Erlent

„Fyrirgefið Kate og Gerry“

Kate og Gerry McCann
Kate og Gerry McCann
Foreldrar Madeleine McCann hafa samþykkt 550,000 punda, rúmlega 85 milljónir íslenskra króna og afsökunarbeiðni frá tveimur breskum dagblöðum. Blöðin héldu því fram að þau ættu þátt í hvarfi stúlkunnar.

Lögmaður foreldranna las upp yfirlýsingu á tröppum dómshússins í London í dag þar sem kom fram að þau væru þakklát yfir því að blöðin hefðu loksins viðurkennt mistök sín.

Daily Express og Daily Star sem bæði eru gefin út af sama útgefanda birtu afsökunarbeiðni á forsíðum sínum í dag. „Fyrirgefið Kate og Gerry," sagði á forsíðum blaðanna í dag.

Foreldrarnir sögðu að peningarnir færu í sjóð til þess að hafa upp á dótturinni, sem hefur ekki enn fundist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×