Fleiri fréttir

Lánshæfismat hækkaði við fréttirnar

Í kjölfar staðfestingar þess að Eistland muni taka upp evru í janúar næstkomandi hækkaði matsfyrirtækið Standard & Poor‘s (S&P) lánshæfiseinkunn landsins um einn flokk, úr A- í A, í gær.

Áhugi á frekari rannsóknum

Sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar hafa áhuga á að kanna frekar áhrif gossins í Eyjafjallajökli á fiskistofna hér við land. Þó er talið ólíklegt að það takist að einangra þátt gossins frá öðrum áhrifavöldum á vöxt og viðgang fiskistofna við landið.

Endurspeglun á samtímanum

Ljóðbók sem unnin er upp úr skýrslu Rannsóknanefndar Alþingis er komin út. Ber hún heitið Gengismunur og er eftir skáldið Jón Örn Loðmfjörð. Jón vann ljóðin með hjálp ljóðavélarinnar Gogga, tölvuforrits sem hann þróaði árið 2007 í þeim tilgangi að ná fram og búa til tilviljanakennda texta í rauntíma úr Moggablogginu.

Wilders vill í stjórn en mætir andstöðu

„Hið ómögulega gerðist," sagði Geert Wilders, leiðtogi þjóðernissinna í Hollandi. „Við unnum stærsta sigur kosninganna. Við viljum í stjórn." Wilders hefur boðað harða stefnu gegn innflytjendum, einkum þó múslímum, og hefur hvað eftir annað lýst trúarritum múslíma sem fasískum. Ljóst er að aðrir flokkar vilja helst ekki hafa hann með sér í stjórn.

Vilja aflétta launafrystingu

Kjaramálanefnd Sjúkraliðafélagsins krefst þess að frystingu launa sjúkraliða verði aflétt. Launin hafi staðið í stað síðan samningar urðu lausir fyrir 14 mánuðum síðan. Í yfirlýsingu nefndarinnar frá því í gær segir meðal annars að félagsmálaráðherra lýsi opinberum kvennastéttum stríði á hendur með launafrystingu.

Hrottalegar líflátshótanir

Ríkissaksóknari hefur ákært þrjá menn í Reykjanesbæ fyrir að hóta lögreglumönnum lífláti, einn þremenninganna fyrir að hóta að skera börn tveggja lögreglumanna á háls og annan þeirra fyrir hrækja í andlit og á höfuð lögreglumanns. Öll áttu brotin sér stað á síðasta ári.

Íslandsdagur í Eistlandi

Eistar ætla að halda Íslandsdag hátíðlegan 21. ágúst 2011. Þetta kom fram í máli Toomas Ilves, forseta Eistlands, á Bessastöðum í gær en hann er í opinberri heimsókn á Íslandi.

Áhrif á Ísland

Óvíst er hvaða áhrif kosningaúrslitin hafa á Icesave-málið, sem hefur að mestu verið í biðstöðu frá því að Íslendingar höfnuðu samningnum við Breta og Hollendinga í þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars.

Bað þjóðina afsökunar á sjónarspili

Þráinn Bertelsson, óháður þingmaður, bað þjóðina afsökunar á því að vera þátttakandi í því dapurlega sjónarspili sem fram hafi farið á Alþingi í gær. Þingið komist ekki úr hjólförum haturs og gagnkvæmra ásakana.

Tillögum um nýtt hús Landspítalans skilað

Gögnum vegna frumhönnunar nýs Landspítala var skilað inn til Ríkiskaupa í gær. Alls vinna fimm hönnunar­hópar að tillögum. Niðurstöður samkeppninnar verða gerðar opinberar 9. júlí.

Setja þak á innheimtukostnað

Alþingi samþykkti í gær breytingar á lögum sem veita gjaldþrota einstaklingum heimild til að búa í íbúðarhúsnæði sínu í allt að tólf mánuði eftir nauðungarsölu, með leyfi skiptastjóra.

Lífstíð fyrir þjóðarmorð

Þrír Bosníuserbar hafa verið dæmdir sekir fyrir þjóðarmorð af Stríðsglæpadómstólnum í Haag. Tveir fengu lífstíðarfangelsi og sá þriðji 35 ára dóm.

Aðgengi bætt fyrir fatlað fólk

Veiðifélag Breiðdalsár hefur einsett sér að bæta aðgengi við ána með lagningu vegslóða og koma í veg fyrir að ökutækjum sé beitt á ósnortið land.

