Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fimmfaldur pottur næstu helgi Enginn hreppti fyrsta vinning í Lottóinu í kvöld sem hljóðaði upp á tæpar 30 milljónir. Því verður potturinn fimmfaldur næst. Vinningstölurnar voru 3 17 19 23 36 og bónustalan var 31. Tveir voru með fjórar tölur réttar auk bónustölu. Þeir hljóta 194.000 í vinning. 7.1.2012 20:14
Lýðræðinu reistar skorður Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, hefur verið stórtækur í breytingum á stjórnarskrá og öðrum mikilvægum lögum. Allt til að tryggja sjálfum sér og flokki sínum lítt takmörkuð völd til frambúðar, segja gagnrýnendur. Guðsteinn Bjarnason skoðar afrek Orbans, sem fyrir tuttugu árum var í fararbroddi lýðræðisbyltingar gegn þáverandi kommúnistastjórn landsins. 7.1.2012 20:03
Forsendur stjórnvalda um Vaðlaheiðargöng óraunhæfar Pálmi Kristinsson, verkfræðingur hefur tekið saman skýrslu um Vaðlaheiðargöng. Þar byggir hann á eigin útreikningum og athugunum á kostnaðarþáttum, tekjuþáttum og fjármögnun ríkisins auk þess sem stuðst er við fyrirliggjandi forsendum stjórnvalda. Meginniðurstöður skýrslunnar eru að innheimta veggjalda muni ekki ná að standa undir öllum kostnaði við Vaðlaheiðargöng. Einnig býst hann við að endanlegur kostnaður við göngin verði hærri en gert er ráð fyrir. 7.1.2012 18:48
Tjörnin neon-lýst fyrir börnin - myndaalbúm Hátt á fimmta hundrað manns mættu við tjörnina til að mynda heillakeðju og vekja athygli á réttindum barna. Hersingin gekk með neon-ljós hringinn í kringum tjörnina og að göngu lokinni fengu allir heitt kakó frá Iðnó og stjörnuljós frá Landsbjörg. Meðfylgjandi myndir voru teknar við tjörnina í dag. Markmiðið var að safna saman nægu fólki til að mynda órofna keðju hringinn kringum tjörnina. Markmiðið náðist ekki alveg. Eins og sagt var frá fyrr í dag markaði atburðurinn upphaf samvinnuverkefnis Barnaheilla og tólf íslenskra fyrirtækja. Markmið samstarfsins er að safna peningum sem varið verður börnum í hag og vekja athygli á réttindum barna. 7.1.2012 18:06
Vilja afsökunarbeiðni vegna skaupsins Norræna félagið í Hveragerði mæltist í dag til þess að Páll Magnússon bæðist afsökunar á brandara úr áramótaskaupinu þar sem fjöldamorðin í Noregi voru höfð í flimtingum. Þetta kom fram í yfirlýsingu sem birtist á vefsíðu Fréttablaðs Suðurlands. Yfirlýsingin í heild hljóðaði svona: "Norræna félagið í Hveragerði harmar að í áramótaskaupi Ríkisútvarpsins skuli fjöldamorðin í Noregi í sumar sem leið, hafa verið flokkuð sem tilefni spaugsyrða. Mælist félagið til þess að útvarpsstjóri biðjist opinberlega afsökunar á þessu atviki, ekki aðeins Norðmanna vegna, heldur einnig fyrir sakir sjálfsvirðingar Íslendinga. F.h. félagsins, Kristbjörg Erla Hreinsdóttir." 7.1.2012 17:51
Snjóhreinsun enn á fullu Starfsmenn Reykjavíkurborgar hafa unnið að snjóhreinsun á um tíu tækjum í allan dag. Unnið var að söltun og söndun göngustíga. Á morgun verður að öllum líkindum ekki unnið að snjóhreinsun. Starfsmenn verða hins vegar í ráspólunum og tilbúnir í útköll ef hláka myndast. "Ef það kemur einhver asahláka þá tökum við í taumana hvað það varðar," segir Þorsteinn Birgisson, yfirstjórnandi hjá Reykjavíkurborg. Unnið hefur verið að því undanfarið að hreinsa kringum niðurföll og greiða leið affallsvatns af bráðnandi svellbunkanum sem liggur yfir borginni. 7.1.2012 17:33
