Fleiri fréttir

Karlar ræða jafnréttismál

Árni Magnússon félags­málaráðherra hefur boðað til karlaráðstefnu um jafnréttismál milli klukkan níu og tólf í Salnum í Kópavogi í dag.

Eitt til tvö banaslys á ári

"Kerfið býður ekki upp á það að haldið sé utan um vélsleðaslys því þau eiga sér engan slysaflokk," segir Kjartan Benediktsson, umferðarfulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Umferðarstofu. "Samkvæmt því sem við komumst næst, sem höfum verið að rannsaka þetta, eru þetta svona um eitt til tvö banaslys á ári ef við tökum meðaltalið af síðustu tíu árum.

Frjálsar íþróttir á hærra plan

Frjálsíþrótta- og sýningarhöllin í Laugardal var formlega tekin á miðvikudag. Frjálsíþróttahöllin er samtengd Laugardalshöllinni og ljóst er að þar er að finna eina bestu aðstöðu til íþróttaiðkunar hér á landi.

Afbrýðisamur barði mann

Rúmlega tvítugur Mosfellingur var í gær dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að berja mann, sem var nýbyrjaður með fyrrum kærustu árásarmannsins. Fimm mánuðir af refsingunni voru skilorðsbundnir í þrjú ár, en maðurinn þarf að auki að greiða rúmar 360 þús­und krónur í miskabætur og máls­kostnað.

Thelma er kona ársins

Thelma Ásdísardóttir var í gærkvöld valin kona ársins í vali tímaritsins Nýs lífs, þegar valið fór fram í fimmtánda sinn. Í bókinni Myndin af pabba, sem Gerður Kristný skrifar, lýsir Thelma áralangri misnotkun af hendi föður hennar.

Frumvarp auðveldar breytingar á RÚV

Viðskiptaráðherra vill sérstök ákvæði um hlutafélög í eigu ríkisins inn í hlutafélagalög. Slík ákvæði geta breytt stöðu ríkisfyrirtækja og eru líkleg til þess að auðvelda stjórnvöldum að breyta Ríkisútvarpinu í hlutafélag.

Sex Íslendingar smitast á árinu

Alnæmissamtökin á Íslandi halda upp á Alþjóðlega alnæmisdaginn í dag en einkunnarorð dagsins að þessu sinni eru hreinskilni og víðsýni. Sex Íslendingar hafa greinst HIV-smitaðir á landinu það sem af er þessu ári en þeim hefur farið fækkandi hin síðari ár sem greinast jákvæðir. Er það öfug þróun við það sem gerist erlendis þar sem lítilsháttar aukning hefur orðið á sama tíma.

Valdabrölt á stjórnarheimilinu

Í síðustu viku kom í ljós að mikil átök eru á milli stjórnarflokkanna um hver ætti að stjórna Íbúðalánasjóði. Sjóðurinn, sem heyrir undir félagsmálaráðuneytið, er eina fjármálastofnunin sem framsóknarmenn stjórna. Nú vilja sjálfstæðismenn að sjóðurinn heyri undir fjármálaráðuneytið.

Vinna kauplaust og svelta heilu hungri

Fimm brasilískir verkamenn gáfu sig fram við Trésmíðafélag Reykjavíkur í gær eftir að hafa unnið kauplaust í tvo mánuði. Magnús Guðmundsson hjá Nýgifs, fyrirtækinu þar sem mennirnir unnu, segist ekki vera þrælahaldari.

Björgólfur lætur af störfum

Björgólfur Jóhanns­­son, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, mun láta af störfum um áramótin og mun Aðalsteinn Helgason taka við starfi hans.

Skoða álver Alcoa í Kanada

Tólf fulltrúar á vegum verkefnastjórnar sem heldur utan um staðarvalsrannsóknir vegna hugsanlegs álvers á Norðurlandi héldu til Kanada síðastliðinn þriðjudag. Tilgangur ferðarinnar er meðal annars að skoða álver Alcoa í nágrenni Montreal og ræða við fulltrúa fyrirtækisins um nýtt álver á Íslandi.

