Riise fór út í bíl og grét eftir fundinn með Benitez Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. mars 2015 12:45 John Arne Riise. Vísir/Getty
Norðmaðurinn John Arne Riise sem lék með Liverpool á árunum 2001 til 2008, sér mikið eftir því hvernig hann brást við því þegar þáverandi stjóri Liverpool, Rafael Benitez, tilkynnti honum að hann yrði ekki fyrsti kostur í vinstri bakverðinum lengur. Riise fór frá Liverpool í kjölfarið, spilaði með ítalska félaginu Roma frá 2008 til 2011, með Fulham frá 2011 til 2014 og er núverandi leikmaður APOEL á Kýpur. John Arne Riise skrifaði um endalok sín hjá Liverpool á bloggsíðu sinni og hann segist sjá mikið eftir því að hafa ekki barist um stöðuna við Andrea Dossena. „Ég viðurkenni það að ég átti aldrei að fara frá Liverpool en það breytir því þó ekki að ég naut tímans í Róm, hjá Fulham og hjá APOEL. Þar eignaðist ég minningar sem ég hefði ekki viljað missa af. Ég sé hinsvegar eftir því að hafa ekki barist um sætið við Dossena því ég veit að ég hefði haft þar betur," skrifaði John Arne Riise á bloggsíðu sína en Dagblaðið gerði síðan frétt um færsluna. Rafael Benitez kallaði John Arne Riise inn á skrifstofu sína aðeins nokkrum dögum eftir að hann skoraði sjálfsmark á móti Chelsea í Meistaradeildinni vorið 2008. Markið kom í uppbótartíma í fyrri leiknum á Anfield en Chelsea fór síðan áfram eftir framlengingu í seinni leiknum. „Ég held að sjálfsmarkið hafi ekki haft nein áhrif á ákvörðun Rafa en ég tók því samt þannig. Ég grét þegar ég kom heim og gat ekki talað við neinn í marga daga. Ég brást liðsfélögunum og ég brást stuðningsmönnunum," skrifaði Riise. „Rafa sagði mér á þessum fundi að Liverpool ætlaði að kaupa nýjan vinstri bakvörð og að ég yrði ekki fyrsti kostur á næsta tímabili. Vanalega hef ég samt ekki haft áhyggjur af því að fá samkeppni," sagði Riise. „Ég ber mikla virðingu fyrir Rafa en ég vildi að hann hefði sagt mér hvað ég þyrfti að gera til að verða fyrsti kostur á ný. Ef hann hefði gefið mér skýr skilaboð um hvað ég þyrfti að bæta þá hefði ég gert allt til þess að laga það hjá mér," skrifar Riise. „Ég var hissa, vonsvikinn og tómur að innan þegar ég labbaði inn í klefa eftir fundinn. Ég var svo svekktur að ég fór ekki einu sinni í sturtu. Ég fór bara út í bíl og grét," sagði Riise en hann átti þá eitt ár eftir af samningi sínum við Liverpool.
Enski boltinn Mest lesið Kristinn Gunnar sigurvegari Bakgarðshlaupsins í Öskjuhlíð 2025 Sport Mari uppgefin: „Ældi átta sinnum á brautinni“ Sport Beckham reiður: Sýnið smá virðingu Fótbolti Sjáðu Kristin Gunnar koma í mark: „Geðveikt skrítin tilfinning“ Sport Hermann Hauks um hegðun Agravanis: Lið í Evrópu vilja hann ekki út af þessu Körfubolti „Pabbi og mamma Milka, Hesseldal, Basile og Dinkins hljóta að koma sterk inn í haust“ Körfubolti Sveindís Jane slapp við síðasta sætið á íslenska listanum Fótbolti Áttar sig ekki á Stjörnunni: „Bíð bara eftir því að Garpur poppi þarna upp“ Íslenski boltinn Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Íslenski boltinn Eiður Smári missir hvert metið á fætur öðru til ungra KR-inga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Eigandi Nott. Forest reifst við Nuno þjálfara inn á vellinum Pirruð Man City stjarna: „Þeir reyndu ekki einu sinni að vinna“ Arsenal kom til baka á móti meisturunum á Anfield Newcastle upp í þriðja sætið eftir sigur á Chelsea Enn eitt tapið á Old Trafford Palace fór létt með Tottenham sem hvíldi marga „Snýst um félagið, liðið og hvað við áorkum saman“ Hæstánægður með að Dýrlingarnir séu ekki lélegasta lið sögunnar Watkins hélt Meistaradeildardraum Villa á lífi „Vörðust og vörðust meira ásamt því að tefja tímann“ Man. City tapaði mjög óvænt stigum á móti botnliðinu Haaland hreinskilinn: Ég hef ekki verið nægilega góður Vill að Arsenal neiti að standa heiðursvörð fyrir Liverpool Arteta varar Arsenal fólk við: Erfiðasta staðan að fylla Arne Slot vonsvikinn með Trent Alexander-Arnold Mac Allister besti leikmaðurinn í fyrsta sinn Salah valinn bestur af blaðamönnum Fótboltaparið eignaðist son og skírði hann Jagger Tilbúinn að gefa nýrun sín en ekki að leigja bílaleigubíl „Hverjum er ekki sama þó við séum í veseni í deildinni“ „Liðið ætti að vera betra en það er en við erum að reyna“ Sheffield United með gott forskot í umspili Championship Rio Ferdinand lagður inn á sjúkrahús Fagnaði í bol með fullt af myndum af sjálfum sér Gætu þurft að bíða í sautján ár eftir nýjum leikvangi Arteta skaut á Liverpool á fundi fyrir PSG leikinn Ráðherra bað stuðningsmenn Liverpool afsökunar Brasilíudvöl í kortunum hjá Jorginho Real Madrid vill fara í viðræður við Liverpool um Trent Mac Allister: Liverpool er bara rétt að byrja Sjá meira
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Íslenski boltinn
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Íslenski boltinn