Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ítalir afneita upprunanum Ítalskir fjölmiðlar fara háðulegum orðum um frammistöðu landsliðs síns í knattspyrnu í gær. Íslendingar upplifðu sögulega stund, en eins og fréttamaður Stöðvar 2 komst að vilja Ítalir búsettir hér á landi varla kannast við að vera Ítalir. 19.8.2004 00:01
Margir fóru sökum troðnings "Þetta var alveg á grensunni hjá okkur, ég efast um að við förum aftur í svona framkvæmdir á næstunni," segir Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, um áhorfendafjöldann á landsleik Íslands og Ítalíu á miðvikudagskvöld. Rúmlega tuttugu þúsund manns sóttu leikinn, sem er met, en margir kusu að hverfa frá sökum troðnings. 19.8.2004 00:01
Söfnun lokið á Patreksfirði "Við dæmum þetta sem svo að þetta sé komið, það vantar einhverja örfáa þúsundkalla upp á," segir Geir Gestsson sem efndi til samskota á Patreksfirði til að fjármagna sendi til að ná útsendingum Skjás eins. Vesturbyggð lögðu 200 þúsund krónur til í söfnunina og var þá nærri því búið að safna þeim 900 þúsund krónum sem stefnt var að. 19.8.2004 00:01
Bæjarstjóri neitar sjónhverfingum Bæjarstjóri Seltjarnarness frábiður sér ásakanir um sjónhverfingar við kynningu á nýju skipulagi á Seltjarnarnesi. Andstæðingar íbúðablokka segja of lítið gert úr þeim á kynningarmyndum. 19.8.2004 00:01
Götumynd Aðalstrætis gjörbreytt Götumynd Aðalstrætis, elstu götunnar í Reykjavík, er gjörbreytt og nýja hótelið þar er að taka á sig mynd. Fréttamaður Stöðvar kynnti sér framkvæmdirnar í dag, meðal annars í kjallara hússins þar sem talið er að rústir landnámsbæjar Ingólfs Arnarsonar sé að finna. 19.8.2004 00:01
Ráðstefna um málefni daufblindra Félagsleg einangrun er eitt erfiðasta vandamálið sem daufblindir eiga við að stríða. Norræn ráðstefna um málefni þeirra er nú haldin í Reykjavík. 19.8.2004 00:01
Ráðstefna um heilsuhagfræði Alþjóðleg ráðstefna um heilsuahagfræði mun fara fram í Reykjavík dagana 20. og 21. ágúst þar sem á annað hundrað vísindamanna frá fjölda þjóða kynna nýjustu rannsóknir sínar á þessu sviði. 19.8.2004 00:01
5. sæti í samkeppnishæfni Ísland er í fimmta sæti yfir samkeppnishæfustu ríki veraldar á nýjum lista svissnesku rannsóknarstofnunarinnar IMD sem kynntur var í gær. Ofar eru Bandaríkin, Singapúr, Kanada og Ástralía. Ísland er raunar samkeppnishæfasta ríki Evrópu samkvæmt listanum. 18.8.2004 00:01
Ekki inn fyrir lögsögu Norðmanna Íslensku skipin þrjú sem eru við síldveiðar á Svalbarðasvæðinu fara ekki inn fyrir lögsögu Norðmanna á nýjan leik fyrr en skýr skilaboð þess efnis berast frá útgerðarfélögum. Þetta segir Markús Jóhannesson, fyrsti stýrimaður á Vilhelm Þorsteinssyni EA, eins skipanna þriggja. 18.8.2004 00:01
Hjón villtust á Fimmvörðuhálsi Björgunarsveitir á Suðurlandi voru sendar af stað í gærkvöld eftir að neyðarlínunni barst símtal frá þýskum hjónum sem óskuðu aðstoðar upp á Fimmvörðuhálsi. Þau sögðust villt sökum mikillar þoku á Hálsinum og óskuðu aðstoðar við að komast í öruggt skjól. 18.8.2004 00:01
Skorað á Halldór að þyrma Siv Stjórn fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Hafnarfirði hefur skorað á formann Framsóknarflokksins og þingflokk framsóknarmanna að taka tillit til þess að oddviti framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi hafi flest atkvæði á bak við sig af þingmönnum flokksins, þegar gerðar verða breytingar á ráðherraliði flokksins þann 15. september næstkomandi. 18.8.2004 00:01
