Innlent

Grunaðar um vændi á Egilsstöðum

Frá Egilsstöðum
Frá Egilsstöðum
Tvær konur af erlendu bergi brotnar eru grunaðar um að stunda vændi á Egilsstöðum. Að sögn lögreglufulltrúa á Eskifirði er staðfestur grunur um að einhvers konar greiðslur hafi farið fram á milli þeirra og viðskiptavina þeirra.

Höfð voru afskipti af konunum tveimur á laugardagskvöld en hegðun þeirra hafði vakið athygli vakthafandi lögreglumanna. Konurnar voru færðar á lögreglustöð og á sunnudeginum var ítarleg skýrsla tekin af þeim. Lögregluembættin á Egilsstöðum og Eskifirði fara saman með rannsókn málsins. Að sögn Elvars Óskarssonar, lögreglufultrúa hjá rannsóknardeildinni á Eskifirði, hafa konurnar búið hér á landi í nokkur ár og hafa hér atvinnu. Ekki liggur yfir hvort þær hafa stundað þessa iðju lengi.

Samkvæmt lögum er vændi óheimilt er þriðji aðili hefur hag af vændi og þá er einnig óheimilt að auglýsa vændi að eða hafa það að aðalatvinnu. Elvar segir að segir að svo virðist sem ekkert af þessum lagaákvæðum hafi verið brotin en lögregla muni rannsaka málið áfram og kanna hvort eitthvað refsivert er á ferð. „Við skoðum einnig hverjir eru að nýta sér þetta og það er staðreynd að við náum alltaf einhverjum nöfnum," segir Elvar.

Aðspurður hvort konurnar hafi játað að hafa stundað vændi segir Elvar að staðfestur grunur sé um að einhvers konar greiðslur hafi farið manna á milli. Í málum sem þessum geti það verið peningar en einnig eitthvað annað eins og til dæmis matur eða flugmiðar eða slíkt.

Aðspurður segir Elvar að ætla megi að konur leiðist út í vændi til þess að drýgja tekjurnar en lögreglan hafi við skýrslutöku bent konunum tveimur á ákveðin félagsleg úrræði. Hann segir rannsókn málsins halda áfram og í framhaldinu verði ákveðið hvort málinu verði vísað til ákæruvaldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×