haf milli faðmlaga og brota Gunnars Meint brot sóknarprestsins á Selfossi gegn tveimur unglingsstúlkum byrjuðu þegar þær voru í fermingarfræðslu og stóðu svo í nokkur ár. Réttargæslumaður stúlknanna segir þær hafa litið á kirkjuna sem griðastað og nú sé búið að eyðileggja það fyrir þeim. 5.5.2008 18:30
Vont að búa í borg sem setur ekki mannréttindi ofar öllu Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi og Sóley Tómasdóttir varaborgarfulltrúi Vg í borgarstjórn hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna áforma borgarstjóra og meirihluta Sjálfstæðisflokks að afturkalla eflingu mannréttindaskrifstofu borgarinnar. 5.5.2008 21:37
Skýrslutökur í lok næstu viku Skýrslutökur yfir meintum fórnarlömbum séra Gunnars Björnssonar sóknarprests í Selfosskirkju munu fara fram í Barnahúsi í lok næstu viku. Þetta staðfesti Þorbjörg Inga Jónsdóttir, réttargæslumaður annarrar stúlkunnar, í samtali við Vísi í kvöld. 5.5.2008 20:28
Segja Vegagerðina skulda 30-40 milljónir vegna Grímseyjarferju Forsvarsmenn Vélsmiðju Orms og Víglundar segja Vegagerðina skulda sér 30-40 milljónir vegna aðkomu fyrirtækisins að breytingum á Grímseyjarferjunni, Sæfara. Ummæli um fyrirtækið í greinargerð Vegagerðarinnar vegna ferjunnar segja þeir rógburð og dylgjur. Þetta kom fram í fréttum Sjónvarps nú í kvöld. 5.5.2008 19:10
Hefur ekki skipt um skoðun Vegna sjónvarpsfrétta undanfarna daga vill borgarstjóri árétta að það er ekki rétt túlkun á ummælum mínum að ég hafi í grundvallar atriðum skipt um skoðun varðandi verðlaunatillögu um þróun Vatnsmýrarinnar. 5.5.2008 17:41
Fimm sagt upp hjá HB Granda á Akranesi Öllum starfsmönnum síldar- og fiskimjölsverksmiðju HB Granda á Akranesi, fimm talsins, var sagt upp í morgun. Þetta kemur fram á heimasíðu Verkalýðsfélags Akraness. 5.5.2008 17:18
Organisti upplifði óþægindi stúlknanna vegna Gunnars „Já, það er rétt, ég var staddur í kirkjunni við æfingar með stúlknakórnum í þau skipti sem sóknarpresturinn, séra Gunnar Björnsson, leitaði á þær og olli það þeim miklu uppnámi, “ segir Jörg Sondermann, organisti við Selfosskirkju, í samtali við Vísi. 5.5.2008 17:12
Ómerkti ákvörðun héraðsdóms um þóknun til verjanda Hæstiréttur hefur ómerkt niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness í máli verjanda manns í fíkniefnamáli. 5.5.2008 17:11
Landsvirkjun gagnrýnir fund um Urriðafossvirkjun Svo virðist sem átök sem deilur Landsvirkjunar og andstæðinga virkjana í neðri hluta Þjórsár séu að harðna því nú hefur Landsvirkjun sent frá sér yfirlýsingu um að fulltrúi fyrirtækisins komi ekki á opinn fund um Urriðafossvirkjun í Þingborg í kvöld. 5.5.2008 17:00
Staðfestir gæsluvarðhald yfir stöðumælaþjófi Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir rúmenskum karlmanni sem grunaður er um þjófnað úr stöðumælum hér á landi ásamt félaga sínum. Skal hann sæta gæsluvarðhaldi fram á miðvikudag. 5.5.2008 16:45
Beiðni dagskrárstjóra RÚV um endurupptöku vísað frá Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur vísað frá beiðni þeirra Sigrúnar Stefánsdóttur og Þórhalls Gunnarssonar um að nefndin taki aftur fyrir synjun Ríkisútvarpsins á birtingu ráðningasamninga þeirra. 5.5.2008 16:35
Lést í umferðarslysi í Kömbunum Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi við Kamba í gær hét Lárus Kristjánsson til heimilis að Dynskógum 2 í Hveragerði. 5.5.2008 16:24
Áfram vandræði í Sultartangastöð Spennir í Sultartangastöð sem verið hefur bilaður frá því um áramót verður bilaður áfram um sinn eftir því sem segir í tilkynningu frá Landsvirkjun. 5.5.2008 16:12
Breiðavíkurnefndin mun fjalla um fleiri heimili Breiðavíkurnefndin mun rannsaka starfsemi fleiri heimila sem rekin voru á vegum ríkisins um miðja síðustu öld, samkvæmt erindisbréfi sem Geir. H. Haarde forsætisráðherra hefur sent Róberti Spanó, formanni Breiðavíkurnefndarinnar. 5.5.2008 15:59
