Fótbolti

Vermaelen til Barcelona

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vermaelen fagnar marki í búningi Arsenal.
Vermaelen fagnar marki í búningi Arsenal. Vísir/Getty
Thomas Vermaelen er genginn í raðir Barcelona frá Arsenal, en hann skrifar undir fimm ára samning við spænska stórveldið.

Vermaelen er 28 ára miðvörður sem hefur verið í herbúðum Arsenal í sex ár og tók við fyrirliðabandinu af Robin van Persie sumarið 2012.

Áður var Vermaelen hjá Ajax þar sem hann ólst upp. Hann var orðaður við Manchester United, en talið er að United hafi ekki viljað skipta á Vermaelen og Chris Smalling og því hætt við að fá belgíska miðvörðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×