Biophilia til New York Björk tilkynnti í gær að hún myndi fara með Biophilia-sýninguna sína til New York. Hún ætlar sér að halda tíu sýningar í febrúar næstkomandi. Sex sýningar verða haldnar í New York Hall of science, seinni fjórar verða svo haldnar í Roseland Ballroom á Manhattan. Ekki eru fleiri sýningar í bígerð í Bandaríkjunum. Sýningin hefur fengið glimrandi viðtökur frá gagnrýnendum. Í henni teflir Björk fram stúlknakór sem telur 24 stúlkur auk fjölda nýstárlegra hljóðfæra sem hún hannaði sjálf með samstarfsmönnum sínum. 7.1.2012 17:06
Jólatré liggja úti Um þessar mundir liggja einmanaleg jólatré eins og hráviði víða um borgina. Síðustu daga hafa jólatrén staðið úti í horni á heimilum fólks og gefið jólahaldi þeirra hátíðlegan blæ. Nú rífa margir af þeim skrautið í hvelli, varpa þeim út í kuldann og hugsa svo ekki meir út í það. Því er rétt að taka fram að sorphirða Reykjavíkur hirðir ekki jólatré í ár. Fólk verður sjálft að sjá um að koma jólatrjám sínum á endurvinnslustöð. Sorpa tekur ekki gjald fyrir. Fyrir hina tímabundnu bjóða ýmsar íþróttahreyfingar upp á þá þjónustu að hirða jólatré að hátíðunum loknum. Skógræktarfélag Reykjavíkur og Gámaþjónustan hafa einnig samstarf um hirðingu jólatrjáa. Slík þjónusta kostar hins vegar alla jafna. 7.1.2012 16:41
Árekstur á Bústaðarvegi Árekstur varð á mótum Bústaðarvegar og Efstaleitis um þrjúleytið í dag. Ökumaður sem ætlaði að beygja af bústaðarveginum og upp Efstaleitið ók í veg fyrir annan sem var á leið vestur eftir Bústaðarvegi. Bílarnir skemmdust en farþegar og ökumenn sluppu allir ómeiddir. 7.1.2012 16:25
30 hæða hótel reist á 15 dögum Verkamenn í Kína lögðu lokahönd á 30 hæða hótel 31. desember síðastliðinn. Þessi feiknabygging hafði verið reist á 15 dögum. Fullyrt er að þetta muni breyta byggingariðnaðinum til frambúðar á vefsíðunni treehugger.com. Tæknin sem notuð er minnir á leikfangabyggingar fyrir krakka eða jafnvel legó. Byggingunni er "kubbað" saman með fyrirfram gerðum einingum sem eru smíðaðar í verksmiðjum. Meira að segja gólfefnin eru fest á gólfin í verksmiðjunni og hæðunum er síðan raðað hverri ofan á aðra með einföldum hætti. 7.1.2012 16:04
Yfirlýsing væntanleg frá Jóni Gnarr Jón Gnarr mun gefa frá sér yfirlýsingu vegna forsetakosninga í næstu viku. Þetta tilkynnti hann í dag á facebook síðu sinni. Þegar hann er spurður neðar á þeim þræði hvort hún verði jákvæð eða neikvæð segir hann "Hún verður góð". Nafn Jóns Gnarr kemur iðulega upp þegar menn velta fyrir sér hver verði eftirmaður Ólafs Ragnars Grímssonar á Bessastöðum. Í könnun sem Vísir gerði meðal lesenda sinna var Jón Gnarr í fimmta sæti sem næsti forseti. Á facebook síðu sinni hefur hann þakkað þann stuðning. 7.1.2012 15:08
