Erlent

Íranar mæta til viðræðna

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Umdeildasta atriðið er auðgun úrans, sem Íranar hafa stundað í nokkur ár.
Umdeildasta atriðið er auðgun úrans, sem Íranar hafa stundað í nokkur ár. Mynd/Fréttablaðið/AP
Hófleg bjartsýni ríkir á að viðræður Írana við fulltrúa sex ríkja, sem hefjast í Vínarborg í dag, muni skila árangri.

Viðræðurnar munu snúast um kjarnorkuáætlun Írans. Sex ríkja hópurinn vill helst að Íranar hætti allri kjarnorkuvinnslu, eða að minnsta kosti þeim hlutum kjarnorkuáætlunarinnar sem hugsanlega gætu nýst Írönum til þess að búa til kjarnorkuvopn.

Íranar halda hins vegar fast í þann rétt sinn að fá að stunda kjarnorkuvinnslu áfram í friðsamlegum tilgangi – nefnilega til þess að útvega landsmönnum orku.

Írönsk stjórnvöld hafa undanfarin ár, undir forystu Mahmúds Ahmadínedjads forseta, verið ófáanleg til þess að ræða eftirgjöf en nýr forseti tók við í sumar og síðan hefur kveðið við annan tón.

Nýi forsetinn, Hassan Rúhaní, ræddi fyrir fáum vikum símleiðis við Barack Obama Bandaríkjaforseta. Það var í fyrsta sinn sem leiðtogar þjóðanna tveggja hafa skipst á orðum í meira en þrjátíu ár.

Fáir búast reyndar við því að viðræðurnar í dag og á morgun skili samkomulagi sem báðir aðilar geti sætt sig við. Það eitt að viðræðurnar séu hafnar með formlegum hætti verður þó að teljast mikill árangur. Þokist eitthvað í áttina fer væntanlega allt púður úr þrálátu tali um stríð Ísraels og jafnvel Bandaríkjanna við Íran.

Ísraelsk stjórnvöld hafa síðustu vikurnar ítrekað reynt að vara við því að ekkert sé að marka sáttatal nýja Íransforsetans. Íranar séu eftir sem áður mikil ógn við öryggi Ísraels og heimsbyggðarinnar allrar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×