Ísland - Ítalía í kvöld Í dag, 18. ágúst, er 218 ára afmæli Reykjavíkurborgar. Stefnt er að því að fylla Laugardalsvöll í tilefni dagsins en landslið Ítala sækir okkar menn heim í kvöld. 18.8.2004 00:01
Magnús hlýtur lýðheilsuverðlaunin Magnús Scheving hlýtur Norrænu lýðheilsuverðlaunin í ár en þau eru veitt einstaklingi, samtökum eða stofnun sem hafa lagt fram mikilvægan skerf til að bæta lýðheilsu á Norðurlöndum. 18.8.2004 00:01
Vopn notuð í fíkniefnaviðskiptum Vopnabúr sem lögregla í Hafnarfirði og Reykjavík fann við húsleit í fyrrinótt var notað sem greiðsla í fíkniefnaviðskiptum. 18.8.2004 00:01
Konan á gjörgæsludeild Kona á sjötugsaldri, sem var í fólksbíl sem lenti í hörðum árekstri við jeppa við Kotströnd á Suðurlandsvegi um Verslunarmannahelgina, er enn á gjörgæsludeild en er komin úr öndunarvél. Karlmaður á sama aldri, sem einnig var í fólksbílnum, hefur hins vegar verið útskrifaður af sjúkrahúsi. Hann var einnig í öndunarvél fyrst eftir slysið. 18.8.2004 00:01
Árni víki úr ríkisstjórn Formaður fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Hafnarfirði segir að Árni Magnússon eigi að víkja þegar ráðherrum Framsóknarflokksins verður fækkað um einn þann fimmtánda september. Sjálfur segir Árni að ákvörðunin sé þingflokksins og hann muni hlíta henni þegar þar að kemur. 18.8.2004 00:01
Skólasókn 16 ára aldrei betri Skólasókn 16 ára ungmenna hefur aldrei verið betri hér á landi en á síðasta ári. Heldur fleiri stúlkur en drengir eru í skóla og er munurinn mestur á Austurlandi. 18.8.2004 00:01
Tíundi hver lögreglumaður er kona Nærri einn af hverjum tíu lögreglumönnum er kona og hefur hlutfall lögreglumenntaðra kvenna aukist verulega undanfarin ár. Fyrir sjö árum, eða árið 1997, var hlutfall lögreglumenntaðra kvenna 4,3%, en í upphafi síðasta árs voru 75 konur starfandi í lögreglunni á móti 728 körlum, eða 9,3%. 18.8.2004 00:01
Lítil áhrif á síldarvertíðina Brotthvarf íslenskra skipa af Svalbarðasvæðinu hefur lítil áhrif á síldarvertíðina í ár því síldin er á leið inn í efnahagslögsögu Norðmanna, þar sem þeir sjálfir veiða hana. Markmið þeirra með aðgerðum sínum undanfarið er því ekki að vernda síldarstofninn, segir framkvæmdastjóri LÍÚ. 18.8.2004 00:01
Auðveldara að skipta um kennitölu Norrænu samstarfsráðherrarnir ákváðu á fundi sínum, sem haldinn var á Íslandi í síðustu viku, að endurskoða norræna samninginn um þjóðskrá. Markmiðið með endurskoðuninni er það að koma á samstarfi um rafræn skipti á upplýsingum úr þjóðskrá, þannig að auðveldara verði fyrir Norðurlandabúa að fá nýja kennitölu þegar þeir flytjast á milli Norðurlandanna. 18.8.2004 00:01
Tvær milljónir í bætur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag útgerðarfélagið Vísi til að greiða manni sem slasaðist við löndum úr skipi félagsins tæpar tvær milljónir króna í bætur. Slysið varð í Grindavíkurhöfn árið 1999 og meiddist maðurinn á hendi. 18.8.2004 00:01
Aðsóknarmetið verður slegið Aðsóknarmetið að knattspyrnuleik á Íslandi verður slegið í kvöld, það er ljóst. Nú þegar er búið að selja vel yfir 18000 miða á vináttulandsleik Íslands og Ítalíu á Laugardalsvelli, en fyrra met var sett í Evrópuleik Vals og portúgalska liðsins Benfica, en þá voru rétt um 18000 manns á vellinum og setið og staðið alls staðar sem hægt var að drepa niður fæti. 18.8.2004 00:01
Hjólastólar á Menninganótt Sérstaklega verður hugað að aðgengi fyrir fatlaða og hreyfihamlaða á Menningarnótt Reykjavíkur um næstu helgi með því að lána þeim sem þurfa, hjólastóla. Höfuðborgarstofa og Eirberg ehf hafa náð samkomulagi þess efnis. 18.8.2004 00:01