75 daga einangrun ár hvert Íbúi í Árnesi við Trékyllisvík segist vera algjörlega einangraður í tæplega þrjá mánuði á ári þegar vegagerðin ryður ekki vegarkafla á Vestfjarðakjálkanum. Hann er flughræddur og kann því illa að geta ekki keyrt út fyrir sveitina þegar á þarf að halda. Árneshreppur er ein afskekktasta byggð landsins. Þar búa vel á annan tug fjölskyldna og þar kvíðir fólkið 6. janúar ár hvert. Ástæðan er sú að frá þeirri dagsetningu og næstu 75 daga er vegurinn þangað ekki ruddur, en Árneshreppur er eina sjálfstæða sveitarfélag landsins sem fellur undir svokallaða G-reglu um þjónustustig snjómoksturs, að því er fréttavefurinn strandir.is greinir frá. 7.1.2012 15:00
Heita áfram Björt framtíð Hið nýstofnaða stjórnmálaafl Guðmundar Steingrímssonar, Björt framtíð, mun ekki skipta um nafn eftir því sem segir í frétt mbl. "Við ætlum ekki að skipta um nafn og ég óska Nýrri framtíð bjartrar framtíðar," sagði Guðmundur Steingrímsson. Pólitísku samtökin Ný framtíð hafa óskað eftir því að Björt framtíð skipti um nafn til að koma í veg fyrir misskilning. 7.1.2012 14:26
Listamenn tilbúnir að verja Nasa Hljómsveitin Agent Fresco sagði á facebook síðu sinni að þeir væru í áfalli eftir þeir heyrðu af áformum um að rífa skemmtistaðinn Nasa. Þeir minna á að hópur listamanna tók sig saman árið 2009 og mómælti sömu ákvörðun. Þar fór Páll Óskar fremstur í flokki en strákarnir í Agent Fresco lögðu sín lóð á vogarskálarnar auk annara. Þeir segjast reiðubúnir að gera það aftur núna. "Ef við getum eitthvað gert til að vekja athygli á þessu munum við gera það. Ekki spurning," segir Arnór Dan Arnarson, söngvari sveitarinnar. 7.1.2012 14:14
Margir fara flatt í hálkunni Mikil hálka er nú á götum og gangstéttum borgarinnar og er vegfarendum ráðlagt að fara varlega. Mikill erill var á slysadeild Landspítalans í nótt vegna hálkuslysa og búist við fleirum þegar líður á daginn. Asahlákan fór ekki framhjá borgarbúum í gær en stórir pollar mynduðust á hálfbráðnuðu íslagi sem safnast hefur saman og myndar stórhættulegt svell, þá hafa hjólför myndast í snjólögum og safnast vatn nú þar saman sem getur falið hálkuna. 7.1.2012 14:00
Versta flugslys Nýja-Sjálands í 30 ár Loftbelgur hrapaði í dag á Nýja-Sjálandi og olli dauða 11 manna í versta flugslysi landsins í þrjátíu ár. Svo virðist sem kviknað hafi í loftbelgnum áður en hann hrapaði niður nærri Carterton, í um 80 km fjarlægð frá höfuðborginni. Flugmaðurinn og 10 farþegar létust allir. Slysið varð í logni og björtu og fallegu veðri á svæði sem þekkt er fyrir útsýnisferðir í loftbelgum. Flugmaðurinn var þekktur sem einn besti flugmaður svæðisins. Þetta er því mikið áfall fyrir loftbelga-iðnaðinn. 7.1.2012 13:37
Barnakeðja og neon-ljós við tjörnina Barnaheill á Íslandi ætla í dag að freista þess að mynda keðju í kringum Reykjavíkurtjörn með aðstoð 1000 barna til að vekja athygli á réttindum barna hér á landi en að sögn samtakanna hefur sjaldan verið brýnna en nú að standa vörð um málefni þeirra. Börn og foreldrar þeirra eru hvött til að taka þátt í þessu framtaki en boðið verður upp á heitt kakó og svo verður kveikt á stjörnuljósum og blysum. Keðjan verður mynduð klukkan fjögur. 7.1.2012 12:44
