Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lögreglan lýsir eftir 13 ára gamalli stúlku Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Katrínu Ingu Haraldsdóttur, 13 ára. Hún er meðal vaxin, með mjög sítt ljóst hár. Líklega klædd í svarta úlpu, svartar buxur, svartan bol og fjólubláa Converse skó. Upplýsingasími lögreglunnar er 4441000. 15.11.2011 07:24
Salman Rushdie kominn í stríð við Facebook Hinn þekkti rithöfundur Salman Rushdie er kominn í stríð við Facebook. Ástæðan fyrir þessu er að Facrbook gerir þá kröfu að Rushdie noti sitt rétta nafn á Facebook síðu sinni en samkvæmt vegabréfi rithöfundarins heitir hann Ahmed Rushdie. 15.11.2011 07:20
Mario Monti á fullu við stjórnarmyndun Mario Monti heldur fyrstu formlegu fundi sína um nýja ríkisstjórn í dag og hittir þá meðal annarra leiðtoga tveggja stærstu stjórnmálaflokka landsins. 15.11.2011 07:16
138 ferðamenn dáið hér síðan árið 2000 Árlega deyja um 12 ferðamenn að meðaltali hér á landi af slysförum. Flest dauðsföllin eru tengd umferðinni en þeim hefur fækkað töluvert á síðustu árum. Alls hafa 138 manns látist á ferðalagi um Ísland síðan árið 2000. 15.11.2011 07:00
ESB-aðild þýðir meiri landbúnaðarstuðning Auka þarf stuðning við íslenskan landbúnaðar um fimm milljarða króna verði Ísland aðili að Evrópusambandinu og innflutningsvernd afnumin. Ella versnar afkoma bænda. Stuðningurinn nemur í dag níu milljörðum. Þetta kemur fram í skýrslu sem unnin var fyrir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið. 15.11.2011 06:00
Unglingar þurfa fleiri rafbækur Auka þarf framboð á íslenskum rafbókum fyrir spjaldtölvur í þeirri von að það veki áhuga unglinga á lestri. Þetta segir Íslensk málnefnd í ályktun um stöðu íslenskrar tungu frá því í síðustu viku. 15.11.2011 05:30
Frásögnum þolenda kynferðisbrota fjölgar Umræðan um kynferðisbrot innan þjóðkirkjunnar hefur gert það að verkum að fólk sækir í auknum mæli til presta og annarra starfsmanna kirkjunnar vegna kynferðisbrota. Þetta er mat sóknarpresta í Ísafjarðarkirkju og Akureyrarkirkju. 15.11.2011 05:00
Merkingum á orkudrykkjum ábótavant Neytendasamtökin hvetja stjórnvöld til að skylda innflytjendur og seljendur orkudrykkja til að hafa merkingar og aðvaranir á umbúðum drykkjanna skýrar og greinilegar. Samtökin voru mjög andvíg því þegar reglum var breytt og sterkir koffíndrykkir og koffínskot tóku að flæða inn á markaðinn, eins og segir í frétt á vef þeirra. 15.11.2011 04:30
Kvótinn og náttúran helstu deiluefni ríkisstjórnarinnar Innan þingflokks Samfylkingarinnar gerast þær raddir háværari sem telja að ná þurfi samkomulagi við sjávarútveginn um fyrirkomulag fiskveiðistjórnunar. Það muni ekki gerast nái ítrustu kröfur stjórnarflokkarnna fram að ganga. Þess vegna sé rétt að ná fram þeim grundvallarbreytingum sem taldar eru nauðsynlegar, en einfalda útfærslu kvótafrumvarpsins. 15.11.2011 04:00
Lögreglan varar við tveim meintum þjófum Undanfarna daga hefur verið töluvert um innbrot í heimahús á höfuðborgarsvæðinu og varar lögreglan fólk við vegna þessa. Flest innbrotin eru í sérbýli sem staðsett eru við jaðar byggðar og eru þau dreifð um höfuðborgarsvæðið. 15.11.2011 03:30
Kvörtuðu yfir afstöðu Rússa Ísland hefur komið á framfæri vonbrigðum vegna afstöðu Rússlands til ráðgjafar ICES um stjórnun úthafskarfa á Reykjaneshrygg. Þetta var gert á 12. fundi samstarfsnefndar Íslands og Rússlands um sjávarútvegsmál sem haldinn var í byrjun október. 15.11.2011 03:15
Leitað að Katrínu Ingu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Katrínu Ingu Haraldsdóttur, 13 ára. Katrín Inga er meðalvaxin, ljóshærð með mjög sítt hár. Talið er að Katrín Inga sé klædd í svarta úlpu, svartar þröngar buxur, svartan bol og fjólubláa Converse skó. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Katrínar Ingu eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000. 14.11.2011 23:10
