Fleiri fréttir

Reykingar kosta 100.000 á hvern mann

Samfélagslegur kostnaður vegna reykinga á ári svarar til þess að allir Íslendingar greiði um 94 þúsund krónur úr eigin vasa. Sígarettupakkinn þyrfti að kosta um 3.000 krónur ef reykingamenn ættu sjálfir að bera allan kostnað sem fellur á samfélagið árlega.

Tóku tuttugu kókaínskammta

Lögregla lagði hald á tuttugu skammta af hvítu efni sem talið er vera kókaín, auk lauss efnis og íblöndunarefnis í tveimur íbúðum í Reykjavík á miðvikudagskvöld. Tveir karlmenn og ein kona voru handtekin á staðnum og færð til skýrslutöku. Þeim var sleppt að því loknu.

Telur tölvuútboð ekki svara kostnaði

Óvíst er hvort tölvuþjónusta Akraneskaupstaðar verður boðin út, líkt og bæjarráð fól bæjarstjóra að undirbúa fyrr í sumar. Fulltrúar minnihlutans gagnrýna þetta og segja eðlilegt að þjónustan sé boðin út.

Stúlkur máttu þola illa meðferð á Bjargi

Vistheimilanefnd segir að meiri líkur en minni séu á að sumar viststúlkur á stúlknaheimilinu Bjargi hafi mátt þola illa meðferð í formi tiltekinna líkamlegra athafna og kynferðislegrar áreitni af hálfu einhverra starfskvenna heimilisins.

Vill verða járnfrú Noregs

Siv Jensen, leiðtogi Framfaraflokksins í Noregi, gæti komist í lykilstöðu við stjórnarmyndun að loknum þingkosningum á mánudag.

Óvissa um orku fyrir Helguvík

Óvissa er um hvort næg orka verður til fyrir álver Norðuráls í Helguvík, þegar það á að taka til starfa árið 2011. Norðurál tilkynnti í dag um samninga við þrjá erlenda banka sem ætla að útvega framkvæmdafé.

Ófært inn í Þórsmörk

Lögreglan á Hvolsvelli varar vegfarendur sem ætla að leggja á hálendisleiðir nú í kvöld og um helgina við færð á svæðinu.

Veislunni er lokið - hrun í kampavínssölu

Áfengissala fer vaxandi og hefur aukist töluvert frá í fyrra. Mest eykst sala á bjór, en sala á kampavíni hefur hrunið. Viðbúið er að áfengisverð eigi eftir að hækka mikið á næstu misserum; vegna hærra áfengisgjalds.

Ráðuneytisstjóri verður sendiherra

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur skipað Einar Gunnarsson ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu frá 1. október næstkomandi samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu.

Engar vísbendingar fundist um falsað nautahakk

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur- Matvælaeftirlit segist ekki hafa fundið neinar vísbendingar sem renna stoðum undir fullyrðingu nautabóndans Þórarins Jónssonar á Hálsi um að nautahakk sé drýgt með öðru kjöti en nautakjöti og svo selt ómerkt í verslunum.

Fimm Íslendingar yfirheyrðir vegna þjófnaðar á 17 sófasettum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er þessa stundina að yfirheyra fimm Íslendinga sem grunaðir eru um þjófnað á 17 sófasettum í Dugguvogi. Sófasettunum var rænt í fyrri nótt og nóttina þar áður. Þórarinn Hávarðsson sölustjóri hjá fyrirtækinu Patta í Dugguvogi, sagði í samtali við Vísi í gær að verðmæti sófasettanna væri um fjórar milljónir króna.

Vildi Helga ekki um borð í þyrlu Gæslunnar

„Þú ryðst ekki um borð í þyrlu Landhelgigæslunnar þegar þú ert ekki velkominn, það er bara þannig," segir Þórhallur Gunnarsson ritstjóri Kastljóssins. Til stóð að Helga Seljan fréttamaður færi um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar í dag til þess að fylgjast með æfingu Landsbjargar. Þegar leggja átti í hann tjáði forstjóri Gæslunnar Helga og tökumanni hans að þeir væru ekki velkomnir um borð að sögn Þórhalls. Georg segist hinsvegar hafa sagt að það væri sér ekki sérstök ánægja að þeir færu um borð.

Gísli tekur við umhverfis- og samgöngumálunum

Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi hefur verið kjörinn formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar. Gísli tekur við af Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur og segist vera himinlifandi með að vera kominn aftur í stólinn sem hann hefur vermt tvívegis áður. „Enda er mesta gerjunin í umhverfis- og samgöngumálum í borgum heimsins þessi misseri," segir Gísli á heimasíðu borgarinnar.

