Lukaku á útleið hjá Everton: Hlusta á nýju eigendurna en ég vil vinna titla Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. maí 2016 10:45 Romelu Lukaku ætlar sér stóra hluti. vísir/getty
Romelu Lukaku er á útleið hjá Everton en þessi 23 ára gamli belgíski framherji vill komast til stærra liðs eftir þrjú tímabil í herbúðum Everton. Þessi kraftmikli framherji skoraði 18 deildarmörk fyrir Everton á tímabilinu í 37 leikjum og 25 í heildina. Hann er á síðustu þremur árum búinn að skora 43 deildarmörk í 104 leikjum. Everton hafnaði í ellefta sæti á síðustu leiktíð en sú frammistaða kostaði Roberto Martínez starfið á Goodison Park. Liðið hefur spilað undir væntingum undanfarin tvö ár eftir að ná flottum árangri á fyrsta tímabili spænska knattspyrnustjórans. Nýr eigendahópur er tekinn við Everton og verður spýtt í lófana þar á bæ en það virðist skipta Lukaku litlu máli sem hefur verið orðaður við endurkomu til Chelsea en einnig Manchester United og Bayern München. „Ég er á þeim stað á ferlinum þar sem ég verð að taka góða ákvörðun. Við erum komnir með nýja eigendur og fyrir kurteisissakir mun ég hlusta á hvað þeir hafa að segja. En ég hef mínar eigin hugmyndir. Ég vil vinna titla,“ segir Lukaku í viðtali við Daily Star. „Ég átti gott tímabil en nú er kominn tími fyrir mig að bæta við ferilskrána. Þess vegna spila ég fótbolta. Ég fékk þetta titlahungur þegar ég var hjá Chelsea.“ „Fólk í Belgíu sér mig ekki spila fyrir Everton en ég er virtur af stuðningsmönnunum og sérfræðingum eins og Jamie Carragher, Graeme Souness og Thierry Henry,“ segir Romelu Lukaku.
Enski boltinn Mest lesið Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Flugóður forseti FIFA Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Fleiri fréttir „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Sjá meira