Stúlkur eyða fjörutíu prósent meiri tíma í heimilisstörf en drengir Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 7. október 2016 07:54 Vinnustundirnar sem stúlkurnar vinna umfram strákana eru 160 milljónir. vísir/epa
Stúlkur eyða fjörutíu prósent meiri tíma í ólaunuð störf heima fyrir en drengir á heimsvísu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF, barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Skýrsluhöfundar segja að vinnustundirnar sem stúlkur vinna umfram drengi á heimsvísu séu 160 milljónir á hverjum degi, en stelpur eyða allt að 550 milljónum klukkustunda í heimilisstörf daglega. Vinnustundum fjölgar eftir því sem stúlkurnar eldast. Stúlkur á aldrinum fimm til níu ára eyða að meðal tali fjórum klukkustundum á viku í heimilisstörf og stúlkur tíu til fjórtán ára um níu klukkustundum. Þessar tölur eru þó allt að tvöfalt hærri í sumum löndum. Tvær af hverjum þremur stúlkum í heiminum elda og þrífa heimilin og helmingur þeirra sækir vatn fyrir fjölskylduna. Auk þess mæðir mun meira á þeim þegar kemur að því að líta eftir yngri systkinum eða eldri fjölskyldumeðlimum. Skýrsluhöfundar telja þetta geta komið niður á upplifun stúlknanna af barnæsku. Þær fái minni tíma til að leika sér með öðrum börnum sem og minni tíma til að einbeita sér að námi. Þá sé verið að leggja of mikla ábyrgð á litlu stúlkurnar með að láta þær hugsa um lítil börn eða fullorðna. Jafnframt segir að verkefni á borð við að láta stelpurnar sækja vatn eða eldivið geti aukið líkur á að þær verði fyrir kynferðisofbeldi. Ástandið er allra verst í Sómalíu en þar vinna stúlkur á aldrinum 10 til 14 ára 26 tíma á viku við ólaunuð heimilisstörf.
Mest lesið Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán