Umfjöllun, viðtöl og myndir: Víkingur - Breiða­blik 3-1 | Víkingur bikarmeistari í fyrsta sinn

Andri Már Eggertsson skrifar
Víkingur Reykjavík er bikarmeistari 2023
Víkingur Reykjavík er bikarmeistari 2023 Vísir/Hulda Margrét

Víkingur, topplið Lengjudeildarinnar, varð í kvöld bikarmeistari kvenna í knattspyrnu í fyrsta sinn í sögunni er liðið vann magnaðan 3-1 sigur gegn einu sigursælasta liði bikarkeppninnar frá upphafi, Breiðablik.

Fyrirliðarnir fyrir leik Vísir/Hulda Margrét

Lengjudeildarlið Víkings Reykjavíkur var í fyrsta sinn í bikarúrslitum í sögu félagsins í kvennaflokki. Víkingur gat ekki dreymt um betri byrjun en fyrirliðinn, Nadía Atladóttir, braut ísinn þegar innan við mínúta var liðin af leiknum. Linda Líf Boama renndi boltanum á Nadíu sem fór illa með varnarmenn Breiðabliks og skoraði.

Víkingur skoraði á 1. mínútu Vísir/Hulda Margrét

Það átti sér stað afar sérstakt atvik þegar Víkingur var marki yfir. Emma Steinsen og Agla María voru í baráttunni og eftir að Emma hafði dottið og búið var að dæma brot sparkaði Agla létt í Emmu og sá síðan af sér. Dómarinn var nálægt atvikinu en refsaði Öglu ekki.

Á 15. mínútu jafnaði Birta Georgsdóttir með stórglæsilegu marki. Birta fékk að klappa boltanum frá hægri kanti inn í teig þar sem hún lék á Emmu Steinsen, fór yfir á vinstri og þrumaði boltanum í slána og inn.

Birta Georgsdóttir jafnaði fyrir BreiðablikVísir/Hulda Margrét

Nadía Atladóttir var síðan aftur á ferðinni á markamínútunni frægu. Emma Steinsen átti frábæra sendingu fyrir markið þar sem Nadía stakk sér á milli miðvarðanna og skoraði. Verðskuldað mark Víkinga sem höfðu verið betri í fyrri hálfleik.

Nadía Atladóttir skoraði tvö mörk í kvöldVísir/Hulda Margrét

Staðan í hálfleik var 2-1

Það sást á krafti Breiðabliks í upphafi síðari hálfleiks að Ásmundur Arnarsson, þjálfari Breiðabliks, var ekki sáttur með hvernig leikurinn spilaðist í fyrri hálfleik. Það var kraftur í Kópavogsliðinu og Katrín Ásbjörnsdóttir varð færð framar á völlinn sem skapaði hættu.

Eftir kröftuga byrjun Blika var Nadía nálægt því að gera sitt þriðja mark, hún var komin í góða skotstöðu en gaf boltann í staðinn og Blikar björguðu á síðustu stundu.

Stuðningsmenn Víkings fjölmenntuVísir/Hulda Margrét

Freyja Stefánsdóttir kom inn á sem varamaður fyrir Nadíu Atladóttur og mínútu síðar innsiglaði Freyja sigurinn með marki þegar hún vann boltann úr öftustu línu Blika og skoraði.

Niðurstaðan 3-1 sigur Víkings.

Víkingur er bikarmeistari 2023 Vísir/Hulda Margrét
Víkingur er bikarmeistari 2023 Vísir/Hulda Margrét

Af hverju vann Víkingur?

Víkingur spilaði töluvert betur og átti sigurinn skilið. Víkingarnir mættu vel undirbúnar og settu tóninn strax á fyrstu mínútu með marki.

Víkingur varðist vel í seinni hálfleik þegar liðið var einu marki yfir og Sigurborg Sveinbjörnsdóttir varði allt sem kom á markið.

Hverjar stóðu upp úr?

Nadía Atladóttir var stórkostleg. Nadía setti tóninn strax á fyrstu mínútu með laglegu marki og skoraði síðan annað mark Víkings á markamínútunni 43.

Emma Steinsen var frábær í hægri bakverði Víkings. Emma lagði upp annað mark Víkings og var afar lífleg bæði í vörn og sókn.

Hvað gekk illa?

Blikar gáfu mark strax á fyrstu mínútu sem kveikti neista og trú í Víkingi. Þriðja markið var einnig afar klaufalegt og gerði það að verkum að Breiðablik fékk ekki tækifæri á að henda öllum fram í uppbótartíma og freista þess að jafna.

Hvað gerist næst?

Stjarnan og Breiðablik mætast á miðvikudaginn klukkan 18:00.

Víkingur mætir Aftureldingu í Mosfellsbæ næsta fimmtudag klukkan 19:15.

Ásmundur: Þetta var ekki leikur í deildarkeppni þannig að deildin hafði ekki áhrif

Stuðningsmenn Blika fjölmenntu í kvöldVísir/Hulda Margrét

Ásmundur Arnarsson, þjálfari Breiðabliks, var afar svekktur með tap í bikarúrslitum.

„Leikurinn fór frá okkur á fyrstu mínútu. Ég talaði um það í vikunni að þessi leikur er með sér líf og þær höfðu stemninguna með sér og voru með gríðarlega orku umfram okkur og ástandið á liðinu var ekki nógu gott til að eiga okkar leik.“

„Gegn vel skipulögðum og orkumiklum Víkingum áttum við ekki svör. Við lentum undir en komum til baka og fengum síðan á okkur annað mark og það var of stór biti fyrir okkur.“

En hvaða áhrif hafði það á leikinn að Víkingur er að spila í deild fyrir neðan Breiðablik?

„Víkingur hafði allt að vinna. Þetta var ekki deildarkeppni þannig að deildin hafði ekki áhrif. Stemningin, gleðin og orkan hafði áhrif,“ sagði Ásmundur að lokum. 

Myndir:

Það var mikið fagnað í klefanum eftir leikVísir/Hulda Margrét
Það var mikið fagnað í klefanum eftir leikVísir/Hulda Margrét
Það var mikið fagnað í klefanum eftir leikVísir/Hulda Margrét

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira