Stuðningsmenn Swansea máttu ekki sjá þetta á stóra skjánum | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2015 15:30
Swansea City tapaði í gær á heimavelli á móti Stoke City í ensku úrvalsdeildinni en vafasöm tækling markvarðar Stoke á 18. mínútu leiksins fór ekki vel í stuðningsmenn sem fengu að sjá hana á stóra skjánum á Liberty-leikvanginum. Swansea City hefur nú beðist afsökunar á því að hafa sýnt sólartæklingu Jack Butland á skjánum á vellinum en þessi vafasama tækling markvarðarins var endursýnd frá þremur mismundandi sjónarhornum. Butland missti boltann frá sér en hljóp síðan út úr vítateignum og renndi sér síðan með sólann á undan í Andre Ayew, sóknarmann Swansea, sem kom aðvífandi. Samkvæmt reglum ensku úrvalsdeildarinnar má ekki ekki sýna umdeilda dóma eða vafaatriði upp á stóra skjánum inn á vellinum á meðan leik stendur. Stuðningsmenn Swansea voru mjög ósáttir með að dómarinn dæmdi ekkert á tæklinguna og púuðu vel á Robert Madley dómara leiksins. Mark Hughes, knattspyrnustjóri Stoke, kvartaði yfir þessu en Swansea segir að þarna hafi verið um mannleg mistök að ræða. Swansea var komið 1-0 undir þegar þarna kom við sögu en þetta mark Stoke sem kom strax á 4. mínútu leiksins var á endanum eina markið á Liberty-leikvanginum í gær. Swansea City hefur nú aðeins náð í samtals tvö stig út úr síðustu fimm leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni en Stoke var að vinna sinn þriðja leik í röð. Gylfi Þór Sigurðsson byrjaði á varamannabekknum í leiknum en kom inná þegar rúmlega hálftími var eftir. Gylfi var nálægt því að skora tíu mínútum eftir að hann kom inná völlinn. Hér fyrir ofan má sjá myndaband frá þessu atviki það er endursýningarnar sem stuðningsmenn Swansea máttu ekki sjá.
Enski boltinn Tengdar fréttir Monk setti Gylfa á bekkinn og Swansea tapaði á heimavelli Garry Monk var með íslenska landsliðsmanninn Gylfa Þór Sigurðsson á varamannabekknum þegar Swansea City tapaði 1-0 á heimavelli á móti Stoke í lokaleik níundu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. 19. október 2015 20:45 Gylfi á bekknum í fyrsta sinn á tímabilinu Garry Monk, knattspyrnustjóri Swansea City, tók þá ákvörðun að taka íslenska landsliðsmanninn Gylfa Þór Sigurðsson út úr liðinu fyrir leik liðsins á móti Stoke í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. 19. október 2015 18:12 Monk ekki áhyggjufullur: Lentum líka í svona á síðasta tímabili Garry Monk, knattspyrnustjóri Swansea City, horfði upp á lið sitt tapa 1-0 á heimavelli á móti Stoke í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. 19. október 2015 21:56 Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Fleiri fréttir De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Sjá meira
Monk setti Gylfa á bekkinn og Swansea tapaði á heimavelli Garry Monk var með íslenska landsliðsmanninn Gylfa Þór Sigurðsson á varamannabekknum þegar Swansea City tapaði 1-0 á heimavelli á móti Stoke í lokaleik níundu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. 19. október 2015 20:45
Gylfi á bekknum í fyrsta sinn á tímabilinu Garry Monk, knattspyrnustjóri Swansea City, tók þá ákvörðun að taka íslenska landsliðsmanninn Gylfa Þór Sigurðsson út úr liðinu fyrir leik liðsins á móti Stoke í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. 19. október 2015 18:12
Monk ekki áhyggjufullur: Lentum líka í svona á síðasta tímabili Garry Monk, knattspyrnustjóri Swansea City, horfði upp á lið sitt tapa 1-0 á heimavelli á móti Stoke í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. 19. október 2015 21:56