Þorski er fimmtungur aflans

Um 40 prósent af afla fiskiskipa Evrópusambandsins sem fá að veiða karfa í íslenskri lögsögu er þorskur eða ufsi að því er segir á vef Landssambands íslenskra útvegsmanna.

Bræðslan ræst eftir langt stopp

Bræðslan á Eskifirði var ræst í dag eftir fjögurra mánaða vinnslustöðvun, þegar tvö fiskiskip lönduðu fyrstu kolmunnaförmunum. Ráðamenn Eskju líta björtum augum til komandi vertíðar, ekki síst eftir að fregnir bárust af loðnu í gær.

Brasilíumenn krefjast launa

Brasilískir verkamenn hafa leitað á náðir Samiðnar til að innheimta tveggja mánaða ógreidd laun hjá fyrirtækinu Nýgifs. Þeir segjast hafa þurft að leita til íslenskra kollega til að brauðfæða sig á tíðum. Eigandi Nýgifs, sem réð þá hingað á grundvelli þjónustusamninga, segir að þetta sé haugalygi.

Björgólfur til Icelandic

Björgólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar og formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, hefur verið ráðinn til Icelandic Group. Hann tekur við starfi framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar 1. janúar næstkomandi, um leið og hann lætur af störfum hjá Síldarvinnslunni.

Búðarhnupl í Reykjavík

Lögreglan í Reykjavík hefur þurft að skipta sér að nokkrum tilfellum búðarhnupls í dag. Jólatíminn er afar vinsæll hjá búðarhnuplurum, en samkvæmt lögreglunni eru slíkir þjófar á öllum aldri og af báðum kynjum.

Leikskólinn Reynisholt opnar í Grafarholti

Nýr leikskóli sem kennir lífsleikni og jóga opnaði í Grafarholti í dag. Leikskólinn hefur hlotið nafnið Reynisholt. Markmið skólans er að starfsmenn verði meðvitaðir um aðferðir sem beita megi til að draga úr streitu og hraða í umhverfinu og skapa traust og öryggiskennd meðal barna og fullorðinna.

Thelma útnefnd kona ársins

Thelma Ásdísardóttir, var útnefnd kona ársins af tímaritinu Nýju lífi við hátíðlega athöfn sem fram fór í Iðnó í dag. Þetta er í fimmtánda sinn sem Nýtt líf útnefnir konu ársins á Íslandi.

Lögreglan lýsir eftir konu

Lögreglan lýsir eftir Guðnýju Heiðu Magnúsdóttur. Guðný er 164 sm á hæð, með axlarsítt svart hár. Hún var klædd í bláar gallabuxur, svartan Metallica-bol og græna hettuúlpu síðast þegar hún sást en hún fór heiman frá sér laust eftir miðnætti í fyrradag. Þeir sem geta gefið einhverjar upplýsingar vinsamlegast látið lögregluna í Reykjavík vita í síma 444-1000.

Dæmdur fyrir að falsa sjúkraskýrslur og læknisvottorð

Karlmaður var fundinn sekur í Héraðsdómi Reykjaness í dag um að hafa falsað sjúkraskýrslur, læknisvottorð og reikninga frá erlendum sjúkrahúsum fyrir fjórtán árum. Málið hafði áður fyrnst hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.

Gengishækkanir éta upp tekjurnar

Fjórða til fimmta hver króna sem Hjartavernd hefur fengið í styrki og greiðslur frá útlöndum síðustu ár hefur tapast vegna þess hversu dýr krónan er orðin. Þetta er ástæðan fyrir því að segja þarf upp um það bil helmingi starfsmanna segir Vilmundur Guðnason forstöðulæknir.

Moldóvi dæmdur í farbann

Hæstiréttur hefur dæmt Moldóva í farbann til 7. desember næst komandi. Maðurinn var færður til yfirheyrslu hjá lögreglu 15. nóvember eftir að í ljós kom að hann ferðaðist hingað frá Færeyjum á fölsuðu grísku vegabréfi.

