Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sóttu helst í gögn frá stofnunum Net tölvuþrjóta hefur síðustu fimm árin sótt sér mikið magn af trúnaðargögnum frá ríkisstjórnum, alþjóðlegum stofnunum og rannsóknarstofnunum með tölvuóværu sem kallast Rauði október. Tölvuöryggisfyrirtækið Kaspersky leiðir þetta í ljós í nýrri skýrslu. 16.1.2013 07:00
Fjölmenn mótmæli í Pakistan Órói var í Pakistan í gær í kjölfar þess að hæstiréttur fyrirskipaði handtöku Raja Pervaiz Ashraf forsætisráðherra vegna spillingarmála. Tugir þúsunda mótmæltu ríkisstjórninni á fundi í höfuðborginni Islamabad. 16.1.2013 07:00
Kynferðisbrot afa til rannsóknar Lögreglan á Akureyri hefur nú til rannsóknar meint kynferðisbrot 77 ára gamals manns gegn tveimur dóttursonum sínum, piltum sem þá voru á barnsaldri. 16.1.2013 07:00
Aron varar við auknu eftirliti Aron Pálmi Ágústsson, sem dæmdur var til refsingar í Bandaríkjunum fyrir kynferðisbrot gegn barni þegar hann var þrettán ára, sendi þingmönnum bréf í síðustu viku þar sem hann varar við breytingum á lögum um eftirlit með dæmdum barnaníðingum. 16.1.2013 07:00
Ekki nógu vel tekið á ofbeldinu hérlendis Hér á landi hefur ekki verið tekið á ofbeldi gegn börnum af nægilegum styrk og festu. 16.1.2013 07:00
Hrossakjöt í hamborgurum í verslunum á Bretlandseyjum Matvælaeftirlit Írlands hefur komist að því að hrossakjöt var notað í hamborgara sem seldir voru í nokkrum af stærstu verslunarkeðjum á Írlandi og Bretlandseyjum. 16.1.2013 06:59
Heita vatnið aftur komið á í Vesturbænum Heitt vatn komst aftur á í Vesturbæ Reykjavíkur um klukkan hálf tólf í gærkvöldi eftir bilun fyrr um kvöldið. 16.1.2013 06:54
Rannsaka fjögur tilvik um eld í vatnskælivélum Lögreglan á Akureyri er nú að rannsaka nánar fjögur tilvik á tveimur árum, þar sem kviknað hefur í vatnskælivélum í mötuneytum, eða kaffistofum á vinnustöðum. 16.1.2013 06:52
Ofurölvi ökumaður keyrði inn í garð á Selfossi Ofurölvi ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Selfossi seint í gærkvöldi og hafnaði bíllinn á stórum steini inni í húsagarði. 16.1.2013 06:50
Engar norskar útgerðir með skip á loðnumiðunum Norskar útgerðir hafa ekki enn séð ástæðu til að senda loðnuskip á Íslandsmið, en þær höfðu heimildir til þess frá áramótum. 16.1.2013 06:49
Þrír menn teknir eftir innbrot í Kvikmyndaskólann Brotist var inn í Kvikmyndaskólann við Ofanleiti í Reykjavík á þriðja tímanum í nótt og komust þjófarnir undan. 16.1.2013 06:45
Dagblað alþýðunnar gagnrýnir kínversk stjórnvöld vegna mengunnar Gífurleg loftmengun í Beijing og öðrum stórborgum Kína hefur leitt til harðrar gagnrýni á stjórnvöld þar í landi í Dagblaði alþýðunnar. Blaðið birtir annars yfirleitt aðeins efni sem er hliðhollt stjórnvöldum. 16.1.2013 06:43
Yfir 80 fórust í sprengingum á háskólalóð í Aleppo Yfir 80 manns létu lífið og yfir 150 særðust þegar tvær öflugar sprengingar urðu á lóð háskólans í borginni Aleppo í Sýrlandi í gærdag. 16.1.2013 06:38
Hert löggjöf um skotvopn samþykkt í New York ríki Hert löggjöf um skotvopn hefur verið samþykkt í New York ríki. Báðar deildir ríkisþingsins í New York samþykktu löggjöfin með miklum meirihluta og Andrew Cuomo ríkisstjóri staðfesti hana svo í gærkvöldi. 16.1.2013 06:34
Bílnum stolið á meðan barnið sat í aftursætinu Bílþjófar reyna vanalega að tryggja að það sé enginn í bílunum sem þeir stela. Það má því segja að ýmislegt hafi farið út um þúfur þegar maður stal bíl í Frederiksværksgade í Hillerød í Danmörku í dag. 15.1.2013 22:55
