Sýknaður af ákæru fyrir að segja brandara á Twitter BBI skrifar 28. júlí 2012 19:48 Mynd/AFP
Hæstiréttur í Bretlandi sýknaði í gær mann fyrir að segja brandara á Twitter. Málið hefur vakið mikla athygli og verið eitt umdeildasta mál dómsmál síðari ára í landinu. Í janúar árið 2010 átti Paul Chambers nokkur bókað flug frá Robin Hood flugvelli á Englandi. Sökum veðurfars féllu nokkur flug niður. Þá skrifaði Chambers örfærslu á Twitter: „Fandinn! Flugvöllurinn er lokaður. Þið hafið eina viku til að redda þessu annars sprengi ég völlinn í loft upp." Hann var fyrir vikið handtekinn og vinnuveitendur hans ráku hann. Saksóknari í landinu ákvað að lögsækja hann fyrir að senda ógnvekjandi skilaboð. Á neðra dómsstigi var Chambers fundinn sekur. Hann áfrýjaði þeim dómi og í gær komst Hæstiréttur Bretlands að því hann væri saklaus. Þar með gaf hann það fordæmi að menn megi senda ógnvekjandi skilaboð út á netið ef fólkið sem les þau hefði aldrei tekið mark á þeim eða litið á þau sem lélegan brandara. Chambers sagði eftir að niðurstaðan lá fyrir að honum væri óendanlega létt. Málaferlin hafa þegar kostað hann tvö störf og komið honum á sakaskrá. Frá því málið hófst hafa ýmsir orðið til að lýsa stuðningi sínum á Chambers, t.d. stjórnmálamenn, grínistar og notendur samfélagsmiðla. Grínistarnir Stephen Fry og Al Murray hrintu af stað herferð sem verndaði rétt fólks til að segja lélega brandara.The Guardian segir frá.
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Innlent Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Innlent Gífurleg fagnaðarlæti yfir sigurræðu Almars Innlent „Það er ekki eftirspurn eftir Guðmundi Árna lengur“ Innlent Fyrstu tölur í Garðabæ: Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig manni Innlent Meirihlutinn á Akureyri fallinn Innlent „Hvað sagðiru, 42? Það er geðveikt!“ Innlent Lokatölur í Grindavík: Miðflokkur tapar tveimur Innlent Fyrstu tölur í Hafnarfirði: Meirihlutinn heldur þvert á spár Innlent Vann 131 milljón króna á kjördegi Innlent Fleiri fréttir Bíl ekið á hóp manna í Modena Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street Sjá meira