Björgólfur hættir

Björgólfur Jóhannsson, formaður LÍÚ, lætur af starfi framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar í Neskaupstað um áramót. Aðalsteinn Helgason hefur verið ráðinn í hans stað en hann er nú framkvæmdastjóri þróunarsviðs Samherja.

Fjórfalt dýrara þar sem mestu munar

Bankaþjónusta er allt að fjórfalt dýrari í einni bankastofnun en annarri samkvæmt verðkönnun Neytendasamtakanna og SFR. Mesti hlutfallslegi munurinn er á veðbókarvottorðum. Þau kosta 400 krónur hjá Íslandsbanka en 1.600 krónur hjá SPRON.

Flestir skiluðu auðu

Hið fyrsta af þremur samræmdum stúdentsprófum var lagt fyrir nemendur í framhaldsskólum landsins í morgun en undirtektir nemenda voru dræmar. Tveir af hverjum þremur nemendum sem tóku prófið í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi skiluðu auðum prófblöðum.

Svör ráðherra ekki fullnægjandi

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur ekki gefið fullnægjandi svör við því hvort Byggðastofnun haldi áfram starfsemi, segir formaður Frjálslynda flokksins.

Reyndu að smygla hálfu tonni kjöts

Fjórtán skipverjar á tveimur íslenskum fiskiskipum sem voru að koma frá Færeyjum hafa viðurkennt að eiga rúmlega hálft tonn af fugla-, nauta- og svínakjöti sem lögregla og tollverðir fundu við komu skipanna til Eskifjarðar.

Kókaínsmyglari svikinn

Karlmaður um þrítugt var dæmdur í fimm mánaða fang­elsi fyrir fíkni­efna­smygl í Héraðs­dómi Reykjaness í gær. Maðurinn faldi innvortis 140 grömm af efni sem hann taldi vera kókaín og var gripinn með það í Leifsstöð í nóvember í fyrra við komuna til landsins frá Amsterdam í Hollandi.

Íslenskir togarar mæta hörku norsku strandgæslunnar

Rússar virðast ætla að komast upp með að hylja nöfn og númer á togurum sínum í Barentshafi, svo að norska strandgæslan beri ekki kennsl á þá, og hún virðist ekkert ætla að aðhafast. Samtímis hóta Noðrmenn íslenskum skipum fullri hörku og íslensk stjórnvöld draga enn á langinn að kæra Norðmenn til Alþjóðadómstólsins fyrir að taka sér einhliða yfirráð á Svalbarðasvæðinu, og hygla einum en hóta öðrum.

Stefnt að því að kalla um 20.000 bandaríska hermenn heim frá Írak

Bandaríkjastjórn stefnir að því að kalla tuttugu þúsund hermenn heim frá Írak eftir þingkosningar í landinu um miðjan desember. Bush forseti segir að vilji Íraka muni ráða því hvort bandarískum hermönnum í landinu verði fækkað eða fjölgað á næstu mánuðum.

Ráðherra bregðist við vanefndum

Öryrkjabandalag Íslands hefur stefnt íslenska ríkinu fyrir að hafa ekki efnt samkomulag sem Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, og Garðar Sverrisson þáverandi formaður gerðu í marsmánuði árið 2003. Með samkomulaginu átti að koma til móts við þá sem verða öryrkjar snemma á lífsleiðinni og fól það í sér að grunnlífeyrir yngstu öryrkjanna myndi nær tvöfaldast.

Þrír handteknir vegna fíkniefnamisferlis á Ísafirði

Þrír voru handteknir á Ísafirði í morgun vegna vörslu fíkniefna og tækja til neyslu. Efnin, 18 grömm af ætluðum kannabisefnum, fundust eftir að lögreglan stöðvaði bifreið karlmanns og konu sem voru að koma frá Reykjavík. Þriðji aðilinn var handtekinn eftir húsleit í tveimur íbúðum á Bolungarvík.

