Innlent

Ógnaði tveimur konum með sprautunál

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn manns sem rændi söluturn í Breiðholti í gærkvöldi vopnaður sprautunál.

Maðurinn ruddist inn í söluturn við Eddufell í Breiðholti á níunda tímanum í gærkvöldi og ógnaði þar tvítugri afgreiðslustúlku með sprautunál. Hann stökk svo yfir afgreiðsluborðið og tók peninga úr afgreiðslukassanum og hljóp á brott. Lögregla segir manninn hafa náð einhverjum peningum en ekki er vitað hversu miklum.

Stuttu áður en maðurinn réðst inn í sjoppuna hafði hann reynt að ræna konu á sextugsaldri sem var að taka við peningum úr hraðbanka við Æsufell. Hann ógnaði henni einnig með sprautunál. Hann náði þó engum peningum af henni þar sem hún veitti mótspyrnu og komst í burtu.

Lögreglan rannsakar málið en meðal annars er verið að skoða myndir úr eftirlitsmyndavélum á staðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×