Innlent

Flugi til Ísafjarðar og Egilsstaða frestað vegna veðurs

Flugi til Ísafjarðar, sem átti að fara klukkan ellefu, hefur verið frestað fram yfir klukkan eitt vegna veðurs. Þá er einnig verið að kanna með flug til Egilsstaða en þangað átti vél á vegum Flugfélags Íslands að halda um ellefuleytið.

Um hundrað manns bíða eftir flugi á staðina tvo en þess má geta að flogið var til Ísafjarðar klukkan níu í morgun. Þá hefur einnig verið flogið til Akureyrar í morgun. Veður fer nú versnandi á landinu og því er einnig óvíst með flug eftir hádegi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×