Wenger: Fórnaði alltaf bikarnum Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. mars 2015 14:00 Arsene Wenger fórnaði bikarnum oft en hefur þó unnið hann fimm sinnum. vísir/getty
Arsenal heimsækir Manchester United í kvöld í átta liða úrslitum enska bikarsins í fótbolta, en Arsenal er ríkjandi bikarmeistari eftir sigur á Hull á Wembley í fyrra. Liðið sem tapar þessum leik vinnur líklega engan titil á tímabilinu, en þau eru ekki nálægt toppbaráttunni í deildinni og þá er Arsenal í vondum málum í Meistaradeildinni. Sjá einnig: Wenger aldrei unnið van Gaal „Þetta er stór leikur og mikilvægur fyrir bæði lið. Hann mun hafa áhrif á trúna í báðum liðum upp á framhaldið í deildinni,“ segir Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal. „Það er mikill karakter í mínu liði. Við byrjuðum leiktíðina ekki nógu vel en maður sá alltaf hvað það kom við menn að tapa stórleikjum.“ „Andlegt ástand leikmanna er gott og þeir verða klárir í slaginn á mánudagskvöldið.“ Wenger viðurkennir að hafa ekki sett fullan kraft í enska bikarinn á undanförnum árum því hann hafi verið að reyna komast lengra í Meistaradeildinni. „Bikarinn var alltaf spilaður á vondum tíma, of nálægt Meistaradeildinni. Því þurfti maður að taka erfiðar ákvarðanir,“ segir Frakkinn. „Hverju átti maður að fórna ef maður var með tæpan leikmann? Alltaf fórnaði ég bikarnum á endanum.“ „Stundum fórnaði ég ekki bikarnum og við fengum það í andlitið með meiðslum lykilmanna tveimur til þremur dögum fyrir mikilvægan leik,“ segir Arsene Wenger.Viðureign Manchester United og Arsenal verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í kvöld.
Enski boltinn Tengdar fréttir Van Gaal: Þetta er eins og úrslitaleikur Manchester United og Arsenal berjast um sæti í undanúrslitum enska bikarsins í kvöld en tapliðið vinnur líklega engan titil á tímabilinu. 9. mars 2015 09:45 Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Fótbolti Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Fótbolti Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira
Van Gaal: Þetta er eins og úrslitaleikur Manchester United og Arsenal berjast um sæti í undanúrslitum enska bikarsins í kvöld en tapliðið vinnur líklega engan titil á tímabilinu. 9. mars 2015 09:45