Leggjum pinnið á minnið Hundruðir sölustaða um allt land eru nú komnir með örgjörvaposa þar sem viðskiptavinir þurfa að stimpla inn pin númer til að ljúka greiðslu. Verkefnastjórinn segir breytinguna hafa gengið vel en nú eru þrjú af hverjum fjórum kortum hér á landi komin með örgjörva. Það var í júní í fyrra sem verkefninu pinnið á minnið var hleypt af stokkunum og fyrstu fyrirtækin fóru að nota örgjörvaposa sem gerir fólki kleift að staðfesta viðskipti með pin númeri. 7.1.2012 12:20
Kenna al-Qaida um sjálfsmorðssprengingu Yfirvöld á Sýrlandi segja al Qaida standa fyrir sjálfsmorðssprengingu í höfuðborg landsins, Damaskus, í gær. Að sögn létust 11 manns í sprengingunni, 63 særðust. Auk þess hafa 15 afskornir líkamshlutar hafa fundist á svæðinu án þess að eigandi þeirra sé þekktur. Fórnarlömbin voru að mestu leyti óbreyttir borgarar. Árásarmaðurinn sprengdi sprengjubelti sem hann hafði um sig miðjan þar sem hann stóð milli þriggja rútubifreiða. Tveir fætur, hluti af höfði og sundurtætt innyfli var það eina sem eftir var að tilræðismanninum. Þessar leifar voru látnar liggja á götunni fram eftir degi áður en þær voru þrifnar upp og sendar í erfðafræðirannsókn. 7.1.2012 11:49
Santorum talar gegn hjónabandi samkynhneigðra Rick Santorum, einn þeirra sem sækist eftir útnefningu Repúblikanaflokksins til forsetaembættis Bandaríkjanna, hefur nú í annað skiptið á tveimur dögum ráðist til atlögu gegn hugmyndinni um hjónaband samkynhneigðra. Þegar hann talaði við nemendur heimavistarskóla í New Hampshire í gær sagði hann að það væri skárra að eiga föður í fangelsi en tvo foreldra af sama kyni. Hann fullyrti jafnframt að hjónaband væri ekki réttur heldur forréttindi, en þrír nemendur sem eiga samkynhneigða foreldra sátu undir ræðu Santorums. Baulað var á hann í háskóla þar sem hann viðraði svipuð viðhorf á fimmtudag. Hann hefur áður tekið sterkt til orða um samkynhneigða og líkti þeim meðal annars við barna- og dýraníðinga í viðtali árið 2003, að því er vefútgáfa bandaríska dagblaðsins Los Angeles Times greinir frá. 7.1.2012 11:30
Stærsta atvinnublað síðustu ára Atvinnublaðið í miðju Fréttablaðsins í dag, þar sem fyrirtæki og stofnanir birta auglýsingar eftir starfsfólki, er það langstærsta sem komið hefur út frá því fyrir hrun, að því er segir í blaðinu. Ekki er heldur víst að jafnstórt blað hafi heldur komið út í góðærinu. Blaðið er 32 síður, en haft er eftir umsjónarmönnum blaðsins að það sé til marks um jákvæða þróun í atvinnumálum. 7.1.2012 11:00
Nóttin hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins Fjórir dvöldu fangageymslur lögreglunnar við Hverfisgötu í nótt. Einn af þeim var maður sem handtekinn var fyrir að hlaupa upp á bifreiðar er stóðu við Skólavörðustíg. Sá var handtekinn rétt fyrir sex í morgun. Erfiðlega gekk að hemja hann og því var hann vistaður í fangaklefa. Rætt verður við hann um hegðan sína þegar af honum rennur. Ekki er vitað hve mikið tjón hlaust af uppátæki hans. Málið er á forræði lögreglustöðvar nr. 5 í Vesturbæ. 7.1.2012 10:53
Óska eftir öðru nafni Pólitísku samtökin Ný framtíð hafa óskað eftir því að stjórnmálaflokkurinn Björt framtíð, sem að Guðmundur Steingrímsson og Heiða Helgadóttir eru í forsvari fyrir, breyti um nafn. Í tilkynningu sem Ný framtíð sendi frá segir að ljóst hafi verið í meira en mánuð að til stæði að endurvekja Nýja framtíð, en starf samtakanna hafði legið niðri í nokkur ár. Ný framtíð hvetur Bjarta framtíð til að velja sér annað nafn sem síður leiðir til ruglings og óþæginda. 7.1.2012 10:30