Forstjóri Nissan segir tapaða hlutdeild bara hiksta Honum er sjaldan orðavant forstjóra Nissan, Carlos Ghosn þó svo að Nissan hafi tapað markaðshlutdeild í Bandaríkjunum og að Nissan stefni ótrautt að 10% markaðshlutdeild þar árið 2016. Hún féll úr 8,2% 2011 í 7,9% í fyrra. Það er reyndar fyrsta árið frá 2006 sem fyrirtækið tapar hlutdeild þar vestra. Nissan og lúxusmerki þeirra Infinity seldi 1,14 milljón bíla í Bandaríkjunum í fyrra. "Aðeins eitt ár með tapaðri hlutdeild er eins og og nettur hiksti og ég hefði fyrst áhyggjur ef það gerðist tvö ár í röð“, sagði Ghosn. Ghosn nefndi tveir helstar ástæður fyrir lækkaðri markaðshlutdeild. Nokkrir af bílum Nissan sem til sölu voru hefðu verið að enda sitt skeið og nýjar kynslóðir þeirra litu brátt dagsins ljós og að japanskir keppinautar þeirra hefðu verið lengur að jafna sig en Nissan eftir jarðskjálftann stóra 2011 og því hefðu þeir notið meiri vaxtar 2012. 15.1.2013 22:46
Fólk borðar nú fyrir framan tölvuna í vinnunni - til að geta skoðað Facebook og Twitter Einn af hverjum þremur borðar hádegisverðinn sinn fyrir framan tölvuna í vinnunni, samkvæmt niðurstöðu rannsóknar sem framkvæmd var í Bretlandi á dögunum. 15.1.2013 22:37
Vilja að lögregla fái heimild til að beita virkum tálbeitum til að góma barnaníðinga Formaður allsherjarnefndar vill beita sér fyrir því að lögregla fái heimild til þess að beita virkum tálbeitum á netinu. Ríkissaksóknari segir að með því séu menn komnir á varhugaverðar slóðir og að hugmyndina þurfi að íhuga vandlega. 15.1.2013 21:35
Ekkert heitt vatn í Vesturbænum Nú fyrir skömmu varð heitavatnslaust í hluta Vesturbæjar Reykjavíkur vegna bilunar. 15.1.2013 20:54
Maðurinn fundinn Maðurinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í dag er fundinn. Lögreglan þakkar aðstoðina. 15.1.2013 20:35
Kannabis í Vesturbæ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í vesturbæ Reykjavíkur í gær. Við húsleit var lagt hald á rúmlega 70 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Ekki var að sjá að búið væri í íbúðinni en húsnæðið virðist hafa verið notað í þeim eina tilgangi að rækta kannabis. Karl á fertugsaldri var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu. 15.1.2013 19:46
Er þetta furðulegasta myndbandið á internetinu í dag? Á Facebook-síðu sem ber yfirskriftina "Ótrúleg og klikkuð myndbönd“ birtist þetta myndband fyrir tæpum sólarhring. Það sem fólki er efst í huga er einfaldlega spurningin: Hvað er í gangi? 15.1.2013 19:42
Íslenskir námsmenn í skuldasúpu eftir viðskipti við Halldór Viðar Sanne Tugir Íslendinga, í mörgum tilvikum ungir námsmenn með lítið fé milli handanna, sitja í skuldasúpu eftir viðskipti sín við svikahrappinn Halldór Viðar Sanne sem nú situr í gæsluvarðhaldi. Þeir sem verst urðu úti skulda milljónir. 15.1.2013 18:45
Heimili barnaníðings í gæsluvarðhaldi lagt í rúst Brotist var inn á heimili barnaníðingsins Gunnars Jakobssonar á Stokkseyri aðfaranótt laugardags. Gunnar hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því á föstudag grunaður um að hafa brotið kynferðislega gegn börnum. 15.1.2013 17:49
