Fótspor þúsunda kvenna til sýnis 10. júní 2010 14:41 Frá Kvennahlaupi ÍSÍ fyrir tveimur árum.
Síðar í dag verður opnuð myndlistarsýningin „Spor þúsunda kvenna" í göngugötunni á Garðatorgi. Hluti verksins, sem skapað var í Kvennahlaupinu 2009, hefur verið bútaður niður í litlar myndir sem verða til sýnis og sölu í júní, en allur ágóði rennur óskiptur til Krabbameinsfélags Íslands. Hinn hluti verksins hefur verið keyptur af Garðabæ og mun forstjóri Krabbameinsfélagsins, Ragnheiður Haraldsdóttir, afhenda bænum verkið í dag.Fjölmennasti listgjörningur sem gerður hefur verið á Íslandi Í Kvennahlaupinu 2009, sem haldið var í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands, tóku þúsundir kvenna þátt í sköpun á listaverki er þær hlupu yfir renning við startlínu hlaupsins og mótuðu þannig með sporum sínum glæsilegt listaverk sem skiptist í tvo 10x2 metra striga sem endurspegla hvorn annan. Listgjörningurinn var framinn af sautján listakonum frá Garðabæ og Álftanesi sem í kjölfarið hafa stofnað samtökin Grósku. „Í maí 2009 fóru skipuleggjendur Kvennahlaupsins hjá ÍSÍ þess á leit við okkur að gera listaverk eða gjörning í tengslum við Kvennahlaupið í Garðabæ í tilefni af því að hlaupið var haldið í 20. sinn," segir Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir, sem bæði tók þátt í framkvæmd verksins og átti upphaflegu hugmyndina. „Við vildum búa til listaverk sem sýnir hina miklu þátttöku kvenna í hlaupinu og þá samstöðu sem hún endurspeglar, og vildum því að hver þessara kvenna legði sitt af mörkum. Þær reyndust svo vera um 5.500 og því fjölmennasti gjörningur sem gerður hefur verið á Íslandi, að okkar viti!"Garðabær kaupir listaverk Sem fyrr segir hefur annar striginn nú verið bútaður niður í litlar myndir: 40x40 cm og 45x45 cm og verða þær til sýnis og sölu á Garðatorgi 10.-20. júní. Allur ágóði af sölu verkanna rennur til Krabbameinsfélags Íslandsins. Hinn striginn hefur verið keyptur af Garðabæ, en forstjóri Krabbameinsfélagsins, Ragnheiður Haraldsdóttir, mun afhenda hann við opnun sýningarinnar. „Samstöðumáttur kvenna er gríðarsterkt afl. Við vonum að þær konur sem áttu þátt í gerð listaverksins fjárfesti í hluta þess og minnist þannig þátttöku í einhverjum stærsta listgjörningi sem við höfum séð hér á landi," segir Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands. „Okkur þykir afar vænt um þann stuðning sem okkur er sýndur með þessum viðburði og hvetjum konur áfram til að sinna bæði eigin heilsu og að mæta reglulega í skoðun."
Mest lesið Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Erlent Hrókeringar í þingnefndum og Grímur segir af sér Innlent Faðirinn ákærður fyrir að beita Oscar ofbeldi Erlent Talinn ógn við samfélagið og vísað úr landi Innlent Óttast gremju uppgjafahermanna í Rússlandi Erlent „Ég hef alveg heyrt mun verri hugmyndir en þetta“ Innlent Stúdentar klóra sér í kollinum yfir hækkun Loga Innlent Ellefu vilja vera ritstjóri Kveiks Innlent „Sérstök“ ræða forseta sem hafi hoppað á umræðuvagninn Innlent Íslendingur fastur í Nepal: „Við erum búin að halda okkur inni allan tímann“ Erlent Fleiri fréttir Fékk milljón vegna afmælis kattarins Ríkisstjórnin feli sig á bak við mistök þeirrar fyrri Um 100 þúsund lömbum slátrað hjá SS á Selfossi „Ísland á betra skilið“ Biður þingmenn að gæta orða sinna Stefnuræða forsætisráðherra á dagskrá í kvöld Óásættanlegt hversu margir falla fyrir eigin hendi Áhyggjuefni að menn missi stjórn á atburðarásinni Fundu fyrir jarðskjálfta í Hveragerði Kærður fyrir fjársvik fyrir að neita að borga Einbeittur brotavilji og óásættanlegur fjöldi sjálfsvíga Ellefu vilja vera ritstjóri Kveiks Samfélagslega mikilvæg innviðafjárfesting að efla íslenska tungu Alþingi efnir til stefnuræðubingós Stúdentar klóra sér í kollinum yfir hækkun Loga Húsbrot á höfuðborgarsvæðinu: Oft sama fólkið sem brýst ítrekað inn í fleiri fjölbýlishús „Sérstök“ ræða forseta sem hafi hoppað á umræðuvagninn Segir gott að brugðist var við með valdi og NATO þurfi að sýna styrk Stilltu til friðar á óformlegum fundi í gær Talinn ógn við samfélagið og vísað úr landi Hugsanlega verið að reyna á einingu NATO-ríkja Hrókeringar í þingnefndum og Grímur segir af sér Rússneskir drónar í pólskri lofthelgi og „sérstök“ ræða forseta Íslands Tekist á um hvort framlag í séreign sé launagreiðsla Mikill meirihluti óánægður með leigubílamarkaðinn „Ég hef alveg heyrt mun verri hugmyndir en þetta“ Stjórnarandstaðan þurfi ný tæki í hendur eftir darraðardans sumarsins Með töskurnar fullar af marijúana Umboðsmaður afgreiddi 566 mál og skilaði 21 áliti Tuttugu prósent meira fjármagn í utanríkismál á næsta ári Sjá meira