Enski boltinn

Walcott ekki lengur hraðastur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Theo Walcott kátur á bikarúrslitaleiknum í vor.
Theo Walcott kátur á bikarúrslitaleiknum í vor. Vísir/Getty
Theo Walcott segir að Hector Bellerin, 19 ára Spánverji, sé nú sprettharðasti leikmaðurinn í röðum Arsenal.

Árið 2009 sló Walcott hraðametið hjá Lundúnaliðinu þegar hann hljóp 40m á 4,42 sekúndum og bætti þar með met Theirry Henry um 0,40 sekúndur. Aðspurður hvort hann myndi sigra Henry í kapphlaupi í dag sagði Walcott:

„Já! Thierry er kominn vel á fertugsaldurinn, svo það yrðu mikil vonbrigði að tapa fyrir honum. Ég sló hraðamet hans sem Bellerin hefur síðan slegið.“

Walcott er að ná sér eftir meiðsli sem héldu honum frá keppni seinni hluta síðasta tímabils.

Bellerin, sem er hægri bakvörður, lék átta leiki sem lánsmaður hjá Watford á síðustu leiktíð.


Tengdar fréttir

Ferna hjá Sanogo

Yaya Sanogo fór á kostum þegar Arsenal lagði Benfica á Emirates Cup í kvöld.

Arsenal fer til Tyrklands annað árið í röð

Arsenal mætir tyrkneska liðinu Besiktas í undankeppni Meistaradeildarinnar í ár en þetta er annað árið í röð sem Arsenal mætir tyrknesku liði í undankeppni Meistaradeildarinnar.

Falcao tryggði Monaco sigur | Valencia vann Emirates Cup

Alexis Sánchez lék sinn fyrsta leik í byrjunarliði Arsenal þegar liðið beið lægri hlut fyrir Monaco með einu marki gegn engu á Emirates Cup sem fór fram um helgina á heimavelli Lundúnaliðsins, Emirates Stadium.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×