Braust inn og skreytti fyrir jólin Jólabarnið Terry Trent var handtekinn af lögreglunni í Ohio í Bandaríkjunum í gær. Terry, sem er 44 ára gamall, er grunaður um að hafa brotist inn á heimili fjölskyldu og skreytt fyrir jólin. 14.11.2011 22:29
Ungur frumkvöðull sviptir sig lífi Einn af stofnendum samskiptasíðunnar Diaspora* fannst látinn á heimili sínu í San Francisco í dag. Ilya Zhitomirskiy var 22 ára og stofnaði samskiptasíðuna ásamt þremur félögum sínum. 14.11.2011 23:05
Vill varúðarmerkingar á ljósmyndum af fyrirsætum Jafnréttisráðherra Noregs, Audun Lysbakken, vill að ljósmyndir af fyrirsætum verði ávallt birtar með varnaðarorðum líkt og tíðkast á tóbaksumbúðum. Hann telur að tölvubreyttar myndir af konum ýti undir neikvæða sjálfsmynd stúlkna. Með þessu vill Lysbakken berjast gegn átröskun ungs fólks. 14.11.2011 21:23
Níu látnir eftir öfluga sprengingu í Kína Níu létust og rúmlega 30 særðust eftir að sprenging átti sér stað á veitingastað í Kína í dag. Sprengingin var gríðarlega öflug og splundruðust rúður í allt að þriggja kílómetra fjarlægð. 14.11.2011 20:38
Kjósa flokkinn frekar undir forystu Hönnu Birnu Almennir kjósendur segjast líklegri til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef Hanna Birna Kristjánsdóttir verður kjörinn formaður flokksins. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem stuðningsmenn hennar létu framkvæma. 14.11.2011 18:16
Mannréttindanefnd skoðar Twitter-mál Birgittu Mannréttindanefnd Alþjóðaþingmannasambandsins hefur tekið málefni Birgittu Jónsdóttur til umfjöllunar í kjölfar kröfu bandarískra stjórnvalda um aðgang að persónulegum upplýsingum Birgittu á samskiptamiðlum, þ.m.t. Twitter að því er greinir frá í tilkynningu frá Hreyfingunni. 14.11.2011 16:00
Við erum ekki næstfeitust - í versta falli sjötta feitasta þjóðin Við erum ekki næst feitasta þjóðin á Vesturlöndum samkvæmt Stefáni Hrafni Jónssyni, lektor við HÍ, sem gagnrýnir fjölmiðla og rannsókn sem var gerð um offitu Íslendinga. Í fréttum Stöðvar 2 var því haldið fram að Íslendingar væru orðnir næstfeitasta þjóð, ýmist í heimi, á Vesturlöndum eða meðal OECD-ríkja, næst á eftir Bandaríkjamönnum. 14.11.2011 15:31
Varað við innbrotsþjófum - þeir banka upp á og bera upp ýmis erindi Undanfarna daga hefur verið töluvert um innbrot í heimahús á höfuðborgarsvæðinu og vill lögreglan vara fólk við vegna þessa. Flest innbrotin eru í sérbýli sem staðsett eru við jaðar byggðar og eru þau dreifð um höfuðborgarsvæðið. 14.11.2011 15:10
Lindex tekið opnum örmum - stærsta opnun í sögu fyrirtækisins Sænska tískuvöruverslunin Lindex opnaði um helgina í Smáralind og fékk vægast sagt góðar undirtektir en um stærstu opnun í sextíu ára sögu fyrirtækisins er að ræða. Aðstandendur verslunarinnar hér á landi, þau Albert Þór Magnússon og Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir mættu voru gestir þáttarins Í bítið í morgun. 14.11.2011 11:57
Giffords tjáir sig í fyrsta sinn um skotárásina Bandaríska þingkonan Gabrielle Giffords, sem skotin var í höfuðið af stuttu færi af óðum byssumanni í janúar á þessu ári hefur nú í fyrsta sinn tjáð sig við fjölmiðla. Giffords ræddi við sjónvarpskonuna Diane Sawyer í fréttaþættinum 20/20 á sjónvarpsstöðinni ABC en þátturinn fer í loftið í kvöld. 14.11.2011 17:03
Saurmengun í vatnsbóli - ófremdarástand í skolpmálum Ófremdarástand virðist vera í skolpmálum í sveitarfélaginu Garði. Víkurfréttir greina frá því að mannaskítur hafi flætt upp um niðurföll við hús eitt í bænum í síðustu viku og þá hefur greinst saurmengun í einu vatnsbóli bæjarins. Í frétt Víkurfrétta segir þó að engin tengsl virðist vera á milli þessara tveggja atvika. 14.11.2011 15:38