Hálka og slæm færð á landinu Vegagerðin varar við hálku eða flughálku um allt land og biður vegfarendur á lengri leiðum að athuga að færð breytist mjög hratt og því gott að fylgjast með færð og ástandi á leiðinni. Það eru hálkublettir á Sandskeiði og á Hellisheiði en hálka í Þrengslum. Flughálka er frá Reykholti að Gullfoss og hálka á öðrum leiðum. Flughálka er á Suðurstrandar-og Krýsuvíkurvegi. Á Vesturlandi er hálka á Holtavörðuheiði. Á Snæfellsnesi er flughálka sem og í uppsveitum Borgarfjarðar. Hálka eða hálkublettir eru á öðrum leiðum. Á Vestfjörðum er flughálka á Barðaströnd, Dýrafirði og víðar. Á öðrum leiðum er hálka en þó snjóþekja og éljagangur á Þröskuldum. Áframhaldandi hálka er svo á Norðurlandi og sumstaðar éljagangur. Flughált er á útvegum. Norðaustanlands er víða snjóþekja og éljagangur. Á Austurlandi er hálka og skafrenningur á Fjarðarheiði og Fagradal en hálka, snjóþekja og sumstaðar flughálka á öðrum leiðum. Suðaustanlands er hálka. 7.1.2012 10:15
Kindle tekur við af skólabókunum Vogaskóli verður fyrsti íslenski skólinn til að rafbókavæðast, en á þriðjudag fá allir nemendur við níunda bekk skólans afhenta Kindle spjaldtölvu til notkunar á vorönn í tilraunaskyni. Kindle varð fyrir valinu þar sem spjaldtölvan er einföld, handhæg og hentar eingöngu til lestrar, svo nemendur geta ekki laumað sér á Fésbókina eða leikjasíður. Verkefnið er unnið í samvinnu við Námsgagnastofnun og Skólavefinn. Allt námsefni sem hentar rafbókarforminu verður sett inn á lesarana, en nemendurnir munu notast við rafbækurnar í íslensku, samfélagsfræði og dönsku. Meðal annars verður reynt að leggja mat á hvort rafbækur geti komið í stað hefðbundinna kennslubóka og hvort þær hjálpi nemendum sem glíma við lestrarörðugleika. 7.1.2012 10:01
Stolið úr slökkviliðsbíl Búnaði var stolið úr dælubíl slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu sem var í útkalli um hálf þrjú leytið í nótt. Þjófarnir fóru inn í skáp á bílnum þegar hann stóð í Bankastræti og höfðu þaðan tæki og tól. Þó búnaðurinn hafi í sjálfu sér ekki verið dýr er það litið alvarlegum augum þegar stolið er úr slökkviliðsbílum. "Þessi búnaður er auðvitað ætlaður til að bjarga mannslífum og verðmætum og við treystum á að hann sé á sínum stað,“ segir slökkviliðsmaður á vakt. 7.1.2012 09:54
Jólasveinarnir kvaddir á Selfossi Mikill mannfjöldi kom saman á Selfossi til þess að kveðja jólasveinanna og aðrar vættir sem þar söfnuðust saman. Íbúar á Selfossi fóru í kyndilgöngu í fylgd jólasveina frá Tryggvaskála og bennustæði við tjaldsvæði Árborgar þar sem kveikt var í bálkesti. Björgunarsveitin Árborg og Ungmennafélagið Selfoss sáu svo um glæsilega flugeldasýningu. Við bálköstinn mættu svo, auk jólasveinanna, álfar og tröll að ógleymdum Grýlu og Lepplúða. 7.1.2012 01:08
