Staðfestir gæsluvarðhald yfir stöðumælaþjófi 5. maí 2008 16:45 MYND/KK
Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir rúmenskum karlmanni sem grunaður er um þjófnað úr stöðumælum hér á landi ásamt félaga sínum. Skal hann sæta gæsluvarðhaldi fram á miðvikudag. Í gæsluvarðhaldsúrskurðinum segir að mennirnir hafi komið nýlega til landsins og hafi sérhæft sig í þjófnaði úr stöðumælum. Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli gaf lögreglu þær upplýsingar að menn þessir hefðu haft meðferðis ýmis verkfæri þegar þeir komu til landsins. Lögreglan fylgdist með ferðum mannanna en þeir fóru á milli verslana í miðbænum og skiptu smámynt. Þeir voru svo handteknir við þjófnað úr stöðumæli við Garðastræti síðastliðinn miðvikudag og við húsleit á dvalarstað mannanna fann lögregla ýmis verkfæri, slípirokk, skurðarskífur, lítinn slaghamar og meitil, ásamt fjármunum. Þá fannst einnig stafræn myndavél en í henni voru margar myndir sem teknar höfðu verið af stöðumælum víðs vegar um Reykjavík. Hinn grunaði neitar að tjá sig um sakargiftir en félagi hans hefur viðurkennt að hafa brotist inn í stöðumælinn við Garðarstæti og segir hinn ekkert hafa komið nálægt því.
Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira