Enski boltinn

Stuðningsmenn Swansea máttu ekki sjá þetta á stóra skjánum | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Swansea City tapaði í gær á heimavelli á móti Stoke City í ensku úrvalsdeildinni en vafasöm tækling markvarðar Stoke á 18. mínútu leiksins fór ekki vel í stuðningsmenn sem fengu að sjá hana á stóra skjánum á Liberty-leikvanginum.

Swansea City hefur nú beðist afsökunar á því að hafa sýnt sólartæklingu Jack Butland á skjánum á vellinum en þessi vafasama tækling markvarðarins var endursýnd frá þremur mismundandi sjónarhornum.

Butland missti boltann frá sér en hljóp síðan út úr vítateignum og renndi sér síðan með sólann á undan í Andre Ayew, sóknarmann Swansea, sem kom aðvífandi.  

Samkvæmt reglum ensku úrvalsdeildarinnar má ekki ekki sýna umdeilda dóma eða vafaatriði upp á stóra skjánum inn á vellinum á meðan leik stendur.

Stuðningsmenn Swansea voru mjög ósáttir með að dómarinn dæmdi ekkert á tæklinguna og púuðu vel á Robert Madley dómara leiksins. Mark Hughes, knattspyrnustjóri Stoke, kvartaði yfir þessu en Swansea segir að þarna hafi verið um mannleg mistök að ræða.

Swansea var komið 1-0 undir þegar þarna kom við sögu en þetta mark Stoke sem kom strax á 4. mínútu leiksins var á endanum eina markið á Liberty-leikvanginum í gær.

Swansea City hefur nú aðeins náð í samtals tvö stig út úr síðustu fimm leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni en Stoke var að vinna sinn þriðja leik í röð.

Gylfi Þór Sigurðsson byrjaði á varamannabekknum í leiknum en kom inná þegar rúmlega hálftími var eftir. Gylfi var nálægt því að skora tíu mínútum eftir að hann kom inná völlinn.

Hér fyrir ofan má sjá myndaband frá þessu atviki það er endursýningarnar sem stuðningsmenn Swansea máttu ekki sjá.


Tengdar fréttir

Monk setti Gylfa á bekkinn og Swansea tapaði á heimavelli

Garry Monk var með íslenska landsliðsmanninn Gylfa Þór Sigurðsson á varamannabekknum þegar Swansea City tapaði 1-0 á heimavelli á móti Stoke í lokaleik níundu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Gylfi á bekknum í fyrsta sinn á tímabilinu

Garry Monk, knattspyrnustjóri Swansea City, tók þá ákvörðun að taka íslenska landsliðsmanninn Gylfa Þór Sigurðsson út úr liðinu fyrir leik liðsins á móti Stoke í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×