Fleiri fréttir

Hinir krossfestu sýni ýtrasta hreinlæti

Heilbrigðisyfirvöld á Filippseyjum hafa varað þá sem hyggjast feta í fótspor Jesú Krists og láta krossfesta sig á morgun, föstudaginn langa, að sýna ýtrasta hreinlæti.

Stytta af Maríu mey tárfellir

Þúsundir kaþólikka streyma nú í smáþorp í Mexíkó til þess að sjá styttu af Maríu mey sem tárfellir.

Viðurkenna að óeirðir hafi verið víðar en í Tíbet

Kínversk stjórnvöld viðurkenndu í fyrsta sinn í morgun að óeirðir sem verið hafa í Tíbet hefðu breiðst út fyrir héraðið. Þannig segir Xinhua-fréttastofan kínverska að skemmdir hafi verið unnar á opinberum byggingum og verslunum í Sichuan-héraðinu á sunnudaginn var.

Skíðasvæðin flest lokuð vegna veðurs

Flest öll skíðasvæði landsins eru lokuð í dag vegna veðurs en athuga á með opnun á nokkrum þeirra síðar í dag. Lokað er í Bláfjöllum vegna hvassviðris.

Tveir teknir fyrir fíkniefnaakstur í Borgarnesi

Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði í gærkvöldi tvo ökumenn grunaða um akstur undir áhrifum fíkniefna. Ökumennirnir eru báðir á þrítugsaldri. Þá var annar ökumaður á fertugsaldri tekinn í morgun vegna ölvunaraksturs.

Segir syni sína hafa áhuga á Alitalia

Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, segir að synir hans kunni að taka þátt í að gera kauptilboð í flugfélagið Alitalia ef Air France og KLM hætta við að reyna að kaupa það.

Tveir meintir fíkniefnasalar teknir í Reykjanesbæ

Tveir menn voru handteknir í miðbæ Reykjanesbæjar grunaðir um vörslu og sölu fíkniefna. Lögregla lagði hald á töluvert magn fíkniefna en ekki fæst gefið upp hversu mikið magnið var nákvæmlega.

Rændi söluturn með sprautunál

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar manns sem ruddist inn í söluturn við Eddufelli í Breiðholti á níunda tímanum í gærkvöld vopnaður sprautunál og hafði fjármuni á brott með sér.

Hefur áhyggjur af því að árangur tollgæslunnar glutrist niður

„Ég sé engan ávinning með þessu, hvorki faglegan né fjárhagslegan,“segir Guðbjörn Guðbjörnsson formaður tollvarðafélag Íslands. Uppi eru áform um að sameina tollgæsluembættin á Suðurnesjum og í Reykjavík. Þó er ekki búið að útkljá það ennþá, en allar horfur eru á að svo verði að sögn Guðbjörns.

Orðsending frá Vegagerðinni

Vegir eru mjög víða auðir þótt hálka eða hálkublettir séu á einstaka leiðum í flestum landshlutum.

„Fyrirgefið Kate og Gerry“

Foreldrar Madeleine McCann hafa samþykkt 550,000 punda, rúmlega 85 milljónir íslenskra króna og afsökunarbeiðni frá tveimur breskum dagblöðum. Blöðin héldu því fram að þau ættu þátt í hvarfi stúlkunnar.

Kínverjar vilja viðræður við Dalai Lama

Forsætisráðherra Kína er reiðubúinn að hefja viðræður við Dalai Lama. Þetta hefur Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands eftir Wen Jiaobao, en þeir ræddust við í dag.

Snjóflóð sprengd á stað

Hundrað sjötíu og fimm kíló af sprengiefni voru sprengd í tveimur giljum á Vestfjörðum í gær til að koma af stað snjóflóðum.

Al Gore kostar á bilinu 15-25 milljónir króna

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vísis kostar fyrirlestur með Nóbelsverðlaunahafanum Al Gore á bilinu 15-25 milljónir króna. Gore kemur hingað til lands í boði forseta Íslands en Glitnir heldur opinn fyrirlestur með Gore í Reykjavík.

Almenningur upplifir ríkisstjórnina sem ónýta

Almenningur upplifir ríkisstjórnina sem algjörlega ónýta gagnvart þeim efnahagsvanda sem að steðjar. Þetta segir formaður Vinstri-grænna en allir stjórnarandstöðuformennirnir gagnrýna ríkisstjórnina fyrir aðgerðaleysi.

Engar uppsagnir þrátt fyrir breytingar hjá lögreglunni á suðurnesjum

Skipulagsbreytingar verða gerðar á embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum, þannig að yfirstjórn tollgæsluverkefna verði óskoruð á forræði fjármálaráðherra og yfirstjórn öryggisverkefna vegna flugverndar á Keflavíkurflugvelli verði á forræði samgönguráðherra.

Dæmdur fyrir að stela leðurjakka

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa stolið leðurjakka úr versluna Hagkaupa í Kringlunni.

Má ekki breyta verði á ferðum nema með samþykki kaupanda

Viðskiptaráðuneytið segir að samkvæmt lögum um alferðir megi ekki breyta verði á slíkri ferð nema skýrt sé tekið fram við samningsgerð að verð geti hækkað eða lækkað og nákvæmlega tilgreint hvernig reikna skuli út breytt verð.

Svavar ánægður með Kaupmannahafnarfundinn

Svavar Gestsson, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, segir að ráðstefnan um íslensk efnahagsmál sem haldin var þar í borg í síðustu viku hafi verið sérstaklega vel heppnuð. Húsfyllir var og komust færri að en vildu. Nokkuð hefur verið fjallað um dræmar undirtektir danskra fjölmiðla á málinu og talað um að fundurinn hafi ekki verið nægilega vel kynntur. Sendiráðið kom að skipulagningu fundarins og segir Svavar að þar á bæ séu menn ánægðir með árangurinn.

Stóraukið netráp um síma

SAN FRANCISCO (Reuters) Talsmenn vefrisans Google segjast merkja aukna netnotkun gegnum farsíma síðan fyrirtækið tók að bjóða upp á hraðvirkara netráp gegnum ákveðnar tegundir síma og eiga nú von á að netsímaöld fari í hönd.

Sjá næstu 50 fréttir