Átta í gæsluvarðhaldi vegna innbrota - 25 handteknir

Átta karlar á þrítugsaldri sitja nú í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á innbrotum og þjófnuðum í umdæminu. Alls hafa 25 manns verið handteknir vegna rannsóknarinnar en fólkið er allt af erlendum uppruna.

Skotið á bát á Potomac ánni

Bandaríska strandgæslan skaut í dag á grunsamlegan bát sem sást á Potomac ánni sem rennur um höfuðborgina Washington. Gríðarlegur öryggisviðbúnaður er í Bandaríkjunum í dag vegna þess að átta ár eru liðin frá árásunum þann 11. september 2001.

Brotist inn í MS og FÁ í nótt

Brotist var inn í húsnæði tveggja framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Um er að ræða Menntaskólann við Sund og Fjölbrautarskólann við Ármúla.

Stjórn Meistarafélags kjötiðnaðarmanna kölluð saman

Kristján Kristjánsson formaður Meistarafélags kjötiðnaðarmanna hefur boðað til fundar í stjórn félagsins í kjölfar frétta um að nautahakk hafi í einhverjum tilvikum verið blandað hrossakjöti og öðru. Fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gær að Neytendasamtökin kanna mál af þessu tagi. Þá hefur nautakjötsbóndi í Kjós lýst slíkum vinnubrögðum.

Telur samdráttinn verða minni en spáð var

Fjármálaráðherra vonast til þess að samdráttur í landsframleiðslu verði undir átta prósentum á þessu ári. Þess í stað gerir hann ráð fyrir áframhaldandi samdrætti á næsta ári. Þetta kom fram í máli Steingríms J. Sigfússonar á ríkisstjórnarfundi í morgun. Í upphaflegum áætlunum stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var gert ráð fyrir að samdrátturinn yrði yfir tíu prósent á árinu, en á fyrri helmingi ársins mældist hann 5,5 prósent.

Hátt í hundrað manns hringja daglega í Rauða krossinn

Hátt í hundrað manns hringja daglega í Hjálparsíma Rauða krossins. Vaxandi örvænting er hjá þeim sem hringja þangað. Fólk kvíðir vetrinum og finnst það þurfa að velja á milli þess að gefa börnum sínum að borða eða greiða af lánum.

Fótbrotinn karlmaður og ófrísk kona staðin að innbroti

Fótbrotinn karlmaður og ófrísk kona, sem bæði voru undir áhrifum fíkniefna, voru staðin að verki við stórfelldan þjófnað í verslun N-1, við Hrísmýri á Selfossi í nótt, og kom til átaka við lögreglu á vettvangi.

Mótmælendur hittu formann skipulagsráðs í dag

Að minnsta kosti tvö þúsund manns hafa sent skipulagsyfirvöldum í Reykjavík athugasemdir vegna nýs deiliskipulags við Ingólfstorg, en frestur til að skila inn athugasemdum rennur út á miðnætti í kvöld.

Fólk varað við vatnavöxtum

Lögreglan á Hvolsvelli varar vegfarendur sem ætla að leggja á hálendisleiðir nú í dag og um helgina við færð á svæðinu. Hvetur lögreglan fólk til að kanna með færð á þessum leiðum áður en lagt er af stað í ferðir. Gríðarleg úrkoma er á svæðinu og hafa vötn og ár margfaldað rennsli sitt og eru því orðin hættuleg yfirferðar.

Charlie Sheen segir bandarísk stjórnvöld standa að baki 9/11

Bandaríkjamenn eru stórhneykslaðir á stórleikaranum Charlie Sheen sem hefur gefið í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi staðið að árásunum þann 11. september fyrir átta árum síðan. Sheen hvetur Barack Obama forseta til þess að hefja að nýju rannsókn á árásunum eftir því sem fram kemur í Daily Mail.

Sex ár frá morðinu á Önnu Lindh

Í dag eru liðin 6 ár frá því að Anna Maria Lindh, þáverandi utanríkisráðherra Svíþjóðar, var myrt í verslunarmiðstöð í miðborg Stokkhólms. Í færslu á vefnum wikipedia.org kemur fra að Anna Lindh var 46 ára gömul þegar hún lést. Hún hafði gegnt embætti utanríkisráðherra í fimm ár þegar að hún lést en áður hafði hún gegnt embætti umhverfisráðherra.