Þarf að greiða bætur fyrir að hafa ráðið sig til keppinautar Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann til þess að greiða fyrrverandi vinnuveitanda sínum 1,3 milljónir króna í févíti fyrir að hafa brotið gegn ráðningarsamningi og ráðið sig til keppinautar vinnuveitandans innan tiltekins tíma. Vinnuveitandinn fór fram á rúmar 29 milljónir króna í bætur. 5.5.2008 15:57
Áfram í gæsluvarðhaldi og farbanni vegna Keilufellsmáls Fimm menn, sem grunaðir eru um að hafa ráðist með vopnum og ofstæki að sjö öðrum í húsi við Keilufell 22. mars síðastliðinn, hafa verið úrskurðaðir 5.5.2008 15:31
Fimm til sjö prósenta hækkanir í lágvöruverslunum í apríl Verð á vörukörfu Alþýðusambands Íslands hækkaði um fimm til sjö prósent í lágvöruverðsverslunum á milli annarrar og fjórðu viku í apríl. Þetta kemur fram á heimasíðu ASÍ. 5.5.2008 15:26
Bláu tunnurnar vinsælar í borginni Hinar svokölluðu bláu ruslatunnur sem eingöngu eru notaðar undir pappír njóta sífellt meiri vinsælda í borginni og eru nærri 1700 slíkar nú komnar í umferð. 5.5.2008 15:07
Stúlkan komin í leitirnar Sex ára stúlka sem leitað var að við Vífilsstaðavatn í Garðabæ nú eftir hádegið fannst heil á húfi um hálfþrjúleytið. 5.5.2008 14:36
Leitað að sex ára stúlku við Vífilsstaðavatn Lögregla og björgunarsveitir hafa verið kallaðar að Vífilsstaðavatni í Garðabæ til þess að leita að sex ára stúlku sem týndist þar. 5.5.2008 14:09
Hyggst ræða við Vegagerðina um aðbúnað í Kömbunum Sýslumaðurinn á Selfossi hyggst ræða við Vegagerðina um aðbúnað í Kömbunum. Karlmaður á sjötugsaldri lést þegar bíll fór út af veginum þar í gær. Þetta er í þriðja skiptið sem bíll fer út af þar. 5.5.2008 13:59
Ríkisstjórnin lofar BSRB fundi „Ég fékk bæði viðbrögð frá forsætisráðherra og fjármálaráðherra og fundur er ráðgerður með forsvarsmönnum BSRB og ríkisstjórninni í þessari viku,“ 5.5.2008 13:50
Vilja ræða skipulag Vatnsmýrar vegna orða borgarstjóra Minnihlutinn í borgarstjórn hefur óskað eftir því að óvissa um skipulag Vatnsmýrarinnar verði rædd utan dagskrár á fundi borgarstjórnar á morgun. 5.5.2008 13:39
Meint kynferðisafbrot ekki hjá Barnaverndarstofu Mál stúlknanna tveggja sem hafa kært prestinn á Selfossi fyrir kynferðislega áreitni er ekki til meðferðar á Barnaverndarstofu, að sögn Braga Guðbrandssonar forstjóra. 5.5.2008 13:39
Á annan milljarð í skólalóðir Verja á 1,6 milljörðum króna í að bæta aðstöðu á lóðum grunnskóla í borginni á næstu fimm árum samkvæmt áætlun sem framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar hefur sett fram. 5.5.2008 12:58
Ók mokstursvél á geymsluskúr og eyðilagði Geymsluskúr í sandnámu í landi Hrauns í Ölfusi er ónýtur eftir að mokstursvél var ekið á hann. 5.5.2008 12:52
SGS vill fund með ríkisstjórn líkt og BSRB Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands óskaði í dag eftir því við forsætisráðherra að komið yrði á sérstökum fundi vegna samningamála sambandsins við ríkið. 5.5.2008 12:33
Fundu hvítt duft í klefa á Litla-Hrauni Um tíu grömm af hvítu dufti fundust við klefaleit á Litla-Hrauni í liðinni viku. 5.5.2008 12:24
Tveir bílar hafa áður farið út af á sama stað í Kömbunum Bifreiðar hafa tvisvar áður farið út af veginum í Kömbunum þar sem banaslys varð í gær. 5.5.2008 12:16
Fjöldaganga gegn umferðarslysum á fimmtudag Efnt verður til fjöldagöngu gegn umferðarslysum annað árið í röð vegna fjölda áskorana. Fimmtán létust og 195 slösuðust alvarlega í umferðinni á síðasta ári. 5.5.2008 12:15
Landeigendur langflestir andsnúnir Urriðafossvirkjun Allir jarðaeigendur nema einn á áhrifasvæði Urriðafossvirkjunar á austurbakka Þjórsár hafa undirritað yfirlýsingu þar sem þeir lýsa sig andsnúna því að virkjunin verði byggð. 5.5.2008 12:04