Innlent

Hefur skilað rökstuðningi fyrir ráðningu Þorsteins

Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, hefur skilað til umboðsmanns Alþingis rökstuðningi sínum vegna ráðningar Þorsteins Davíðssonar í embætti dómara við Héraðsdóm Austurlands.

Ráðningin var umdeild á sínum tíma þar sem dómnefnd taldi að þrír umsækjendur væru hæfari en Þorsteinn. Tveir umsækjendanna kvörtuðu til umboðsmanns sem fór fram á það við ráðherra að hann rökstyddi ákvörðun sína og rann frestur ráðherra út í fyrradag.

Umboðsmaður metur nú hvort ráðningin braut í bága við lög eða góða stjórnsýsluhætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×