Blóðugir dagar í Nígeríu 27 manns hafa látið lífið í Nígeríu í þremur árásum á jafnmörgum dögum. Árásirnar hafa beinst gegn kristnu fólki á leið til eða frá helgihaldi. Forseti landsins hefur lýst yfir neyðarástandi vegna árásanna. Árásirnar urðu í bæjunum Mubi og Gombe sem eru í norðausturhluta landsins. Sú fyrsta varð þegar skotið var á kirkju meðan á messu stóð á fimmtudaginn. Þá dóu sex manns. Næsta árásin varð daginn eftir þegar skotið var á þá sem syrgðu fórnarlömbin úr fyrri árásinni. Þá létust 18 manns. Aðfararnótt laugardagsins braust loks út skotbardagi í bænum Mubi. 7.1.2012 20:55
25 heimili yfirgefin í fyrra vegna svepps Á síðasta ári þurftu 25 fjölskyldur og einstaklingar að yfirgefa heimili sín í lengri eða skemmri tíma, og sumir fluttu alfarið burt, vegna myglusvepps. "Og það gerir enginn nema tilneyddur,“ segir Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, líffræðingur og stofnandi fyrirtækisins Hús og heilsa, sem sérhæfir sig í rannsóknum á húsnæði vegna raka og þeirra lífvera sem þrífast þar. 7.1.2012 08:00
Grunaðir eru alls ekki allir ákærðir Hvað þýðir það að hafa réttarstöðu sakbornings í rannsóknum sérstaks saksóknara? Fleiri en hundrað einstaklingar hafa réttarstöðu sakbornings í rannsóknum sérstaks saksóknara á málum tengdum bankahruninu. Sumir þeirra eru grunaðir í fleiri málum en einu. 7.1.2012 07:00
Grunur um heiftarlega hræeitrun Sex hross drápust á bænum Eystra-Fróðholti í Landeyjum í fyrradag. Þetta voru fjögur folöld, ung hryssa og önnur eldri, allt vel ættaðir gripir. Getgátur eru um að dauði hrossanna stafi af svæsinni hræeitrun. 7.1.2012 06:00
Ekki hægt þótt skráin gagnist Landspítalinn má ekki reka gagnagrunn um alla sjúklinga með skorpulifur og lifrarsjúkdóm á lokastigi. Persónuvernd segir að þótt gagnagrunnurinn geti þjónað góðum tilgangi og haft hagrænan og faglegan ávinning þá standist hann ekki persónuverndarlög. Stofnunin geti ekki heimilað gerð gagnagrunna með viðkvæmum persónuupplýsingum til varðveislu á persónugreinanlegu formi til frambúðar. Af dómi Hæstaréttar frá árinu 2003 megi ráða að til reksturs slíkra skráa þurfi lagaheimild. „Skráin er meðal annars notuð til að fá yfirsýn yfir árangur læknisfræðilegra inngripa og lifrarígræðslna og gæðaeftirlit,“ sagði í skýringum Landspítalans til Persónuverndar. 7.1.2012 06:00
Júlli búinn að opna Drauminn Júlíus Þorbergsson, kaupmaður í Draumnum við Rauðarárstíg, hefur opnað verslun sína á nýjan leik. Hún hefur verið lokuð í eitt og hálft ár, síðan lögregla gerði húsleit þar og innsiglaði hana sumarið 2010. 7.1.2012 05:00
Samkeppni um lokun hyldýpis Þingvallanefnd hefur efnt til samkeppni um gerð og hönnun öruggrar gönguleiðar um Kárastaðastíg þar sem djúp gjóta opnaðist í stíginn ofan í Almannagjá í fyrra. „Gjótan sem opnaðist í stígnum vorið 2011 kom öllum mjög á óvart, enda er hún allt að tíu metrar á dýpt og nokkrir tugir metra á lengd,“ segir í tilkynningu um samkeppnina sem haldin er í samvinnu við Arkitektafélag Íslands. Fram kemur að ekki sé einhugur í Þingvallanefnd um frágang gjótunnar. „Vonast er til að samkeppnin leiði fram einfalda og snjalla lausn á gerð gönguleiðarinnar.“ 7.1.2012 04:00
