Vilja afsökunarbeiðni vegna skaupsins 7. janúar 2012 17:51 Páll Magnússon, útvarpsstjóri.
Norræna félagið í Hveragerði mæltist í dag til þess að Páll Magnússon útvarpsstjóri bæðist afsökunar á brandara úr áramótaskaupinu þar sem fjöldamorðin í Noregi voru höfð í flimtingum. Þetta kom fram í yfirlýsingu sem birtist á vefsíðu Fréttablaðs Suðurlands. Yfirlýsingin í heild hljóðaði svona: "Norræna félagið í Hveragerði harmar að í áramótaskaupi Ríkisútvarpsins skuli fjöldamorðin í Noregi í sumar sem leið, hafa verið flokkuð sem tilefni spaugsyrða. Mælist félagið til þess að útvarpsstjóri biðjist opinberlega afsökunar á þessu atviki, ekki aðeins Norðmanna vegna, heldur einnig fyrir sakir sjálfsvirðingar Íslendinga. F.h. félagsins, Kristbjörg Erla Hreinsdóttir." Þar með bætist Norræna félagið í hóp þeirra sem hafa farið fram á afsökunarbeiðni. Páll hefur hins vegar áður gefið út að hann sjái ekki tilefni til afsökunarbeiðna. "Áramótaskaupið var óforskammað, ófyrirleitið, óbilgjarnt, ósanngjarnt, bráðfyndið og skemmtilegt. Ég var ánægður með það," var svar Páls við fyrirspurn DV vegna málsins. Hann þóttist líka sjá fyrir að það yrði töluvert fyrirtæki ef menn færu á annað borð út í það að biðjast afsökunar á bröndurum úr skaupinu. "Það yrði þá býsna langur nafnalisti, að sjálfum mér meðtöldum, og ég gerði þá ekki mikið annað fram að næsta Áramótaskaupi."
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Sjá meira