Piltur skotinn við landamæri

Mexíkóbúar eru reiðir Bandaríkjamönnum vegna atviks í El Paso á mánudag, þegar fjórtán ára piltur lét lífið eftir að hafa fengið skot í sig frá bandarískum landamæravörðum.

Bretum sama um blótsyrði

Rannsókn fjölmiðlafyrirtækisins Ofcom í Bretlandi sýnir fram á að flestir Bretar eru tilbúnir til að leiða hjá sér blótsyrði í fjölmiðlum.

Jagúar rennur á Calvin Klein

Tveir líffræðingar sem starfa að verndun jagúara í þjóðgarði í Gvatemala hafa fundið fullkomna leið til að laða hin tignarlegu kattardýr að myndavélunum sem notaðar eru til að fylgjast með þeim og skrásetja. „Obsession for Men“ rakspíri frá Calvin Klein er allt sem þarf.

Tvö ár fyrir að nauðga stúlku

Ungur maður hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða fórnarlambinu 800 þúsund krónur í miskabætur.

Nýjar leiðir í gæðamati á fiski

Fyrsti nemandinn frá Úganda við Háskólann á Akureyri, Lillian Chebet, lauk meistaranámi í auðlindafræði síðasta miðvikudag. Lillian hefur stundað nám sitt síðastliðin tvö ár á Akureyri fyrir tilstuðlan Sjávarútvegsskóla háskóla Sameinuðu þjóðanna (UNU-FTP) eftir sex mánaða þjálfun í Reykjavík.

Algengast að ungir þjófar komi aftur

Ísland kemur mjög vel út í samanburði við aðrar Norðurlandaþjóðir hvað varðar endurkomur brotamanna í fangelsi. Langalgengast er, að ungir þjófar komi aftur.

Ölvaðir ökumenn nýkomnir úr Vínbúð

Tveir ölvaðir ökumenn voru teknir við akstur um klukkan þrjú í dag. Báðir voru þeir nýkomnir úr Vínbúð á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Telur bílafríðindi úr takti við aðhaldsaðgerðir

Hanna Birna Kristjánsdóttir, fráfarandi borgarstjóri, hefur komið á framfæri athugasemdum við stjórnendur Orkuveitunnar vegna bílafríðinda stjórnenda sem hún telur úr takti við aðhaldsaðgerðir borgarinnar. Málið er nú á borði Hjörleifs Kvaran, forstjóra Orkuveitunnar, sem liggur undir feldi.

Norðmenn dæmdir aftur til dauða í Kongó

Herdómstóll í Kongó dæmdi tvo Norðmenn til dauða í annað skiptið. Dæma þurfti aftur í málinu vegna tæknilegra atriða, segir í frétt The Guardian.

Vandamál eftir detox meðferðir

Dæmi eru um að fólk komi úr svokallaðri Detox meðferð í blóðþrýstingskrísu og sé lagt inn á bráðadeild Landspítalans, segir Svanur Sigurbjörnsson lyflæknir.

Nauðgaði barnapíunni - dómur þyngdur um eitt ár

Hæstiréttur hefur þyngt dóm yfir karlmanni á fertugsaldri, Gísla Birgissyni, sem var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í héraðsdómi fyrir kynferðisbrot gegn stúlku sem þá var fjórtán ára en hann þrjátíu og tveggja. Hæstiréttur þyngdi dóminn um eitt ár, og var hann því dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi.

Rekstur borgarinnar á áætlun

Samkvæmt árshlutareikningnum Reykjavíkur er rekstrarniðurstaða A-hluta borgarsjóðs nánast á pari við áætlun, segir í tilkynningu.

Meintur hrotti áfram í gæsluvarðhaldi

Gæsluvarðhaldsúrskurð yfir hrotta sem grunaður er um að hafa gengið í skrokk á 64 ára gömlum manni, eiginkonu hans og dóttur við heimili þeirra í Reykjanesbæ þann 3. maí síðastliðinn, var framlengdur til 7. júlí. Hæstiréttur staðfesti úrskurðinn í dag. Með honum var annar maður.

Tíðindalítið á gosstöðvunum

Ekkert hefur sést til gosstöðvanna á Eyjafjallajökli í dag. Af og til mælast stöku litlir skjálftar undir og við toppgíginn og eru þeir yfirleitt grunnir, að því er kemur fram í skýrslu Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans.

Mótmæla aðgerðum ríkisstjórnarinnar

Framkvæmdastjórn Öryrkjabandalags Íslands mótmælir fyrirhugaðri skerðingu á þjónustu við fatlaða og lífsafkomu öryrkja. Stjórnin býður ríkisstjórninni aðstoð við að forgangsraða við fjárlagagerð næsta árs með jafnrétti og mannréttindi að leiðarljósi og þannig að koma megi í veg fyrir frekari skerðingar í velferðarkerfinu.