Sættast ekki á skertan hlut af auðlindum Bæjarráð Hveragerðis segist harma hugmyndir starfshóps sjávarútvegsráðherra um ráðstöfun veiðileyfagjalds vegna fiskveiða við Ísland. Samkvæmt hugmynd starfshópsins, sem skipaður var af Jóni Bjarnasyni, þáverandi sjávarútvegsráðherra, á 50 prósent af veiðileyfagjaldinu að renna í ríkissjóð, 40 prósent til sjávarbyggða og 10 prósent til þróunar- og markaðssmála í sjávarútvegi. 7.1.2012 03:30
Saurgaði heimsfrægt málverk í ölæði Kona í Denver í Bandaríkjunum hefur verið kærð fyrir að hafa skemmt heimsfrægt málverk á listasafni í borginni. 6.1.2012 23:30
Flugeldasýning fór úr böndunum í Tælandi Flugeldasýning endaði með hörmungum í Tælandi þegar neistar komust í skottertu. Flugeldar tertunnar sprungu án þess að skjótast á loft. 6.1.2012 21:30
Stephen Hawking: "Nýlendur á fjarlægum plánetum eru lífsnauðsynlegar" Eðlisfræðingurinn Stephen Hawking segir að heimsendir sé aðeins tímaspursmál og að mannkynið verði að nema land á fjarlægum plánetum. 6.1.2012 21:00
Giftingarhringur fannst í maga hunds Hjón í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum hafa loks haft upp á giftingarhring sem hvarf fyrir stuttu. Hringurinn fannst í maga 10 mánaða gamals bassetshund. 6.1.2012 23:00
Daniel Radcliffe sakbitinn vegna auðæva sinna Leikarinn Daniel Radcliffe segist hafa fengið óhóflega borgað fyrir að leika í Harry Potter kvikmyndunum og að hann sé í raun með samviskubit vegna þess hve góð launin voru. 6.1.2012 20:30
Yfir 50 unnu við snjóruðning Yfir 50 starfsmenn Reykjavíkurborgar og verktaka á hennar vegum voru við snjóhreinsun víða um borgina í dag. Eftir fannfergi næturinnar þurfti að opna aðalleiðir í efri byggðum borgarinnar og þegar það hlánaði í dag var byrjað að hreinsa frá niðurföllum. 6.1.2012 20:23
Aukin starfsemi á mörgum sviðum þrátt fyrir niðurskurð Komum á bráðamóttöku Landspítalans fjölgaði um 5,6% á nýliðnu árið miðað við árið á undan, legudögum fjölgaði um 3,5% og fjöldi skurðaðgerða jókst um 4,9%. Þetta kemur fram í föstudagspistli Björns Zoega forstjóra Landspítalans í dag. 6.1.2012 19:42
Þrjátíu árekstrar í dag Þrjátíu árekstrar hafa orðið á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan níu í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Árekstur.is eru sex ökutæki ónýt eftir daginn. Ástæða árekstranna er í flestum tilfellum hálka og snjór. Álíka margir árekstrar urðu á höfuðborgarsvæðinu í gær. Full ástæða er til þess að hvetja ökumenn til þess að fara varlega. 6.1.2012 18:47
Íhuga að tryggja konum skoðanir og greiða fyrir aðgerðir Velferðaráðuneytið íhugar að tryggja íslenskum konum með PIP sílikonpúða skoðanir og að greiða fyrir aðgerðir þar sem fjarlægja þarf púða sem leka. Nokkrar konur með gallaða púða hafa þegar látið fjarlægja þá að eigin frumkvæði. 6.1.2012 18:40
Ný lögreglustöð á Grensásvegi Ný lögreglustöð hefur verið opnuð á Grensásvegi 9 í Reykjavík. Þaðan er sinnt verkefnum austan Snorrabrautar til vestan Elliðaáa. Á lögreglustöðinni eru bæði almennt svið og rannsóknarsvið. Helstu stjórnendur eru Árni Vigfússon aðstoðaryfirlögregluþjónn, Gunnar Hilmarsson aðalvarðstjóri og Haraldur Sigurðsson lögreglufulltrúi. Árni er jafnframt stöðvarstjóri. 6.1.2012 18:17