Bílar

Kraftatröllið Audi RS7

Audi 7-línan er sportútgáfa af Audi A8

Ekki skarta margir fjöldaframleiddir fólksbílar 560 hestöflum, hröðun í hundraðið á 3,9 sekúndum og 305 kílómetra hámarkshraða. Það gerir þó Audi RS7 sem svipt var af hulunni á bílasýningunni í Detroit í gær.

Vélin í bílnum er 4,0 lítra V8, en með tveimur túrbínum sem skýrir ógnaraflið. Þrátt fyrir allt þetta afl eyðir bíllinn aðeins 9,8 lítrum. Það skýrist af því að vélin slekkur á fjórum af átta strokkum ef ekki er stigið gáskalega á bensíngjöfina. Ef það er hinsvegar gert koma hinir strokkarnir inn á örfáum hundraðshlutum úr sekúndu.

Við vélina er boltuð átta gíra Tiptronic sjálfskipting sem sendir aflið til allra hjólanna, eins og títt er með Audi bíla. Bremsurnar á bílnum eru að sjálfsögðu jafn ógnarlegar og vélin og bremsudiskarnir heilir 39 cm í þvermál.

Bíllinn er að mestu byggður á hástyrktarstáli og áli. Fá má hann með loftpúðafjöðrun og er með henni er hægt að lækka bílinn um 20 mm. Þó bíllinn sé með „coupe"-lagi er hann samt með 535 lítra skotti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×