Ríkið hefur þurft að borga bætur 18. ágúst 2004 00:01
Ríkissjóður hefur þurft að greiða bætur vegna mistaka við útgáfu veðbókarvottorðs. Ekki var getið um á vottorðinu að jörðin væri óðalsjörð. Það var við embættið á Eskifirði sem mistökin voruð gerð fyrir rúmum tíu árum. Sýslumaðurinn í Reykjavík getur ekki útilokað að á embættið hans gætu fallið ábyrgðir vegna veðsetninga á óðalsjörðinni Brautarholti á Kjalarnesi. En það er svipað Eskifjarðarmálinu. Ríkissjóði var gert með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, á árinu1995. að greiða Landsbanka Íslands bætur upp á 421 þúsund krónur ásamt vöxtum vegna veða sem tekin höfðu verið í óðalsjörð á Austurlandi. Í málinu þótti óumdeilt að þinglýsingardómara hafi orðið á mistök við útgáfu veðabókavottorðs árið 1990 þar sem hann gat þess ekki að jörðin sem var verið að vestetja væri ættaróðal. Sömu mistök voru gerð þegar þinglýsa átti skuldabréfinu. Bankinn taldi sig vera með tryggingu fyrir endurgreiðslu lánsins, enda voru engir fyrirvara um annað í veðbókinni. Þá segir í dómnum að megin tilgangur þinglýsinga sé að stuðla að öruggum viðskiptum einkum með fasteignir og skapa þannig grundvöll fyrir eðlilegar lánastarfsemi. Skuld óðalsbóndans við Landsbankanum fór í vanskil og hóf bankinn innheimtu og uppboðsaðgerðir. Bóndinn mótmælti aðgerðunum og vísaði til þess að jörðin væri óðal. Sýslumaðurinn á Eskifirði stöðvaði nauðungarsöluna og var sú ákvörðun staðfest bæði í héraðsdómi og Hæstarétti. Síðar var bóndinn gerður gjaldþrota án þess að greiðslur hefðu fengist upp í kröfur þar sem óðalsjörðin féll ekki undir skiptin. Í þrotabú Brautarholts á KB-banki hæstu kröfurnar eða um 150 milljónir króna. Sýslumaðurinn í Reykjavík stöðvaði uppboðsferli á jörðinni þar sem um Brautarholt er óðalsjörð. "Endanlegur dómur um hvað muni gerast hefur ekki gengið. Sýslumaður hefur hafnað uppboðskröfunni og mun krafan væntanlega fara fyrir héraðsdóm. Við munum fara alla leið og láta á það reyna hvort uppboðið sé heimilt eða ekki," sagði Helgi Sigurðsson, yfirmaður lögfræðideildar KB-banka í samtalið við Fréttablaðið.
Fréttir Innlent Mest lesið Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Innlent Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Innlent Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Innlent Ekið á hjólreiðamann Innlent Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Innlent Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi Innlent Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Fundu snyrtistofuna við húsleit í kjölfar umferðareftirlits Tölvuþrjótar hrella háskólanemendur og Reform rúllar upp kosningum á Englandi Tilbúinn í umræður um hlaðvörpin en afdráttarlaus varðandi Rás 2 Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hækkað um allt að 85 prósent Ekið á hjólreiðamann Sigríður hjólar í Hönnu Katrínu: Eini ráðherrann „sem vill hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu“ Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi „Þverhausar“ komi í veg fyrir umræðu um sameiningu fyrir vestan Fjölga stæðum fyrir deilibíla og rafhlaupahjól í Reykjavík Einn öskrandi og til ama og annar sofandi á gatnamótum Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka „Ég elska þennan flugvöll“ „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Sjá meira