Topplaus og dónalega kraftmikill Bentley Enn halda þeir áfram að birtast nýju og flottu bílarnir á bílasýningunni í Detroit sem stendur yfir. Einn þeirra eigulegastur hlýtur að teljast þessi blæjuútgáfa af Bentley GT Speed. Í húddinum leynist 12 strokka og 6 lítra sleggja sem sér hjólunum fyrir 616 hestöflum að fíflast í malbikinu. Með þeim getur hann reyndar ferðast á því á 325 km ferð. Þá er líklega betra að vera búinn að loka blæjunni eða að minnsta kosti taka af sér hattinn. Þessi annars nokkuð þungi sleði er ekki nema 4,1 sekúndu í hundrað og 9,7 sek. Í 160 km hraða. Tog vélarinnar nemur 800 Newtonmetrum. Til að hressa örlítið uppá útlit bílsins er hann á 21 tommu felgum. Blæja bílsins hefur verið prófuð í allt að 30 stiga frosti og 50 stiga hita og þolið það bæði jafnvel, sem og monsúnrigningar og fyrir vikið á farþegum allsstaðar að líða eins.... það er vel. 15.1.2013 17:00
Svindlarar afhúpaðir frammi fyrir alþjóð Hið opinbera í Danmörku greiðir um fimm til tólf milljarða danskra króna, eða um 280 milljarða íslenskra króna, í félagslegar bætur til fólks sem á ekki rétt á félagslegum styrk. Þetta kemur fram í raunveruleikaþætti sem sýndur er í danska ríkissjónvarpinu. Sjónvarpsmenn fylgja þar starfsmönnum sveitarfélaga og lögreglunni sem hafa eftirlit með því að opinberir styrkir séu ekki misnotaðir. Svikin eru svo opinberuð fyrir framan öllum þeim sem áhuga hafa á að sjá. 15.1.2013 16:44
Þekkirðu manninn á myndinni? - Eftirlýstur vegna lögreglurannsóknar Maðurinn á meðfylgjandi mynd er eftirlýstur af lögreglunni vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu vinsamlegast beðnir um að hringja í lögregluna í síma 444-1000. Upplýsingum má einnig koma á framfæri á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum til lögreglunnar á fésbókinni. 15.1.2013 16:20
Fimm kærur á hendur Karli Vigni Alls hafa fimm kærur borist vegna Karls Vignis Þorsteinssonar eftir að Kastljós hóf umfjöllun um mál hans. Þar er um að ræða mál þar sem fjórir karlmenn koma við sögu og ein kona. 15.1.2013 15:44
Halldór Laxness með mest seldu bókina Það er ljóst að bókaunnendur hugsi töluvert um heilsuna eftir jólin, en mest selda bókin á tímabilinu 1. til 12. janúar var bókin 6 kíló á 6 vikum. Þetta kemur fram í lista Rannsóknaseturs verslunarinnar sem tekinn er saman fyrir Félag íslenskra bókaútgefenda. 15.1.2013 15:28
Jón Þorsteinn stefnir DV Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs, hefur stefnt Reyni Traustasyni, ritstjóra DV, og Inga Frey Vilhjálmssyni, fréttastjóra blaðsins, vegna umfjöllunar um gjaldeyrisviðskipti Jóns Þorsteins. 15.1.2013 15:21
Ók 1.500 km í stað 150 vegna GPS-villu Sabine Moreau, 67 ára gömul kona frá Belgíu, ætlaði að sækja vinkonu sína um 150 km leið, en endaði í Zagreb í Króatíu sem er um 1.500 km frá heimili hennar. Þetta tókst henni aðallega af tvennum sökum, bilun í leiðsögn GPS-tækisins sem hún studdist við og ótrúlega lélegri athyglisgáfu hennar. Heimili konunnar er í Hinault Erquelinnes í Belgíu og vinkonan beið á lestarstöð í Brussel, sem er um tveggja tíma akstur. Þess í stað ók Sabine í tvo sólarhringa og lagði á ferð sinni að baki 1.500 kílómetra, enda var hún komin á hinn endann í álfunni að leiðarenda. Hún verður að teljast efnileg til þátttöku í Le Mans þolaksturskeppninni í ár með slíka seiglu í handraðanum, enda er í keppninni trauðla hægt að ruglast af leið þar sem hún er lokaður hringur. Á leið sinni þurfti Sabine tvisvar að fylla á tankinn og hún dottaði nokkrum sinnum í vegköntum. Að sögn hennar sjálfrar var hún nokkuð annars hugar, en fyrr má nú vera! "Ég sá allskonar umferðarskilti í Þýskalandi, Austurríki og að lokum í Zagreb í Króatíu. Þá áttaði ég mig á því að ég var ekki í Belgíu lengur!“ Fyrir suma tekur það vonandi styttri tíma. 15.1.2013 15:15
