Íranar mæta til viðræðna Guðsteinn Bjarnason skrifar 15. október 2013 07:00 Umdeildasta atriðið er auðgun úrans, sem Íranar hafa stundað í nokkur ár. Mynd/Fréttablaðið/AP
Hófleg bjartsýni ríkir á að viðræður Írana við fulltrúa sex ríkja, sem hefjast í Vínarborg í dag, muni skila árangri. Viðræðurnar munu snúast um kjarnorkuáætlun Írans. Sex ríkja hópurinn vill helst að Íranar hætti allri kjarnorkuvinnslu, eða að minnsta kosti þeim hlutum kjarnorkuáætlunarinnar sem hugsanlega gætu nýst Írönum til þess að búa til kjarnorkuvopn. Íranar halda hins vegar fast í þann rétt sinn að fá að stunda kjarnorkuvinnslu áfram í friðsamlegum tilgangi – nefnilega til þess að útvega landsmönnum orku. Írönsk stjórnvöld hafa undanfarin ár, undir forystu Mahmúds Ahmadínedjads forseta, verið ófáanleg til þess að ræða eftirgjöf en nýr forseti tók við í sumar og síðan hefur kveðið við annan tón. Nýi forsetinn, Hassan Rúhaní, ræddi fyrir fáum vikum símleiðis við Barack Obama Bandaríkjaforseta. Það var í fyrsta sinn sem leiðtogar þjóðanna tveggja hafa skipst á orðum í meira en þrjátíu ár. Fáir búast reyndar við því að viðræðurnar í dag og á morgun skili samkomulagi sem báðir aðilar geti sætt sig við. Það eitt að viðræðurnar séu hafnar með formlegum hætti verður þó að teljast mikill árangur. Þokist eitthvað í áttina fer væntanlega allt púður úr þrálátu tali um stríð Ísraels og jafnvel Bandaríkjanna við Íran. Ísraelsk stjórnvöld hafa síðustu vikurnar ítrekað reynt að vara við því að ekkert sé að marka sáttatal nýja Íransforsetans. Íranar séu eftir sem áður mikil ógn við öryggi Ísraels og heimsbyggðarinnar allrar.
Mest lesið Mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar Innlent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Erlent Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Erlent Fimm sóttir upp á Fjarðarheiði í nótt Innlent Stillir sér upp á miðjunni Innlent Draga kalt heimskautaloft yfir landið næstu daga Veður Íhugar að leggja á sykurskatt Innlent „Eins og knattspyrnuþjálfari sem er á bekknum“ Innlent Manntjón meðal almennings í Úkraínu jókst um 26 prósent Erlent Sinueldur við Framheimilið Innlent Fleiri fréttir „Þú stöðvar Pútín ekki með kossum og blómum“ Manntjón meðal almennings í Úkraínu jókst um 26 prósent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Telur Trump enn girnast Grænland Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri „Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Mótmæla banni gegn grænkera „pylsum“ og „hamborgurum“ Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins ICE dregur saman seglin í Minneapolis Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Greiða atkvæði um hámarksfjölda Svisslendinga Jagland ákærður fyrir spillingu Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Táningsdóttir Kims formlegur arftaki hans Pútín þjarmar að vinsælasta samfélagsmiðli Rússlands Íhugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda Sjá meira