Styrktarreikningur fyrir börn Sri Söfnun er hafin til styrktar börnun Sri Rhamawati sem myrt var af barnsföður sínum og fyrrverandi sambýlismanni í byrjun júlí. Sem kunnugt er, lætur Sri eftir sig þrjú börn, sem dveljast nú hjá móðursystur sinni. 18.8.2004 00:01
Heimildarmynd um heri Tveir sjónvarpsmenn frá danska hernum hafa verið hér á landi undanfarna daga við tökur á heimildamynd um heri á Norðurlöndum. Þeir hafa m.a. heimsótt Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli, dómsmálaráðuneytið, utanríkisráðuneytið og Landhelgisgæsluna. 18.8.2004 00:01
Fálkinn styrkir fálka Þjónustu- og tæknifyrirtækið Fálkinn ætlar að veita tveimur og hálfri milljón króna til styrktar villtum dýrum í hremmingum. Þetta er gert í tilefni af aldarafmæli fyrirtækisins. Samningur milli fyrirtækisins og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins var undirritaður laust fyrir klukkan fimm og verður komið upp aðstöðu til þjálfunar og fleira í því skyni.. 18.8.2004 00:01
Uppfærslan boðin innanlands Risastór hugbúnaðarviðbót við Windows XP stýrikerfið verður boðin sem innanlandsniðurhal. Viðbótin bætir öryggi stýrikerfisins og virkni Internet Explorer vafrans þannig að notendur geta slökkt á auglýsingagluggum. Þá er að ljúka íslenskun á uppfærslunni, en henni má hlaða niður síðar. 18.8.2004 00:01
Ráðherramálið flokknum erfitt Hópur kvenna í Framsóknarflokki þrýstir mjög á að hlutur kvenna í ráðherraliði flokksins verði ekki skertur. Vísað er í lög flokksins sem kveða á um 40 prósenta hlutfall kvenna. Formaðurinn hefur rætt við þingmenn flokksins og ákvörðunar að vænta fljótlega. 18.8.2004 00:01
Hyggst beita Impregilo dagsektum Staðfest hefur verið að ennþá er tvímennt í svefnskálum ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo þrátt fyrir að herbergisstærð sé undir 8 fermetrum. Slíkt er skýlaust brot á reglugerðum og hyggst Heilbrigðisnefnd Austurlands leggja á sektir ef úrbætur verða ekki gerðar fljótlega. 18.8.2004 00:01
Milljarða verðmæti í húfi Íslensk stjórnvöld undirbúa nú málaferli á hendur norskum stjórnvöldum vegna yfirstandandi deilu þjóðanna um aðgang og fiskveiðirétt innan lögsögu Svalbarða. Núverandi deila snýst þó fyrst og fremst um aðgang íslenskra skipa að svæðinu og telja Íslendingar að Norðmenn brjóti þann stofnsamning sem gerður var um Svalbarða árið 1920. 18.8.2004 00:01
Engir demantar í Eyjum Sigurður Steinþórsson prófessor í jarðfræði í Háskóla Íslands segir að fréttir um demantafund í Vestmannaeyjum séu sennilega grín. "Vestmannaeyingar eru svo gamansamir," segir hann. 18.8.2004 00:01
Ríkið hefur þurft að borga bætur Ríkissjóður hefur þurft að greiða bætur vegna mistaka við útgáfu veðbókarvottorðs. Ekki var getið um á vottorðinu að jörðin væri óðalsjörð. Sýslumaðurinn í Reykjavík getur ekki útilokað að á embættið hans gætu fallið ábyrgðir vegna veðsetninga á óðalsjörðinni Brautarholti á Kjalarnesi. 18.8.2004 00:01
Ákærður fyrir þrettán brot Tuttugu og fjögurra ára maður sem meðal annars er ákærður fyrir rán í verslun á Laugarvatni sagðist við aðalmeðferð í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær ekki hafa beitt ofbeldi eða hótunum þegar hann framdi ránið. Maðurinn er einnig ákærður fyrir fjölda brota svo sem bílþjófnaði, fjársvik, innbrot, skjalafals, umferðarlagabrot og fíkniefnabrot. 18.8.2004 00:01
