Flestir sleppa við að borga skatt af lánaleiðréttingu 10. júní 2010 12:05
Fólk mun ekki þurfa að greiða skatt af leiðréttingu bíla - og íbúðalána - nema þeir einstaklingar sem hafa fengið yfir tíu milljónir króna afskrifaðar, og þau hjón sem hafa fengið yfir 20 milljónir króna niðurfelldar. Þetta kemur fram í frumvarpi sem fjármálaráðherra mælir fyrir á Alþingi í dag. Um er að ræða breytingar á lögum um tekjuskatt og skattalega meðferð á eftirgjöf skulda. Ákvæðin eru til bráðabirgða og ná til tekjuáranna 2009, 2010 og 2011. Samkvæmt frumvarpinu er í stað fullrar tekjufærslu á eftirgjöf skulda heimilt að telja ekki til tekna allt að samtals 10 milljónir króna hjá einstaklingi og samtals 20 milljónir hjá hjónum eða samsköttuðum vegna greiðsluerfiðleika á áðurnefndu tímabili. Ef niðurfelling skulda fer fram úr þessum fjárhæðum má falla frá tekjufærslu sem nemur helmingi af eftirgjöfinni að hámarki samtals 20 milljónum króna hjá einstaklingi og 40 milljónum hjá hjónum. Í athugasemdum við frumvarpið segir að miðað við þær upplýsingar sem liggi fyrir um skuldastöðu heimilanna kæmi í langflestum tilvikum ekki til neinnar skattskyldu vegna leiðréttingar og eftirgjafar á skuldum. Þetta á jafnt við um skuldir vegna húsnæðis - og bílakaupa. Í frumvarpinu er tekið dæmi um hjón með gengistryggt lán sem stendur í 100 milljónum króna vegna fasteignar sem metin er á 40 milljónir króna. Miðað við 110% leið bankanna, gæti eftitgjöf viðskiptabanka hjónanna numið 56 milljónum króna. Hluti af þessari eftirgjöf teldist skilmálabreyting og hluti niðurfelling. Verði frumvarpið óbreytt að lögum þyrftu áðurnefnd hjón að greiða skatt af um það bil 3 milljónum króna. Heimilt er að fresta skattlagningu um tvö ár og að þeim tíma liðnum er hægt að dreifa skattgreiðslum á fimm ár. Árlegur tekjuskattur og útsvar yrði þannig 240 þúsund krónur á fimm árum.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira