Giggs gaf ekkert upp um framtíð sína í þakkarræðu eftir leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. maí 2014 21:21 Ryan Giggs átti stóran þátt í síðasta markinu sem Robin Van Persie skoraði. Vísir/Getty
Ryan Giggs stýrði Manchester United til 3-1 sigurs á Hull í kvöld í síðasta heimaleik liðsins í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu en það sem meira er hann skipti sjálfum sér inn á völlinn tuttugu mínútum fyrir leikslok í hugsanlega síðasta leik sínum í búningi United. Eftir leikinn hélt hann þakkaræðu á miðju vallarins alveg eins og Sir Alex Ferguson fyrir ári síðan. „Ég vil þakka ykkur kærlega fyrir stuðninginn á árinu frá öllum leikmönnunum og starfsfólkinu. Ég vil líka þakka Nemanja [Vidic] sérstaklega fyrir en hann er að yfirgefa okkur. Hann fer héðan með okkar bestu óskir um góðar stundir á komandi árum," sagði Ryan Giggs. „Ég veit að þetta er búið að vera erfitt tímabil og öll velgengin undanfarin ár hefur vissulega spillt okkur. Þið hafið samt alltaf stutt við bakið á liðinu og starfmönnum þess og ég er viss um að okkur tekst að upplifa þessa velgengni á ný á næstu árum," sagði Giggs. Hann henti tveimur táningum inn í byrjunarliðið og annar þeirra, hinn 18 ára gamli James Wilson skoraði tvö fyrstu mörk liðsins í sínum fyrsta leik í búningi United. „Ég vil bara óska þess að þið haldið áfram að styðja við bakið á okkur og í kvöld fengið þið smá sýn inn í framtíðina. Við spilum alltaf flottan fótbolta og ef þið haldið áfram að styðja okkur þá koma góðu tímarnir fljótt aftur," sagði Giggs. Giggs passaði sig á því að tala ekkert um hvort þetta hafi verið síðasti leikurinn hans fyrir United eða hvort að hann starfi áfram fyrir félagið. Það bendir þó margt til þess að ferli sigursælasta leikmanns United sé nú á enda.Vísir/Getty
Enski boltinn Tengdar fréttir Átján ára nýliði með tvö mörk í sigri Manchester United | Myndband Manchester United vann 3-1 sigur á Hull City á Old Trafford í kvöld í síðasta heimaleik liðsins í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni og mögulega 963. og síðasta leik Ryan Giggs fyrir félagið. 6. maí 2014 18:15 Wilson skoraði í fyrsta leiknum sínum á Old Trafford - myndband Hinn 18 ára gamli James Wilson var ekki lengi að skora í sínum fyrsta leik með aðalliði Manchester United en hann fékk tækifærið í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. 6. maí 2014 19:27 Giggs skipti sjálfum sér inn á völlinn - myndband Ryan Giggs, starfandi knattspyrnustjóri Manchester United, lék væntanlega sinn síðasta leik fyrir félagið í kvöld þegar hann kom inn á sem varamaður í síðasta heimaleik tímabilsins á móti Hull í ensku úrvalsdeildinni. 6. maí 2014 20:19 Mest lesið Albert svaraði eftir að hafa verið sakaður um hugleysi Fótbolti Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull Íslenski boltinn „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Enski boltinn Dæmd í fjögurra ára fangelsi Fótbolti „Hortugasta klapp sem ég hef séð“ Körfubolti Þriggja ára strákur setti heimsmet í skák Sport „Ég myndi bróka hann inn í klefa“ Körfubolti Búist við að Salah verði hent úr hóp Enski boltinn Langhlauparar í meiri hættu að fá krabbamein Sport Sér bara eina leið fyrir Salah: „Komi og biðjist innilega afsökunar“ Enski boltinn Fleiri fréttir Salah ekki með Liverpool til Ítalíu Kom stjórnendum Liverpool á óvart hversu harðorður Salah var Scholes segir félagið eyðileggja Mainoo Búist við að Salah verði hent úr hóp Salah-málið farið að minna mikið á þegar Ronaldo yfirgaf Man Utd „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Sjáðu markið sem West Ham-menn sáu tvær ástæður til að dæma af Beðið eftir blaðamannafundi Slot í dag: Er einhver leið til baka fyrir Salah? Landsliðsmaður handtekinn í London Sér bara eina leið fyrir Salah: „Komi og biðjist innilega afsökunar“ Guéhi hetjan og Palace upp í fjórða sæti Hópslagsmál á vellinum: „Áður en ég vissi af flugu hnefar út um allt“ Hömrunum heitt í hamsi eftir dramatík Owen um Salah: „Skil hvernig þér líður“ Karólína lagði upp en Hlín meiddist Íslenskir Púlarar í sárum: „Takk fyrir allt Mósi minn“ Kominn með nóg og vill fara frá United Fyrrum eigandi Liverpool látinn Skýtur á Salah: „Lætur þetta allt snúast um sig“ Sjáðu mörkin: Guimaraes beint úr horni, dramatík hjá Liverpool og öll hin Sprengja frá Salah: Gerður að blóraböggli og brostið samband við Slot „Erfitt þegar þú færð á þig mörk án þess að fá á þig færi“ Hádramatík í sex marka leik Aftur aflýst hjá Andra vegna bleytu Everton í fimmta sæti og langþráður sigur Spurs Varnarmenn City í stuði og aðeins tvö stig í Arsenal Þriðji í röð án sigurs hjá Chelsea Salah enn á bekknum Hádramatík í lokin á Villa Park Hagaði sér eins og MMA-bardagahetja í fótboltaleik Sjá meira
Átján ára nýliði með tvö mörk í sigri Manchester United | Myndband Manchester United vann 3-1 sigur á Hull City á Old Trafford í kvöld í síðasta heimaleik liðsins í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni og mögulega 963. og síðasta leik Ryan Giggs fyrir félagið. 6. maí 2014 18:15
Wilson skoraði í fyrsta leiknum sínum á Old Trafford - myndband Hinn 18 ára gamli James Wilson var ekki lengi að skora í sínum fyrsta leik með aðalliði Manchester United en hann fékk tækifærið í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. 6. maí 2014 19:27
Giggs skipti sjálfum sér inn á völlinn - myndband Ryan Giggs, starfandi knattspyrnustjóri Manchester United, lék væntanlega sinn síðasta leik fyrir félagið í kvöld þegar hann kom inn á sem varamaður í síðasta heimaleik tímabilsins á móti Hull í ensku úrvalsdeildinni. 6. maí 2014 20:19