Veður

Vaktin: Austanbylur annan í páskum

Agnar Már Másson skrifar
Úr vefmyndavél við Skarfabakka í Reykjavík klukkan13 í dag.
Úr vefmyndavél við Skarfabakka í Reykjavík klukkan13 í dag. Skjáskot/Faxaflóahafnir

Icelandair hefur aflýst flestum flugferðum sínum í dag, annan í páskum, vegna austanhríðar sem gengur yfir landið. Í vaktinni hér að neðan verður fylgst með nýjustu vendingum.

Páskahretið hefur sett strik í reikning íslenska ferðamanna yfir helgina en gular og appelsínugular viðvaranir eru í gildi um allt land eftir hádegi í dag. Fyrstu viðvaranir tóku gildi klukkan 7 í morgun á Suðurlandi þar sem djúp lægð nálgaðist úr suðvestri og veldur austan byl í dag. 

Veðurviðvaranir munu ná til allra landshluta þar sem búast má við austanvindi upp á 15-28 m/s með snörpum vindhviðum. Einnig má búast við snjókomu eða skafrenningi með slæmu skyggni og versnandi færð. Er þetta varasamt ferðaveður.

Upp úr hádegi verða viðvaranirnar á Suðurlandi færðar upp á appelsínu gult og um klukkan 13 taka gular viðvaranir gildi á höfuðborgarsvæðinu og síðan á Norðurlandi, Vesturlandi og Austurlandi. Faxaflói verður færður upp á appelsínugult klukkan 14. Um miðnætti falla flesta viðvaranir úr gildi nema á Norðaustur- og Austurlandi þar sem þær falla úr gildi kl. 3.

Það á samt að hlýna smám saman, samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Seint í dag fer úrkoman yfir í slyddu eða rigningu sunnantil og í nótt styttir upp norðanlands.


Ef þú vilt koma á framfæri ábendingum eða myndum geturðu sent okkur fréttaskot hér.


Ef vaktin birtist ekki hér að neðan er ráð að endurhlaða síðuna (Ctrl. + R).




Fleiri fréttir

Sjá meira
×