Bílar

Ók 1.500 km í stað 150 vegna GPS-villu

Leiðin sem Sabine ók langleiðina gegnum Evrópu
Leiðin sem Sabine ók langleiðina gegnum Evrópu
Fáar GPS-ófarir slá þessari við.

Sabine Moreau, 67 ára gömul kona frá Belgíu, ætlaði að sækja vinkonu sína um 150 km leið, en endaði í Zagreb í Króatíu sem er um 1.500 km frá heimili hennar.

Þetta tókst henni aðallega af tvennum sökum, bilun í leiðsögn GPS-tækisins sem hún studdist við og ótrúlega lélegri athyglisgáfu hennar.

Heimili konunnar er í Hinault Erquelinnes í Belgíu og vinkonan beið á lestarstöð í Brussel, sem er um tveggja tíma akstur. Þess í stað ók Sabine í tvo sólarhringa og lagði á ferð sinni að baki 1.500 kílómetra, enda var hún komin á hinn endann í álfunni að leiðarenda.

Hún verður að teljast efnileg til þátttöku í Le Mans þolaksturskeppninni í ár með slíka seiglu í handraðanum, enda er í keppninni trauðla hægt að ruglast af leið þar sem hún er lokaður hringur.

Á leið sinni þurfti Sabine tvisvar að fylla á tankinn og hún dottaði nokkrum sinnum í vegköntum. Að sögn hennar sjálfrar var hún nokkuð annars hugar, en fyrr má nú vera! „Ég sá allskonar umferðarskilti í Þýskalandi, Austurríki og að lokum í Zagreb í Króatíu. Þá áttaði ég mig á því að ég var ekki í Belgíu lengur!" Fyrir suma tekur það vonandi styttri tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×