Framkvæmdir við hjúkrunarheimilið á áætlun

Framkvæmdir við hjúkrunarheimilið Hlíð á Akureyri ganga samkvæmt áætlun. Uppsteypu er nú lokið og er unnið við að loka þaki en áætlað er að byggingin verði útibyrgð fyrir áramót. Í

Herinn vill kaupa þjónustu

Fulltrúar bandaríska hersins og herspítalans á Keflavíkurflugvelli hafa frá því í sumar margsinnis komið að máli við ráðamenn Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja til að kynna sér aðstöðu og kanna hvaða heilbrigðisþjónustu mætti kaupa af henni.

Kosningabandalag líklegt á Ísafirði

Allt útlit er fyrir að Samfylkingin, Vinstri- grænir og Frjálslyndir og óháðir bjóði fram saman á Ísafirði í bæjarstjórnarkosningum í vor. Samfylkingarmenn og frjálslyndir og óháðir hafa þegar samþykkt sameiginlegt framboð en félagsfundur Vinstri - grænna á Ísafirði tekur afstöðu til þess í kvöld, en það voru þeir sem höfðu frumkvæði að myndun kosningabandalagsins.

Ekki vitað um orsök þess að byggingakrani valt í Kórahverfi

Ekki liggur enn fyrir hvað olli því að lítill byggingakrani valt við nýbyggingu í Kórahverfi í Kópavogi í gær, en Vinnueftirlitið og lögregla rannsaka málið. Svo vel vildi til að engin var nærri þegar kraninn féll, en hann er talinn ónýtur.

Skautasvelli komið upp á Ísafirði?

Hugsanlegt er að skautasvelli verði komið upp á Ísafirði í nánustu framtíð. Íþrótta- og tómstundafulltrúa Ísafjarðarbæjar hefur verið falið að kanna möguleika á slíkri framkvæmd eftir að bæjarbúi lagði það til á fundi íþrótta- og tómstundanefndar Ísafjarðarbæjar á dögunum.

Bensínverð hækkar

Bensín hækkaði á sjálfsafgreiðslustöðvum í gær um um það bil krónu á lítrann eftir að stóru olíufélöginn hækkuðu bensínveðrið um álíka upphæð í fyrardag. Díselolían fylgir eftir en er yfirelitt um krónu ódýrari en bensín.

Rjúpnaveiðitímabilinu lýkur í dag

Síðasti rjúpnaveiðidagurinn er í dag og lýkur veiðitímanum á miðnætti, en veiðarnar stóðu fram undir jól, áður en rjúpnaveiðibannið tók gildi fyrir tveimur árum.

Rjúpnaskytta gekkst undir langa aðgerð í gærkvöldi

Rjúpnaskyttan, sem fékk skot úr eigin byssu í aðra höndina, þegar hann var að veiðum ofan við Reyðarfjörð í gær, gekkst undir langa aðgerð á Landsspítalanum í gærkvöldi. Hann féll á hálku og missti byssuna, en við það hljóp skot úr henni í hönd mannsins.

Byggðastofnun láni á ný án fjárframlags

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra gefur fyrirmæli um að Byggðastofnun hefji útlán á ný. Ekki er gert ráð fyrir framlögum ríkisins til stofnunarinnar á þessu ári þrátt fyrir að eigið fé sé undir löglegum mörkum. Hlutverki hennar verður breytt.

Pálmatré fóru upp með rótum

"Það lágu ljósastaurar og pálmatré með rótum hingað og þangað," segir Birna Guðjónsdóttir sem búsett er ásamt eiginmanni og tveimur stúlkum á Santa Brigida nálægt Las Palmas á Kanaríeyjum. Hún var akandi á heimleið frá Playa del Ingles í fyrrinótt þegar hitabeltisstormurinn Delta gekk yfir.

Sjá næstu 50 fréttir