Enski boltinn

Tíu ár þar til United vinnur titilinn aftur

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Manchester United er í molum eftir niðurlægjandi 3-0 tap fyrir Liverpool á Old Trafford í gær en liðið er nú búið að tapa níu leikjum á leiktíðinni.

Englandsmeistararnir eru í sjönda sæti úrvalsdeildarinnar með 48 stig, tólf stigum á eftir nágrönnunum í Man. City sem eiga tvo leiki til góða. United er nú meira að segja þremur stigum frá sæti í Evrópudeildinni.

United hefur 20 sinnum orðið Englandsmeistari og þar af unnið úrvalsdeildina þrettán sinnum frá stofnun hennar árið 1992. Nú sér fram á breytta tíma undir stjórn DavidsMoyes en liðið hefur ekki staðið sig jafnilla í háa herrans tíð.

„Það gætu liðið tíu ár þar til United vinnur titilinn aftur,“ segir DannyMills, fyrrverandi landsliðsmaður Englands, í Match of the Day 3 á vef BBC.

„Endurbyggingin gæti tekið allavega þrjú til fjögur ár og síðan þarf að horfa til annarra liða eins og Man. City, Chelsea og Liverpool sem munu bæta sig og Arsenal og Tottenham sem gætu bætt sig líka,“ segir Danny Mills.

Eini möguleiki Manchester United núna að komast í Meistaradeildina á næsta tímabili er að vinna hana en liðið er 2-0 undir eftir fyrri leikinn gegn Olympiacos í 16 liða úrslitum keppninnar.

„David Moyes hefur aldrei unnið deildina. Hann hefur aldrei unnið titil. Ef hann væri með gott lið í höndunum gæti hann komist aftur í Meistaradeildina en ég held að það sé langt þar til United berst um titilinn aftur,“ segir Danny Mills.

Nemanja Vidic fékk fjórða rauða spjaldið gegn Liverpool á ferlinum í síðasta leiknum gegn liðinu sem leikmaður United.Vísir/Getty
Vísir/Getty

Tengdar fréttir

Olympiakos meistari í Grikklandi

Olympiakos varð í gærkvöldi Grikklandsmeistari fjórða árið í röð eftir 2-0 sigur á Panthrakikos á heimavelli sínum.

Hver var bestur? - Hver skoraði flottasta markið? | Allt inn á Vísi

Þeir sem misstu af enska boltanum um helgina eða vilja bara horfa á það helsta aftur þá er hægt að fá flott yfirlit inn á Vísi. Eins og vanalega er nefnilega hægt að finna margskonar samantektir eftir hverja umferð ensku úrvalsdeildarinnar inn á Sjónvarpsvefnum á Vísi.

Rooney: Þetta var martröð

Wayne Rooney, framherji Manchester United, lýsti 0-3 tapinu á móti Liverpool á Old Trafford i gær, sem einni af verstu stundunum á ferlinum.

Eitt skot United á rammann

Manchester United var yfirspilað í leiknum gegn Liverpool í dag og átti aðeins eitt skot á markið í leiknum.

Mata: Sólin mun rísa á ný

Juan Mata, leikmaður Manchester United, reyndi að hughreysta stuðningsmenn félagsins í bloggi sínum á Grada 360 en liðið tapaði 0-3 á heimavelli í gær á móti erkifjendunum í Liverpool.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×