Miðborgin á Menningarnótt Búast má við umferðtöfum í miðborginni og nágrenni vegna dagskrár Menningarnætur á laugardag. Götum verður lokað og er fólk hvatt til að nýta sér almenningsvagna. Menningarnótt er nú haldin í níunda sinn. 18.8.2004 00:01
Eldur í Ormi og Víglundi Eldur var tilkynntur í vélsmiðju Orms og Víglundar í Hafnarfirði, rétt fyrir sex í kvöld. Eldur hafði komið upp í þaki hússins en ekki er enn vitað um eldsupptök. Tvö lið slökkviliðsins fóru á staðinn og réðu fljótt og vel niðurlögum eldsins. Ekki er vitað til hvort mikið tjón hefur hlotist af. 18.8.2004 00:01
Ísland sigrar Ítali Íslendingar sigruðu landslið Ítala í knattspyrnu í vinnáttuleik þeirra á Laugardalsvelli í kvöld. Eiður Smári Guðjohnsen skoraði fyrsta markið og Gylfi Einarsson annað markið þremur mínútum síðar þegar 20 mínútur voru liðnar af leiknum. 18.8.2004 00:01
Gaman að vera skútuskipstjóri Skemmtilegasta starf í heimi er að vera skipstjóri á skólaskútu sænska sjóhersins segir Mikael Hjarthammar sem þekkir það af eigin raun. Hann segist hafa gripið tækifæri til að fara til Íslands því hingað sé svo óskaplega gaman að koma. 18.8.2004 00:01
218 ára afmæli Reykjavíkur Reykjavíkurborg er 218 ára í dag. Þess sáust þó ekki víða merki í höfuðborginni. Hins vegar var boðið upp á tertu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Þar var saman kominn dágóður fjöldi borgarbúa, sem nutu bæði góða veðursins, og annars sem garðurinn hefur uppá að bjóða. 18.8.2004 00:01
Klink og Bank áfram í Hampiðjunni Allt útlit er fyrir að listamennirnir í Klink og Bank verði með aðstöðu í gamla Hampiðjuhúsinu í að minnsta kosti eitt ár í viðbót. Reynslan af samstarfinu í þessum suðupotti íslenskrar listar hefur verið afar góð. Listamennirnir segja að það eina sem vanti upp á sé að fá fyrir salti í grautinn af og til. 18.8.2004 00:01
Virkjunin fljót að greiða upp land Það tæki Kárahnjúkavirkjun aðeins nokkra mánuði að greiða upp virði þess lands sem fer undir virkjunina, segir Landsvirkjun, ef það er tveggja milljarða króna virði eins og rannsóknir þýsks hagfræðidoktors sýna fram á. 18.8.2004 00:01
Sagðist verða flokknum erfið Siv Friðleifsdóttir hótaði því á fundi með þingkonum Framsóknarflokksins í janúar að ef hún missti ráðherrastólinn yrði hún ekki lengur hluti af liðsheildinni í flokknum. Þingflokksfundur hefur verið ákveðinn á morgun. 18.8.2004 00:01
Mótmæla byggingu blokkar Andstæðingar íbúðablokka, sem á að reisa á Seltjarnarnesi, saka bæjarstjórnina um sjónhverfingar við kynningu á legu blokkanna. Þeir segja að blokkirnar, sem reisa á á knattspyrnuvelli bæjarins, muni eyðileggja fallegt útsýni. 18.8.2004 00:01
Uppselt á leikinn Uppselt var á vináttulandsleik Íslands og Ítalíu í kvöld. 22.204 miðar voru seldir og er þetta aðsóknarmet eins og stefnt var að. Á annað hundrað manns sinnir öryggisgæslu á vellinum. Ítalskir fjölmiðlar gera kröfu um stórsigur hjá sínum mönnum en landsliðsþjálfari Íslands segir að strákarnir okkar eigi eftir að standa í Ítölum. 18.8.2004 00:01
Clintonhjónin til Íslands Bill og Hillary Clinton koma hingað til lands í heimsókn í næstu viku. Þau koma með þingnefnd sem John McCain fer fyrir. Nefnd bandarískra þungavigtarþingmanna er væntanleg hingað til lands á þriðjudaginn kemur. 18.8.2004 00:01
Allt gekk upp Rúmlega 20 þúsund manns sáu Íslendinga vinna stórglæsilegan sigur á landsliði Ítala á Laugardalsvelli. Aðsóknarmetið frá 1968 féll. "Það gekk allt upp," sagði Eggert Magnússon formaður Knattspyrnusambands Íslands. </font /></b /> 18.8.2004 00:01