Þriggja bíla árekstur á Vestfjörðum Þrjú umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á Vestfjörðum í síðustu viku. Þannig varð umferðaróhapp á Skutulsfjarðarbraut síðasta mánudag þegar bifreið var sveigt af Skutulsfjarðarbraut í átt að íþróttahúsinu, með þeim afleiðingum að önnur bifreið ók aftan á bílinn. Ökumaður annars bílsins var fluttur á sjúkrahúsið á Ísafirði til skoðunar. 14.11.2011 14:32
Herjólfur til Þorlákshafnar út þessa viku Vestmannaeyjaferjan Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar fram til sunnudagsins 17. nóv. næstkomandi. Í tilkynningu frá rekstraraðila ferjunnar segir að ástæðan sé dýpi í Landeyjahöfn, eða skortur á því öllu heldur, og mikill öldugangur sem geri það að verkum að ekki hefur verið hægt að mæla dýpið hvað þá að vinna við dýpkun. 14.11.2011 14:20
Jórdaníukonungur vill að Assad segi af sér Abdúllah konungur Jórdaníu segir að Bashar al-Assad Sýrlandsforseti ætti að segja af sér. Konungurinn lét þessi orð falla í viðtali við breska ríkisútvarpið BBC. Abdúllah segir að væri hann í skóm Assads myndi hann segja af sér og sjá til þess að eftirmaður hans gæti breytt því ófremdarástandi sem nú ríki í landinu. 14.11.2011 14:17
Erlingur dæmdur í ellefu ára fangelsi í Litháen Erlingur Örn Arnarson var dæmdur í ellefu ára fangelsi í Vilnius í Litháen í júní síðastliðnum fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Þetta staðfestir utanríkisráðuneytið. 14.11.2011 14:02
Rúnar sigraði Kaurismäki, Cronenberg og Lars von Trier Kvikmyndin Eldfjall eftir Rúnar Rúnarsson vann aðalverðlaun dómnefndar á kvikmyndahátíðinni í Denver í gærkvöldi. Rúnar sló þar með við meisturum á borð við við Lars von Trier, David Cronenberg, Aki Kaurismäki og fleiri. Verðlaunin eru kennd við pólska leikstjórann Krzysztof Kieslowski sem líklega er þekktastur fyrir þríleikinn Hvítan, Rauðan og Bláan. Að þessu sinni kepptu tæplega hundrað myndir um verðlaunin að því er fram kemur í tilkynningu. 14.11.2011 13:44
Enn leitað að samlokuperra á Land Cruiser Lögreglan hefur ekki haft hendur í hári manns sem reyndi að tæla tólf ára dreng upp í Land Crusier-jeppa sem hann ók á í gær. Samkvæmt frásögn drengsins reyndi maðurinn að lokka hann upp í bílinn með því að bjóða honum samloku. 14.11.2011 13:14
Hannes hunsaður af gömlum kommúnistum "Ég bar þetta undir nokkra en fékk engin svör,“ segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, en hann hefur skrifað bókina "Íslenskir kommúnistar 1918–1998“, en þar er talsvert fjallað um njósnir á Íslandi. Hannes bar nokkur atriði undir gamla kommúnista og þá sem við sögu koma í bókinni. 14.11.2011 13:00
Breivik áfram í varðhaldi í tólf vikur hið minnsta Dómari í Osló úrskurðaði í dag að fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik skyldi sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi í 12 vikur. Dómarinn segir ekki loku fyrir það skotið að Breivik gæti eyðilagt sönnunargögn fengi hann að ganga laus auk þess sem ekki sé útilokað að hann hafi fengið hjálp við að drýgja ódæðin í Osló og í Útey í júlí. 14.11.2011 12:59
Alkar kosta þjóðfélagið 50 - 80 milljarða króna á ári Alkahólismi kostar þjóðfélagið fimmtíu til áttatíu milljarða króna á ári samkvæmt meistarannsókn í heilsuhagfræði. Aðilar þurfi að hugsa um afleiðingarnar áður en frelsi er aukið í áfengissölu segir höfundur rannsóknarinnar. 14.11.2011 12:14
Útgjöld ríkisins hafa lítið sem ekkert hækkað í nítján ár Gjaldskrá sjúkratrygginga Íslands er alltof lág miðað við gjaldskrá tannlækna hér á landi. Útgjöld ríkisins til tannlækninga hafa einungis hækkað um tvö prósent á síðustu nítján árum samanborið við yfir hundrað og þrjátíu prósenta verðlagshækkun á sama tíma. 14.11.2011 12:04
