Innlent

Pilturinn fundinn - var sofandi í bíl

Piltur sem leitað hefur verið að í morgun og í dag er fundinn heill á húfi. Fannst hann í bifreið við sveitabæ um 5 kílómetrum frá sumarbústaðnum þar sem síðast sást til hans. Bóndinn á bænum fann piltinn sofandi í bílnum.

Um 160 björgunarsveitamenn af Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu tóku þátt í leitinni.

Maðurinn var í gleðskap en rauk þaðan í fússi á fjórða tímanum í nótt. Hann var illa klæddur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×