Bjarni: Gylfi að nálgast þann stall sem Eiður Smári var á Tómas Þór Þórðarson skrifar 16. september 2016 19:30
Gylfi Þór Sigurðsson varð síðastliðinn sunnudag markahæsti leikmaður Swansea í ensku úrvalsdeildinni frá upphafi þegar hann skoraði 26. markið sitt fyrir liðið úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur gegn stórliði Chelsea. Hann er nú kominn upp fyrir tvo skæðustu framherja Swansea-liðsins í úrvalsdeildinni frá upphafi. Spánverjinn Michu skoraði 20 mörk í 50 leikjum og Fílabeinsstrendingurinn Wilfried Bony skoraði 25 mörk í 54 leikjum. „Þetta er náttúrlega ótrúlegt afrek þó Swansea gefi ekki alveg bestu myndina af þessu því það hefur ekki verið lengi í efstu deild. Að ná þessum áfanga í liði eins og Swansea er samt gott,“ segir Bjarni Guðjónsson, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta. Fréttin birtist fyrst í kvöldfréttum Stöðvar 2 en hana má sjá í spilaranum hér að ofan. „Hann er miðjumaður í liði í einni sterkustu deild Evrópu, ef ekki þeirri sterkustu. Hann er að leggja upp mörk og gera líka svo miklu meira. Núna, í þeim leikjum sem liðnir eru af mótinu, er hann alltaf að skjóta á markið. Hann er alltaf síógnandi. Fyrsta snertingin hans er þannig að hann getur alltaf skotið og ógnað,“ segir Bjarni.Gylfi Þór skorar markið sögulega.vísir/gettyÓmetanlegur hæfileiki Gylfi Þór hefur í heildina skorað 34 mörk og lagt upp 21 og þannig komið með beinum hætti að 55 mörkum í aðeins 148 úrvalsdeildarleikjum sem miðjumaður hjá Swansea og Tottenham. Bjarni bendir á að nóg sé til af duglegum og fjölhæfum leikmönnum eins og Gylfa en þessi hæfileiki að búa til mörk er ekki á allra færi og gefur Swansea mikið. „Þetta er gríðarlega mikivægt. Það sem Gylfi gerir líka er að hann getur spilað hvaða stöðu sem er eins og um helgina þar sem hann byrjar leikinn sem framherji. Hann getur spilað þar og í holunni og líka aftar sem átta. Það er alveg til fullt af svona leikmönnum til en það er alveg ómetanlegt að vera með svona leikmann sem getur svo líka skorað,“ segir hann. Ronald Koeman vildi fá Gylfa í sínar raðir til Everton í sumar og var tilbúinn að borga fyrir hann 25 milljónir punda. Hafnfirðingurinn gerði frekar nýjan fjögurra ára samning við Swansea og er aðalmaðurinn þar. En með hversu góðu liði gæti Gylfi spilað?Eiður Smári Guðjohnsen er markahæsti Íslendingurinn í ensku úrvalsdeildinni.Vísir/AFPNálgast Eið Smára „Hann gæti klárlega farið í eitt af liðunum sem eru að spila meiri og betri fótbolta - eitt af þessum stórliðum. Það myndi enginn taka eftir því að hann væri lélegri en leikmenn í þeim liðum. Ég held að Gylfi sé einn af þeim leikmönnum sem verði betri í því meira krefjandi aðstæðum sem hann fer í og þar sem hann fær betri leikmenn í kringum sig. Hann færi auðveldlega með það að spila í einum af fimm til sex sterkustu liðunum á Englandi,“ segir Bjarni. Gylfi Þór raðaði inn níu mörkum eftir áramót á síðustu leiktíð og komst upp fyrir Heiðar Helguson á listanum yfir markahæstu Íslendinga í úrvalsdeildinni. Þar trónir á toppnum Eiður Smári Guðjohnsen með 55 mörk í 211 leikjum. „Gylfi er, kannski fyrir einhverjum tíma síðan, kominn á svipaðan stað og Eiður Smári var á þegar hann var upp á sitt besta,“ segir Bjarni Guðjónsson. Alla fréttina má sjá í spilaranum hér að ofan.
Enski boltinn Tengdar fréttir Gylfi orðinn markahæsti leikmaður Swansea í ensku úrvalsdeildinni Gylfi Þór Sigurðsson varð í dag markahæsti leikmaður Swansea í ensku úrvalsdeildinni með marki sínu gegn Chelsea á heimavelli en Gylfi skoraði af vítapunktinum eftir að hafa krækt í vítaspyrnuna sjálfur. 11. september 2016 16:25 Segir að enginn megi vanmeta mikilvægi Gylfa Þórs hjá Swansea Íslenski landsliðsmaðurinn er orðinn markahæsti leikmaður Swansea í úrvalsdeildinni. 12. september 2016 09:00 Gylfi á skotskónum í jafntefli gegn Chelsea Gylfi Þór kom Swansea aftur inn í leikinn í í 2-2 jafntefli gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag en þetta var fyrsta jafntefli Chelsea í vetur eftir þrjá sigurleiki í röð í upphafi. 11. september 2016 17:00 Mest lesið Faðir leikmanns Grindavíkur gagnrýnir liðið: „Fyrir neðan allar hellur“ Körfubolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna fyrir oddaleik gegn Tindastól Körfubolti Mamma fór inn á völlinn og sparkaði í þrettán ára strák Sport Óhugnanlegt atvik á Brúnni Enski boltinn Grindvíkingar valda vonbrigðum og Stjarnan líklega án Seth LeDay Sport Segja að Alfreð og félagar ættu að ráða Solskjær Fótbolti Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Enski boltinn Furðar sig á æðibunuganginum: „Bæði lið fá að bíða jafn stutt“ Körfubolti Segist hafa skipt um hótel til að spara Fótbolti Mikil mistök að hafa selt Viggó Handbolti Fleiri fréttir Henry vill að Lewis-Skelly byrji gegn Atlético Madrid Flottustu hjólhestaspyrnumörk í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Sjáðu mörkin: Sex marka rússíbanareið sem gæti kostað City titilinn Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Óhugnanlegt atvik á Brúnni Forest skellti Chelsea Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Segir að óásættanlegt tímabil Liverpool megi ekki endurtaka sig Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Aron búinn að skipta um skoðun og vill Carrick áfram Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Tottenham kom sér upp úr fallsæti Ferguson fluttur á spítala Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Isak aftur meiddur Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Tap West Ham gefur Tottenham von Hollywood-liðið missir af umspili og Ipswich í ensku úrvalsdeildina Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Mainoo áfram í Manchester næstu árin Sjá meira
Gylfi orðinn markahæsti leikmaður Swansea í ensku úrvalsdeildinni Gylfi Þór Sigurðsson varð í dag markahæsti leikmaður Swansea í ensku úrvalsdeildinni með marki sínu gegn Chelsea á heimavelli en Gylfi skoraði af vítapunktinum eftir að hafa krækt í vítaspyrnuna sjálfur. 11. september 2016 16:25
Segir að enginn megi vanmeta mikilvægi Gylfa Þórs hjá Swansea Íslenski landsliðsmaðurinn er orðinn markahæsti leikmaður Swansea í úrvalsdeildinni. 12. september 2016 09:00
Gylfi á skotskónum í jafntefli gegn Chelsea Gylfi Þór kom Swansea aftur inn í leikinn í í 2-2 jafntefli gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag en þetta var fyrsta jafntefli Chelsea í vetur eftir þrjá sigurleiki í röð í upphafi. 11. september 2016 17:00