Reyndi að tæla dreng upp í Landcruiser-jeppa Tólf ára drengur varð fyrir því í gær að maður reyndi að lokka hann upp í bíl í Grindavík. Lögreglunni var strax gert viðvart um atvikið og að hennar sögn bauð maðurinn drengnum samloku ef hann settist upp í bílinn. 14.11.2011 12:00
Segjast dafna betur og basla minna Miklu fleiri Íslendingar segjast nú dafna og miklu færri vera í basli en fyrir ári. Þetta kemur fram í könnun Capacent sem ætlað að varpa ljósi á líðan íslensku þjóðarinnar. 14.11.2011 11:30
Innkalla kjúklinga - grunur um salmonellusmit Komið hefur upp grunur um salmonella smit í ferskum kjúklingi framleiddum af Matfugli ehf. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að frekari rannsókna sé þörf en þangað til þyki rétt að innkalla vöruna. 14.11.2011 11:27
TF Sif fann hátt í 40 flóttamenn - smyglarar handteknir Í eftirlitsflugi Sifjar, flugvélar Landhelgisgæslunnar aðfaranótt föstudags, fyrir Frontex, landamærastofnun Evrópusambandsins, greindist í eftirlitsbúnaði flugvélarinnar grunsamlegur bátur sem staðsettur var 16,6 sjómílur suðaustur af Otranto, í Pugliu á Ítalíu. 14.11.2011 11:15
Vill eftirlitsheimildir vegna barnaníðinga Bragi Guðbrandsson, forstöðumaður Barnaverndarstofu, segir knýjandi að Alþingi samþykki lög sem geri kleift að hafa eftirlit með þeim kynferðisbrotamönnum sem hættulegastir séu börnum. 14.11.2011 11:15
Dómarinn þurfti ítrekað að biðja Breivik að halda kjafti Dómarinn í fyrsta opna réttarhaldinu yfir fjöldamorðingjanum Anders Breivik þurfti ítrekað að biðja Breivik að halda kjafti eftir að morðinginn var beðinn um að svara því hvort hann teldi sig sekan eða saklausann. 14.11.2011 10:49
Níu dauðsföll vegna offitu á Íslandi Átta konur og einn karl hafa dáið úr offitu hér á landi síðan árið 2002, samkvæmt dánarmeinaskrá Landlæknis. Þrjár konur létust árið 2009 og er það mesti fjöldi sem skráður hefur verið. Ekki eru komnar tölur frá Landlækni fyrir árið 2010. 14.11.2011 10:45
Þarf að sitja inni og greiða fórnarlambinu tæpar fimm milljónir Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í níu mánaða fangelsi, þar af sjö mánuði skilorðsbundna, fyrir að hafa slegið íþróttamanna fyrirvaralaust á Laugaveginum um síðustu áramót. Þá er árásarmanninum gert að greiða manninum á fimmtu milljón. 14.11.2011 10:23
Keith segir að Jagger sé díva Keith Richards gítarleikarinn þrautsegi í Rolling Stones segir að félagi sinn í bandinu, Mick Jagger, sé díva. Hann segir að þeir félagar séu eins og bræður sem geti rifist eins og hundur og köttur en alltaf elskað hvorn annan. Þetta kemur fram í viðtali við Guardian. 14.11.2011 10:11
Skilaði inn tilhæfulausri tjónstilkynningu Karlmaður var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í dag, fyrir skjalafals, fjársvik og fíkniefnalagabrot. Maðurinn, sem er fæddur 1984, var meðal annars dæmdur fyrir að hafa skilað til tryggingafélagsins Sjóvá-Almennar tryggingar falsaðri og tilhæfulausri tjónstilkynningu um árekstur bifreiða í eigu systur sinnar og annars karlmanns. Maðurinn játaði brot sín skýlaust. 14.11.2011 10:01
Magnaðar myndir úr alþjóðlegu geimstöðinni Þjóðverjinn Michael König vann þetta myndband úr hráefni frá NASA sem geimfarar í alþjóðlegu geimstöðinni tóku á tímabilinu ágúst til september 2011. Það er ekki sýnt í rauntíma heldur er það samsett úr miklum fjölda ljósmynda sem geimfararnir tóku. 14.11.2011 09:54
Börn Sævars Ciesielski afhenda ráðherra gögn Börn Sævar Ciesielski, sem var dæmdur fyrir að hafa orðið Guðmundi og Geirfinni að bana, ætla að afhenda Ögmundi Jónassyni, innanríkisráðherra, mikið magn málsskjala og gagna sem tengjast málinu, og voru í vörslu Sævars þegar hann lést. Þau munu afhenda ráðherranum skjölin klukkan eitt í dag 14.11.2011 09:26