Skúringakona ók lest á hús í Svíþjóð Skúringakona slasaðist þegar lest í Stokkhólmi fór af sporinu og lenti á íbúðablokk um klukkan hálftvö í nótt að staðartíma. Þegar lestin kom á endastöð í Saltsjobaden, suðaustur af Stokkhólmi, hægði hún ekki á sér heldur ók á hindranir á enda sporsins og áfram á nálæga byggingu. Við stjórn lestarinnar var hreingerningarkona sem hafði stolið henni. Hún slasaðist alvarlega í árekstrinum og henni var flogið á spítala. Það þykir ganga kraftaverki næst að enginn byggingunni hafi slasast og engir farþegar voru í lestinni. 15.1.2013 15:12
Öllum uppgjafarhermönnum tryggð vinna Bandaríski smásölurisinn Wal-Mart mun í dag tilkynna um áætlun sína að bjóða öllum uppgjafarhermönnum þjóðarinnar vinnu. 15.1.2013 15:08
Fyrirtæki vöruð við flóknum svikum tölvuþrjóta Lögregla á Norðurlöndum varar við tölvuinnbrotum sem eiga sér stað í samskiptum norrænna og kínverskra fyrirtækja í þeim tilgangi að komast yfir lögmætar greiðslur fyrir vörur og þjónustu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra. 15.1.2013 14:58
Myndin mun ekki gera lítið úr WikiLeaks "Ég hef reynt að gera mitt besta til þess að tryggja að þetta verði ekki and-WikiLeaks-mynd," segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar um fyrirhugaða kvikmynd um vefsíðuna WikiLeaks og forsvarsmann hennar, Julian Assange. 15.1.2013 14:52
Kannast þú við úlpuþjófinn? Þremur verðmætum úlpum var stolið úr fatahengi í anddyri Fjölbrautaskóla Suðurlands síðastliðinn föstudag 11. janúar klukkan 08:25. 15.1.2013 14:35
Fæstar sakfellingar á Suðurlandi Töluverður munur er á sakfellingarhlutfalli héraðsdóma á Íslandi samkvæmt gögnum sem Páll Hilmarsson tók saman og vann úr af vefsíðu héraðsdómanna. 15.1.2013 14:33
Eitrað illgresi í klettasalatspokum Eitrað illgresi fannst í nokkrum pokum af ítölsku klettasalati. Mistökin uppgötvuðust eftir að nokkrir neytendur höfðu fengið eitrunaráhrif, m.a. sviða og bólgur í munnholi. Heilbrigiseftirlit Reykjavíkur tilkynnti þá Matvælastofnun að innkalla skyldi salatið. Ráðlagt er að skola salat og tína úr lauf sem eru frábrugðin. 15.1.2013 13:58
Lögregla þarf rýmri heimildir til að fást við kynferðisbrot Flestir þeirra gesta sem mættu á fund allsherjar- og menntamálanefndar í morgun þar sem fjallað var um kynferðisbrot gegn börnum voru þeirrar skoðunnar að lögregla ætti að fá rýmri heimildir til þess að beita svokölluðum virkum tálbeitum á Netinu, í því skyni að góma barnaníðinga. Á fundinn mættu fulltrúar frá innanríkisráðuneyti, Ríkissaksóknara, Barnaverndarstofu, Stígamótum og lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu auk Svölu Ísfeld Ólafsdóttur lögfræðingi og sérfræðingi í kynferðisbrotum gegn börnum. 15.1.2013 13:47
