Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran

Fréttamynd

Ís­land frið­sælasta land heims ní­tjánda árið í röð

Ísland er nítjánda árið í röð friðsælasta land heims samkvæmt greiningu áströlsku stofnunarinnar Institute for Economics and Peace, IEP. Stofnunin hefur gefið út frá árinu 2007 skýrslu þar sem hún greinir friðsælustu ríki heims og þau ríki þar sem mestur ófriður ríkir.

Erlent
Fréttamynd

Hækka vöru­verð: „Um­hverfið mjög krefjandi“

Hækkandi ál- og olíuverð er farið að skila sér í verðhækkunum á mat- og drykkjarvöru, að sögn framkvæmdastjóra Ölgerðarinnar en félagið tilkynnti nýlega um verðhækkanir á öllum sínum framleiðsluvörum, svo sem gosdrykkjum. Rekstrarumhverfið sé orðið krefjandi en hann sé áfram bjartsýnn.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Báðir segjast hættir, í bili

Útlit er fyrir að átökunum milli Ísrael og Íran, sem blossuðu upp á nýjan leik í gærkvöldi, sé lokið eða í það minnsta í bili. Ráðamenn í báðum ríkjum segjast hættir árásum en halda möguleikanum á því að hefja þær að nýju opnum.

Erlent
Fréttamynd

Íranir skjóta á Ísrael

Íranir gerðu í kvöld loftárás á Ísrael í kjölfar þess að Ísraelsmenn gerðu árásir í höfuðborg Líbanon fyrr í dag þrátt fyrir að vopnahlé eigi að vera í gildi þar. Þetta er fyrsta árás Írana á Ísrael í tæpan mánuð. Ísraelsmenn heita hefndum.

Erlent
Fréttamynd

Öl­gerðin hækkar verðin

Ölgerðin hefur tilkynnt viðskiptavinum að hún ætli að hækka verð á framleiðsluvörum sínum. Vörur í dós hækka um 2,1 prósent í verði, að undanskildum Collab sem hækkar um 1,1 prósent. Vörur í plasti hækka einnig um 1,1 prósent en aðrar framleiðsluvörur um 0,8 prósent.

Neytendur
Fréttamynd

Segir Kúbu næsta á eftir Íran

Bandaríkin beittu í gær Miguel Díaz-Canel, forseta Kúbu, refsiaðgerðum. Auk hans voru eiginkona hans og þrír aðrir einnig beittir refsiaðgerðum en Bandaríkjamenn hafa sett verulegan þrýsting á nágranna sína og hefur Donald Trump hótað hernaðaraðgerðum gegn eyríkinu.

Erlent
Fréttamynd

Hezbollah harð­neitar sam­komu­lagi Ísraels og Líbanons

Hezbollah-samtökin harðneituðu að samið yrði um vopnahlé án þess að Ísraelar hörfuðu alfarið úr Líbanon. Í harðorðri yfirlýsingu sagði leiðtogi samtakanna að viðræðurnar hefðu verið gagnslausar og niðurlæging fyrir Líbanon.

Erlent
Fréttamynd

Sam­þykkja að koma á vopna­hléi

Leiðtogar Ísraels og Líbanon hafa samþykkt að vopnahléi verði komið á landanna á milli. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu Ísraels, Líbanon og Bandaríkjanna sem send var út í nótt. Samkvæmt samkomulaginu þarf Hezbollah að hætta öllum árásum á Ísrael og flytja alla liðsmenn sína frá suðurhluta Líbanon.

Erlent
Fréttamynd

Sami flug­maðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit

Bandaríski flugmaður F-15E herþotunnar sem skotin var niður yfir Íran í vor var einnig skotinn niður yfir Kúveit, nokkrum vikum áður. Hann var því tvisvar sinnum skotinn niður á rétt rúmum mánuði, sem fyrrverandi herforingi líkir við að verða tvisvar sinnum fyrir eldingu.

Erlent
Fréttamynd

Gerðu á­rásir á eyju í Hor­mússundi í nótt

Bandaríkjamenn gerðu árásir á eyjuna Qeshm í Hormússundi í nótt en samkvæmt CNN er um að ræða einar umfangsmestu aðgerðir í deilu Bandaríkjanna og Íran síðan samið var um vopnahlé. Þá segja heimildamenn að Donald Trump Bandaríkjaforseti og Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hafi rifist harkalega í síma í fyrrakvöld.

Erlent
Fréttamynd

„Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“

Donald Trump Bandaríkjaforseti og Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels munnhjuggust ansi harkalega í símtali sín á milli að sögn heimildarmanna. Trump mun hafa sagt Netanjahú að hann sé „fokking klikkaður“ og að allir hati hann.

Erlent
Fréttamynd

Áfram­haldandi á­tök í Líbanon þrátt fyrir sam­komu­lag

Átök héldu áfram í Líbanon í nótt þrátt fyrir að Ísraelar og Hezbollah hafi samþykkt tillögu Bandaríkjamanna um staðbundið vopnahlé. Hezbollah gerði í nótt þrjár árásir á ísraelska skriðdreka og hermenn nærri þorpum í norðurhluta Ísrael og ríkismiðlar í Líbanon hafa greint frá árásum Ísraela í suðurhluta landsins.

Erlent
Fréttamynd

Samnings­drög sam­þykkt en beðið eftir grænu ljósi for­setans

Samningamenn Bandaríkjanna og Írans eru sagðir hafa samþykkt frumdrög að samkomulagi sem myndi framlengja vopnahlé þeirra á milli um sextíu daga og hefja samningaviðræður um framtíð kjarnorkuáætlunar Írans. Donald Trump Bandaríkjaforseti á enn eftir að samþykkja samkomulagið en hann er sagður deila samningsdrögum með bandamönnum sínum.

Erlent
Fréttamynd

Ó­sáttur við skil­yrðin

Donald Trump Bandaríkjaforseti kveðst enn ósáttur við þau samningsskilyrði sem Íranir og Bandaríkjamenn semja nú um. Íranskir ríkismiðlar hafa greint frá meintum samningsdrögum en Hvíta húsið kallar þau hreinan uppspuna.

Erlent
Fréttamynd

Ru­bio von­góður um vopna­hlé

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að samkomulag við Íran gæti náðst í dag, mánudag. Hann segir samninganefndir landanna tveggja komnar með eitthvað bitastætt á samningaborðið en vinna sé þó enn yfirstandandi. Rubio er þessa stundina staddur í opinberri heimsókn á Indlandi.

Erlent