Ramos úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald

Brasilíski flóttamaðurinn Hosmany Ramos var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald um leið og hann lauk 30 daga afplánun. Fangelsisdóminn hlaut hann fyrir að ferðast til Íslands á vegabréfi bróður síns. Brasilísk stjórnvöld hafa farið fram á að Ramos verði framseldur til Brasilíu.

Rauði ræninginn

Bankaræningi nokkur í Odder á Austur-Jótlandi hafði ekki heppnina með sér þegar hann hljóp á brott með feng sinn. Málningarsprengja í peningabúnti, sem hann hafði nælt sér í, sprakk og var lögregla ekki nema 20 mínútur að finna ræningjann, sem var ataður rauðri málningu og nokkuð áberandi fyrir vikið.

Berlusconi segist bestur

Ítalski forsætisráðherrann Silvio Berlusconi segist kinnroðalaust vera besti þjóðarleiðtogi í sögu Ítalíu.

Discovery getur ekki lent vegna veðurs

Geimskutlan Discovery, sem er á leið til baka úr leiðangri sínum til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar, hefur enn ekki getað lent vegna veðurs í nágrenni Kennedy-geimferðamiðstöðvarinnar í Flórída.

Fjölskylda breska hermannsins syrgir

Fjölskylda Johns Harrison, breska hermannsins sem féll í bardaga við talibana þegar sérsveitir á vegum NATO björguðu blaðamanninum Stephen Farrell, er miður sín vegna atburðanna í Kunduz-héraðinu í Afganistan á miðvikudagsmorgun en Harrison lét þar lífið ásamt túlki Farrells.

Gíslatökumálið í Afganistan rætt

Breski utanríkisráðherrann David Miliband hefur varið þá ákvörðun sína að senda sérsveit breska hersins til þess að bjarga blaðamanni sem haldið var í gíslingu í Afganistan.

Norska stjórnin rétt hangir

Norska ríkisstjórnin heldur naumlega velli samkvæmt nýrri könnun sem birtist í norska blaðinu Aftenposten.

Talsmaður talibana handtekinn

Einn helsti talsmaður talibana í Pakistan hefur verið tekinn höndum að því er stjórnarherinn í landinu segir.

Minnast 9/11

Víða um heim er þess nú minnst að átta ár eru liðin í dag frá hryðjuverkaárásunum á Tvíburaturnana.

Henrik Íslandsmeistari í skák

Henrik Danielssen varð Íslandsmeistari í skák á Skákþingi Íslands í gærkvöldi, þegar hann gerði jafntefli við Guðmund Kjartansson í tíundu og næstsíðustu umferð.

Danskar konur fullar af testósteróni

Ein af hverjum sjö konum í Danmörku hefur of mikið af karlhormónum, með ýmsum alvarlegum afleiðingum, að sögn Jótlandspóstsins.

Hraðakstur eykst í nágrenni Hvolsvallar

Fjöldi ökumanna, sem lögreglan á Hvolsvelli hefur stöðvað það sem af er árinu vegna hraðaksturs, nálgast nú 1.500, sem er meira en á sama tíma í fyrra.

Fann flöskuskeyti frá norskum borpalli

Flöskuskeyti fannst nýverið í fjörunni við Málmey á Skagafirði. Að sögn Feykis.is var það sent frá norskum borpalli í febrúar síðastliðnum.

Fíkniefni fundust við húsleit

Lögreglan í Borgarnesi, með aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, lagði hald á nokkuð af svonefndum hörðum fíkniefnum við húsleit í tveimur íbúðum í Reykjavík í fyrrakvöld og handtók í leiðinni þrjú ungmenni.

Þrír þiggja boð frá Kyrrahafseyju

Þrír kínverskir múslimar, sem árum saman hafa setið í fangabúðum Bandaríkjahers á Kúbu, hafa þegið boð stjórnvalda á Kyrrahafseyjunni Palá um að setjast þar að. Lögmaður þeirra segir þá hlakka til að komast burt og geta hafið nýtt líf, líklega strax í næsta mánuði.

Velferðarsamfélagið byggir á samkeppni

„Virk samkeppni er ein grunnforsenda þess að hægt sé að viðhalda norrænu velferðarkerfi,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins (SE). „Stefnumörkun okkar gengur út á að menn megi ekki leiðast út í að horfa á skammtímahagsmuni einstakra fyrirtækja heldur verði að horfa á langtímahagsmuni samfélagsins.“

Sjá næstu 50 fréttir