Benz kynnir CLA í Berlín í dag Mercedes-Benz mun kynna til leiks glænýjan bíl, CLA-Class á alþjóðlegri tískuviku Mercedes-Benz sem hefst í Berlín í dag 15. janúar. CLA er fjögurra dyra sportlegur bíll hannaður sem coupé og verður í boði með 4MATIC fjórhjóladrifi ásamt miklum búnaði. Hönnunin er sportleg og sækir hann nokkuð svip til CLS-Class og er ekki leiðum að líkjast. Kraftmikið grillið að framan lítur út fyrir að vera alsett demöntum og straumlínulagaðar hliðar bílsins og sportlegur afturhluti hans eru talsvert fyrir augað. Mikið er lagt upp úr vönduðu efnisvali í innréttingunni, sem búast má við af Benz. Bíllinn verður einnig fáanlegur með panomaric glerþaki. CLA er með lægstu loftmótstöðu sem um getur í bíl eða 0.22 Cd. CLA-Class er framleiddur með 1,6 og 2,0 lítra bensínvélum sem skila 122 og 156 hestöflum. Kraftmesta útfærslan CLA 250 er með 211 hestafla vél. Tvenns konar díselvélar bjóðast. Sú minni mun skila 136 hestöflum og togið er 300 NM og sú stærri 170 hestöflum og 350 NM í togi en á sama tíma er CO2 losunin aðeins 109 g/km. Allar vélarnar í nýjum CLA-Class verða með ECO start/stop búnaði. Hægt verður að fá bílinn með nýrri sex gíra beinskiptingu eða 7G-DCT sjálfskiptingu eins og er í nýjum A-Class. Nýr CLA-Class er með árekstrarvara en búnaðurinn greinir þegar fjarlægð frá bíl eða kyrrstæðri mótstöðu er of lítil og lætur ökumann vita með mynd- eða hljóðmerki. CLA er væntanlegur á markað í apríl hjá Öskju og hingað til lands fyrri hluta sumars. CLA er ætlað stórt hlutverk á Bandaríkjamarkaði, en hann er minnst bíll Benz sem þarf er seldur, þar sem hvorki A-Class né B-Class eru í boði. 15.1.2013 13:38
Réttað í máli Stúlku eftir helgi Aðalmeðferð fer fram í máli Stúlku Bjarkardóttur Rúnarsdóttur næstkomandi mánudag. 15.1.2013 13:36
Þrír látnir í umferðarslysi á Skáni - Fimmtán eru slasaðir Talið er að um 15 til 20 manns hafi slasast í umferðarsylsi sem varð á brú á Skáni í Svíþjóð fyrr ídag. Staðfest hefur verið að þrír létust í árekstrinum, að því er fram kemur á vef Aftonbladet. Þar kemur ekki fram hvernig þessar hörmungar vildu til en fullyrt er að um 100 bílar séu hluti af þessum fjöldaárekstri. Þar af eru um 50 fólksbílar og um 50 stærri bifreiðar. 15.1.2013 13:07
Útkoman týpísk Hollywood-steypa "Ég hef heyrt ávæning af handritinu og það hefur ekki verið til þess að auka bjartsýni mína um að þarna sé vel farið með. Ég treysti Hollywood ekki sérstaklega vel til þess að vera skrásetjari sögunnar," segir Kristinn Hrafnsson talsmaður WikiLeaks. 15.1.2013 12:59
Kraftatröllið Audi RS7 Ekki skarta margir fjöldaframleiddir fólksbílar 560 hestöflum, hröðun í hundraðið á 3,9 sekúndum og 305 kílómetra hámarkshraða. Það gerir þó Audi RS7 sem svipt var af hulunni á bílasýningunni í Detroit í gær. Vélin í bílnum er 4,0 lítra V8, en með tveimur túrbínum sem skýrir ógnaraflið. Þrátt fyrir allt þetta afl eyðir bíllinn aðeins 9,8 lítrum. Það skýrist af því að vélin slekkur á fjórum af átta strokkum ef ekki er stigið gáskalega á bensíngjöfina. Ef það er hinsvegar gert koma hinir strokkarnir inn á örfáum hundraðshlutum úr sekúndu. Við vélina er boltuð átta gíra Tiptronic sjálfskipting sem sendir aflið til allra hjólanna, eins og títt er með Audi bíla. Bremsurnar á bílnum eru að sjálfsögðu jafn ógnarlegar og vélin og bremsudiskarnir heilir 39 cm í þvermál. Bíllinn er að mestu byggður á hástyrktarstáli og áli. Fá má hann með loftpúðafjöðrun og er með henni er hægt að lækka bílinn um 20 mm. Þó bíllinn sé með "coupe“-lagi er hann samt með 535 lítra skotti. 15.1.2013 12:23
IKEA tók umdeildan skógarhöggsmann úr umferð Auglýsing sem var gerð fyrir Ikea í aðdraganda síðustu jóla var tekin úr umferð. Samkvæmt heimildum Vísis var ástæðan sú að kvartanir bárust frá áhorfanda um efni hennar. 15.1.2013 11:46