Mikið um björgunarstörf á Suðurnesjum

Annríki hefur verið síðustu daga hjá björgunarsveitum á Suðurnesjum við hin ýmsu verkefni. Verkefnin hafa bæði verið á sjó og landi. Þannig hafa björgunarmenn náð í sauðfé í sjálfheldu í Krýsuvíkurbjargi og þá hafa smábátar verið í vanda um allan sjó samkvæmt fréttasíðu Víkurfrétta, vf.is.

Þarf að reyksprengja húsgögnin eftir svartan myglusvepp

„Þeir lofuðu að hreinsa það sem hægt er að bjarga og koma því heim. En það var ekkert meira, þeir voru ekki að bjóða mér bætur eða niðurfellingar eða eitthvað svoleiðis," segir Margrét Andrésdóttir, einstæð þriggja barna móðir á Egilsstöðum. Eins og Vísir greindi frá á þriðjudaginn þurfti Margrét að yfirgefa húsnæði sem Sveitarfélagið Fljótsdalshérað útvegaði henni eftir að svartur myglusveppur gerði vart við sig. Margrét missti nánast allt innbúið sitt og hún og börnin hennar urðu mikið veik í kjölfarið.

Hjón sektuð fyrir að nota litaða díselolíu

Hjón voru sektuð í Héraðsdómi Suðurlands í morgun fyrir að hafa notað litaða díselolíu í stað bensíns. Um er að ræða brot á lögum um olíugjald og kílómetragjald. Lögreglan stöðvaði þau á Hrísmýri á Selfossi í janúar síðastliðnum.

Fimm hjálparstarfsmenn á Haítí

Gunnar Helgason, hjúkrunarfræðingur, kom til Haítí í dag þar sem hann mun starfa næstu vikur fyrir Rauða kross Íslands á sjúkrahúsi finnska og þýska Rauða krossins í Port-au-Prince. Á vegum Rauða kross Íslands eru nú fimm hjálparstarfsmenn á jarðskjálftasvæðinu, þar sem enn ríkir mikil og sár neyð.

Pilturinn fundinn - var sofandi í bíl

Piltur sem leitað hefur verið að í morgun og í dag er fundinn heill á húfi. Fannst hann í bifreið við sveitabæ um 5 kílómetrum frá sumarbústaðnum þar sem síðast sást til hans. Bóndinn á bænum fann piltinn sofandi í bílnum.

Þriðjungur sendi Íslands-kynninguna

Níu af hverju tíu svarendum í könnun MMR um viðhorf og þátttöku almennings í „Inspired by Iceland“ átaki ferðaþjónustunnar telja átakið vel heppnað.

Segir Björn Val naga gamalt bein

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, gefur lítið fyrir gagnrýni Björns Vals Gíslasonar, þingmanns VG, um styrkveitingar til Sjálfstæðisflokksins og frambjóðenda flokksins. Björn Valur hóf umræðu um styrki Landsbankans og FL-Group til Sjálfstæðisflokksins á Alþingi í hádeginu.

Árni Þór Sigurðsson: Ég er ekki frú

„Forseti vekur athygli þingmannsins á að sá forseti sem hér stendur er ekki orðinn frú ennþá,“ sagði Árni Þór Sigurðsson, varaforseti Alþingis, þegar hann gerði athugasemd við ræðu Þórunnar Sveinbjarnardóttur, þingflokksformanns Samfylkingarinnar.

Flestir sleppa við að borga skatt af lánaleiðréttingu

Fólk mun ekki þurfa að greiða skatt af leiðréttingu bíla - og íbúðalána - nema þeir einstaklingar sem hafa fengið yfir tíu milljónir króna afskrifaðar, og þau hjón sem hafa fengið yfir 20 milljónir króna niðurfelldar. Þetta kemur fram í frumvarpi sem fjármálaráðherra mælir fyrir á Alþingi í dag.

Leitin engan árangur borið - 140 manns leita

Um 140 björgunarsveitamenn af svæðinu frá Mosfellsbæ að Höfn í Hornafirði leita enn að Viktori Sigvalda Björgvinssyni sem fór frá sumarbústað í Landbroti í nótt. Leitin hefur engan árangur borið. Viktor Sigvaldi, sem er á tvítugsaldri, var við gleðskap í sumarbústað í nótt en fór þaðan á fjórða tímanum og hefur ekkert spurst til hans síðan.

Sjá næstu 50 fréttir