Enski boltinn

Riise fór út í bíl og grét eftir fundinn með Benitez

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
John Arne Riise.
John Arne Riise. Vísir/Getty
Norðmaðurinn John Arne Riise sem lék með Liverpool á árunum 2001 til 2008, sér mikið eftir því hvernig hann brást við því þegar þáverandi stjóri Liverpool, Rafael Benitez, tilkynnti honum að hann yrði ekki fyrsti kostur í vinstri bakverðinum lengur.

Riise fór frá Liverpool í kjölfarið, spilaði með ítalska félaginu Roma frá 2008 til 2011, með Fulham frá 2011 til 2014 og er núverandi leikmaður APOEL á Kýpur.

John Arne Riise skrifaði um endalok sín hjá Liverpool á bloggsíðu sinni og hann segist sjá mikið eftir því að hafa ekki barist um stöðuna við Andrea Dossena.

„Ég viðurkenni það að ég átti aldrei að fara frá Liverpool en það breytir því þó ekki að ég naut tímans í Róm, hjá Fulham og hjá APOEL. Þar eignaðist ég minningar sem ég hefði ekki viljað missa af. Ég sé hinsvegar eftir því að hafa ekki barist um sætið við Dossena því ég veit að ég hefði haft þar betur," skrifaði John Arne Riise á bloggsíðu sína en Dagblaðið gerði síðan frétt um færsluna.

Rafael Benitez kallaði John Arne Riise inn á skrifstofu sína aðeins nokkrum dögum eftir að hann skoraði sjálfsmark á móti Chelsea í Meistaradeildinni vorið 2008. Markið kom í uppbótartíma í fyrri leiknum á Anfield en Chelsea fór síðan áfram eftir framlengingu í seinni leiknum.

„Ég held að sjálfsmarkið hafi ekki haft nein áhrif á ákvörðun Rafa en ég tók því samt þannig. Ég grét þegar ég kom heim og gat ekki talað við neinn í marga daga. Ég brást liðsfélögunum og ég brást stuðningsmönnunum," skrifaði Riise.

„Rafa sagði mér á þessum fundi að Liverpool ætlaði að kaupa nýjan vinstri bakvörð og að ég yrði ekki fyrsti kostur á næsta tímabili. Vanalega hef ég samt ekki haft áhyggjur af því að fá samkeppni," sagði Riise.

„Ég ber mikla virðingu fyrir Rafa en ég vildi að hann hefði sagt mér hvað ég þyrfti að gera til að verða fyrsti kostur á ný. Ef hann hefði gefið mér skýr skilaboð um hvað ég þyrfti að bæta þá hefði ég gert allt til þess að laga það hjá mér," skrifar Riise.

„Ég var hissa, vonsvikinn og tómur að innan þegar ég labbaði inn í klefa eftir fundinn. Ég var svo svekktur að ég fór ekki einu sinni í sturtu. Ég fór bara út í bíl og grét," sagði Riise en hann átti þá eitt ár eftir af samningi sínum við Liverpool.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×